Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 14
SVIÐSLJÓS
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Í máli formanna stjórnmálaflokk-
anna í fjölmiðlum eftir kosningarnar
nú virðast þeir flestir sammála um
að sigurvegarar kosninganna séu
þrír. Einn þeirra er Sjálfstæðis-
flokkur, sem stærsti flokkur lands-
ins og bætir við sig 2% stigum á
landsvísu. Auk þess á flokkurinn
efsta mann í öllum kjördæmum.
Annar er Viðreisn sem bauð nú fram
í fyrsta skipti og hlýtur 10,5%.
Sá þriðji er Píratar sem fengu
14,5% fylgi sem er stórt stökk frá
kosningunum 2013 þegar flokkurinn
fékk 5,1% greiddra atkvæða.
Að auki hefur formaður Vinstri
grænna gert tilkall til að vera í hópi
þeirra sem nefndir eru sigurvegarar
kosninganna, en flokkurinn fékk
15,9% fylgi. Í kosningunum 2013
hlaut flokkurinn 10,9%. Vert er að
nefna í þessu samhengi að fylgi
flokksins í kosningunum 2003, 2007
og 2009 var á bilinu 8,8-21,7%.
Samfylking bauð fyrst fram í
kosningunum 1999 og fékk þá 29,8%
fylgi. Í næstu kosningum þar á eftir,
árið 2003, fékk flokkurinn 31% fylgi.
Heldur minnkaði fylgið í kosning-
unum 2007 en þá hlaut hann 26,8%.
Aftur bætti Samfylking við sig í
kosningum 2009 og hlaut 29,8. Eins
og áður segir er nú aðeins fimmt-
ungur þess fylgis eftir.
Viðreisn ekki einsdæmi
Framsóknarflokkur tapar miklu
fylgi frá því í kosningunum 2013. Þá
hlaut flokkurinn 24,4% en það var
besta útkoma í 34 ár. Hann ber nú
aðeins 11,5% úr býtum. Rétt er þó
að rifja upp að fylgi flokksins nú er í
samræmi við fylgi hans í kosningum
árin 2003, 2007 og 2009. Flokkurinn
fékk til dæmis 11,7% fylgi í kosning-
unum 2007. Það sem gerir fylgistap-
ið svo áberandi nú er að hann stór-
jók fylgi sitt í kosningum 2013, fór
úr 14,8% upp í 24,4%.
Nokkur reynsla er af því hér á
landi að ný stjórnmálaöfl líti dagsins
ljós og bjóði fram. Þau hafa þó verið
mislífseig. Í kosningunum nú bar
Viðreisn 10,5% úr býtum. Af nýjum
framboðum hefur Borgaraflokkur
Alberts Guðmundssonar náð best-
um árangi, en það var í kosning-
unum 1987. Hlaut framboðið 10,9%
fylgi.
Frumraun margra gengið vel
Björt framtíð bauð fyrst fram árið
2013 og fékk þá 8,4% fylgi. Borg-
arahreyfingin hlaut 7,4% árið 2009.
Bandalag jafnaðarmanna fékk 7,3%
árið 1983 og Þjóðvaki fékk 7,2% árið
1995.
Það einkennir jafnframt niður-
stöðu þessara kosninga að í fyrsta
sinn ná sjö flokkar manni inn á þing.
Hafa þeir ekki í annan tíma verið
fleiri. Í því samhengi er áberandi er
þegar fylgi svonefnds fjórflokks er
skoðað, það er að segja Framsókn-
arflokks, Sjálfstæðisflokks, Sam-
fylkingar og Vinstri grænna, að
samanlagt fylgi þeirra í kosningun-
um nú er 62,1%. Það er nokkur
breyting, því fjórflokkurinn fékk
90% atkvæða í kosningunum 2009.
Listabókstafur:
Flokkur/framboð:
29%
22,5%
16,8%
21,2%
10,2%
11,4%
6,7%
26,7%
10,9%
5,1%
24,4%
8,2%
15,9%
14,5%
11,5% 10,5%
7,2%
Niðurstöður
alþingiskosninga
29. október 2016
Sjálfstæðisflokkurinn
D
Vinstri græn
V
Píratar
P
Framsóknarflokkurinn
B
Björt framtíð
A
Viðreisn
C
21 10 10 8 7 419 7 3 19 6
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Sjálfstæðisflokkur leiðir í öllum kjördæmum Fylgi Framsóknarflokks svipað og fyrir kosningar 2013
Fjórflokkurinn með um 62% fylgi en hafði 90% árið 2009 Viðreisn með næstbestu frumraunina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Förðun Þær Katrín Jakobsdóttir, Vinstri grænum, og Oddný Harðardóttir,
Samfylkingu, búnar undir sjónvarpsútsendingu eftir að fyrstu tölur höfðu birst.
Morgunblaðið/Eggert
Bollaleggingar Óttar Proppé, Bjartri framtíð, og Benedikt Jóhannesson, Viðreisn, spá í nýjustu tölur áður en umræður stjórnmálaleiðtoga í sjónvarpssal fóru fram. Sigurður Ingi Jóhannsson í bakgrunni.
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
ALÞINGISKOSNINGAR 2016