Morgunblaðið - 31.10.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
súrdeigsbrauðin okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
skáldskap, nema það að textinn er
ljóðskotnari en talað mál sem er
yfirleitt í slammi. Hljómsveitarskip-
anin hefur hentað þróuninni á hljóm-
sveitinni enda grundvallast hún af
fyrrnefndum gæðastundum og í
rauninni þess að njóta. Tónlistar-
stíllinn okkar er frekar hrár og
skuggalegur en samt fínlegur. Við
erum að dansa á mörkum sem okkur
finnst skemmtileg því þetta er ekki
hefðbundið rapp og alls ekki hefð-
bundinn ljóðlestur, ekki gjörningur,
samt getur upplifunin alveg farið
þangað. Flokkakerfi eru oft svo
ófullkomin og ónákvæm, stíllinn
passar ekki beint í neinn sérstakan
flokk.“
Úthúða græðgi og klíkumakki
Hvað viljið þið segja með lögunum
ykkar?
„Við viljum varpa ljósi á ýmsa
hluti og svo getur fólk ráðið hvort
það virðir þessa hluti fyrir sér eða
ekki. Við viljum velja orðin þannig
saman að þau geti þýtt margt í einu.
Eitt lag fjallar t.d. um það hvernig
það er að reyna að láta fjármálin
ganga upp ef maður vill vera lista-
maður – ,,það geta ekki allir unnið
við forritun eða í banka…“ Annað
lagið fjallar um þolinmæði og bilið á
milli þess að bíða og halda áfram.
Textarnir eru flestir með frekar súr-
realískum ævintýrablæ, það er stíll
sem okkur finnst skemmtilegur. Svo
erum við að sjálfsögðu að úthúða sið-
leysi sem fylgir græðgi og klíku-
makki. Við bendum á að peningafíkn
sé í alvörunni vandamál sem ætti að
taka alvarlega, það eru margir með
gullgraftarkýli sem þyrfti að stinga
á.“
Forvitið fólk
Hafið þið oft spilað opinberlega og
hvernig er ykkur tekið?
„Við komum fyrst fram á opnun
Listahátíðar í Reykjavík 2015 í Þjóð-
menningarhúsinu. Það kom okkur í
opna skjöldu og var frekar krassandi
gigg því við tókum fyrsta lagið okkar
sem veltir upp viðkvæmum mál-
efnum og við fluttum það með
sterkri tilfinningu. Seinna heyrðum
við að það hefði verið svo áhrifamik-
ið að fólk hefði átt erfitt með að horf-
ast í augu smá tíma á eftir.
Við komum líka fram á ljóðakvöldi
Hispursmeyja. Þar var lán að Guð-
rúnu var bara ekki stolið af öðrum
ljóðskáldum í salnum því það voru
allir svo hrifnir af því hversu vel
bassaleikurinn studdi við ljóðin. Svo
spiluðum við líka á 17. júní og á
Menningarnótt, þar var okkur mjög
vel tekið og fólk var svolítið forvitið
um okkur.“
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
KontrabassaljóðarappdúóiðSilkikettina skipa þærGuðrún Hulda Pálsdóttirkontrabassaleikari og
Bergþóra Einardóttir ljóðskáld/
dansari/söngkona/rappari. Dúóið
kemur fram „off venue“ á Airwaves
á skemmtistaðnum Boston miðviku-
daginn 2. nóvember. Til liðs við sig
hafa þær fengið trommuleikarann
Pétur Daníel Pétursson, sem hljóð-
blandar einnig í nýjasta lagi dúósins
Þolinmæðiskona.
Afsprengi eðalkvölda
„Við kynntumst fyrir um áratug
í ritlistarnámi við Háskóla Íslands
og höfum dansað saman síðan,“
segja þær Guðrún og Bergþóra þeg-
ar þær eru spurðar hvernig þær
kynntust og dúóið varð til. „Silki-
kettirnir er afsprengi reglulegra eð-
alkvölda okkar vinkvennanna. Við
erum nautnaseggir og njótum þess
að gera vel við okkur í mat og drykk
þegar tækifæri gefst, skrafa og
skapa eitthvað saman. Að blanda
saman ljóðaupplestri og bassalínum
varð til á slíku kvöldi, en þá hafði
Guðrún verið að æfa sig á bassann
og Bergþóra að klára að setja saman
ljóð sem hún vildi koma frá sér í lagi.
Við fluttum þetta ljóð á opnunar-
hátíð Listahátíðar í Reykjavík 2015
og fengum sterk viðbrögð.“
Að dansa á mörkunum
Hvernig mynduð þið lýsa tón-
listarstíl dúósins?
„Silkikettirnir er kontrabassa-
ljóðarappdúó. Þetta myndi bæði
flokkast sem rapp og ljóðaupplestur
en er kannski helst í ætt við beat-
Vilja magna upp
tilfinningaseið
Silkikettirnir er framsækið dúó sem blandar saman ljóðaupplestri og bassalínum.
Tónlistarstíll þeirra er hrár, skuggalegur en samt fínlegur. Textinn er beat-skáldskapur
með skemmtilega súrrealískum ævintýrablæ þar sem orðin þýða margt í einu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Menning Silkikettirnir spiluðu í
Þjóðmenningarhúsinu við opnun
Listahátíðar árið 2015.
Berlín Guðrún Hulda Pálsdóttir og Bergþóra Einarsdóttir brugðu sér til
Berlínar á haustdögum til að stilla saman strengi sína.
Erla Dóris Halldórsdóttir, doktor í
sagnfræði, flytur erindið Karlmenn í
fæðingarhjálp á hádegisfyrirlestri hjá
Sagnfræðingafélaginu, á morgun,
þriðjudaginn 1.
nóvember.
Í fyrirlestrinum
fjallar hún um hóp
af körlum sem
sinntu ljós-
mæðrastörfum á
Íslandi á 18. og 19.
öld, en saga þess-
ara karla er næst-
um gleymd. Í dag
starfar enginn
karlmaður sem
ljósmóðir á Íslandi og svo hefur ekki
verið frá því í byrjun 20. aldar. Karl-
menn tóku þó á móti börnum og sá
fyrsti sem lauk ljósmæðraprófi var
bóndi í Suður-Þingeyjarsýslu árið
1776.
Erla Dóris varði doktorsritgerð
sína, Fæðingarhjálp á Íslandi 1760-
1880, við Háskóla Íslands í lok októ-
ber á þessu ári en hún lauk bæði BA-
prófi og MA-prófi í sagnfræði við
sama skóla. Síðustu ár hefur hún
starfað, með hléum, sem sérfræð-
ingur hjá Þjóðskjalasafni Íslands og
er nú sjálfstætt starfandi sagnfræð-
ingur.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12.05 í fyrir-
lestrasal Þjóðminjasafns Íslands og
er hann í röð fyrirlestra sem skipu-
lagðir eru í samvinnu við Þjóðminja-
safnið.
Sagnfræðingafélagið
Karlmenn í
fæðingarhjálp
Morgunblaðið/Kristinn
Fæðingarhjálp Enginn karl starfar
sem ljósmóðir á Íslandi og svo hefur
ekki verið frá því í byrjun 20. aldar.
Erla Dóris
Halldórsdóttir
Félagsmenn Kínversk-íslenska menn-
ingarfélagsins (KÍM) eru hvattir til að
mæta á aðalfund félagsins og taka
með sér gesti. Fundurinn verður hald-
inn kl. 18 í kvöld, mánudaginn 31.
október, á veitingastaðnum Tian,
Grensásvegi 12. Á dagskrá eru venju-
leg aðalfundarstörf, en auk þess seg-
ir Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari,
frá verkefnum sínum í Kína.
Tilgangur Kínversk-íslenska menn-
ingarfélagsins er að koma á og halda
uppi menningarsamstarfi milli Ís-
lands og Kína, og veita fræðslu um
menningu, þjóðfélagshætti og vísindi
í Kína og stuðla að því að kynna þar
íslenska menningu, bókmenntir og
listir. Nánari upplýsingar fást í síma
8973744 eða með því að senda fyrir-
spurnir á netfang félagsins;
kim@kim.is.
Vefsíðan www.kim.is
Menningarsamstarf
milli Íslands og Kína
Morgunblaðið/Einar Falur
Kína Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, er þekktur fyrir einstæðar ljósmyndir
og frásagnargáfa hans er rómuð. Þessa mynd tók hann í borginni Wuhan í Kína.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.