Morgunblaðið - 31.10.2016, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 31.10.2016, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Milli 2014 og 2015 lækkuðu álögð gjöld lögaðila úr 183,8 milljörðum króna niður í 172,4 milljarða. Skýr- ist lækkunin einkum af því að á rekstrarárinu 2015 var sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, svo- kallaður bankaskattur, ekki lengur lagður á slitabú fjármálafyrirtækja og dróst sá liður því saman um 25 milljarða króna milli ára. Þetta kemur fram í yfirliti sem efnahags- og fjármálaráðuneytið hefur birt og byggir á tölum frá ríkisskattstjóra. Gjaldskyldum félögum fjölgaði um 665 milli ára, eða 1,7%, og eru nú um 40.500 talsins. Greiðir því hver lögaðili að jafnaði rúmlega 4,2 milljónir til ríkisskattstjóra á grundvelli rekstrarársins 2015. Um frumálagningu er að ræða og geta upphæðirnar tekið breytingum. Stærstu liðir hækka Tveir langsamlega stærstu liðir álagðra gjalda eru tekjuskattur og tryggingagjald og hækka báðir þessir liðir um rösklega 9% á milli ára. Tekjuskattgreiðslur hækka um 5,9 milljarða, úr tæplega 63,8 milljörðum í tæpa 69,7 milljarða, en greiðslur vegna tryggingagjalds aukast um 6,9 milljarða og fara úr 75,1 milljarði upp í 82. Þriðji stærsti liðurinn, sérstakur fjársýsluskattur, nemur um 6,8 milljörðum fyrir árið 2015 en var rúmlega 6 milljarðar árið á undan. Er þetta um 12,9% aukning og það þrátt fyrir að gjaldendum hafi fækkað úr tíu í átta. Þessi skattur er núna lagður á í sjötta sinn og reiknast sem 0,376% af heildar- skuldum viðkomandi lögaðila, með 50 milljarða króna frískuldamarki. 612 milljóna útvarpsgjald Lögaðilar greiða tæplega 1,4 milljarða í fjármagnstekjuskatt fyrir rekstrarárið 2015, 612 millj- ónir í útvarpsgjald og 2,9 milljarða í fjársýsluskatt sem lagður er á laun og þóknanir fjármála- og tryggingafyrirtækja. Þá nema greiðslur vegna sérstaks fjársýslu- skatts samtals 6,8 milljörðum en um er að ræða 6% skatt á hagnað fjármálafyrirtækja umfram einn milljarð. Þeim fyrirtækjum fjölgar milli ára sem fá afslátt vegna rann- sókna- og þróunarkostnaðar. Vegna ársins 2015 fá 98 fyrirtæki afslátt eða útborgun sem nemur Samtals tæplega 1,2 milljörðum. Lögaðilar greiða 172,4 milljarða  Tekjuskattsgreiðslur og tryggingagjald hækka milli ára Morgunblaðið/Golli Framlög Opinber gjöld lögaðila samanstanda af átta mismunandi sköttum. Ummæli sem Mark Carney lét falla á fundi þingnefndar í síðustu viku þóttu gefa til kynna að hann hygðist ekki starfa út allan skipunartíma sinn. Carney hefur stýrt Englandsbanka frá 2013 og var skipaður til átta ára, en fyrir helgi fóru bresk dagblöð að gera því skóna að seðlabankastjórinn myndi hvað úr hverju tilkynna að hann væri á förum. Vaxandi gagnrýni hefur gætt í garð Carney, einkum úr röðum útgöngu- sinna sem höfðu betur í Brexit-kosn- ingunni fyrr á árinu. Á undanförnum vikum hafa Theresa May forsætisráð- herra, William Hague, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Michael Gove, fyrrverandi dómsmálaráðherra, öll beint spjótum sínum að Englands- banka. Bendir Financial Times á að gagnrýnendum Carney þyki hann hafa verið of svartsýnn í afstöðu sinni gegn útgöngu Bretlands úr ESB og að hann hafi haft meiri afskipti af póli- tískum málum en hæfi starfinu. Framúrskarandi frammistaða Greg Clark viðskiptaráðherra brást við vangaveltum fjölmiðla á sunnudag með því að lýsa yfir stuðn- ingi við seðlabankastjórann. Clark var háttsettur starfsmaður breska fjármálaráðuneytisins þegar Carney var settur yfir Englandsbanka og segir hann að skipunin hafi verið af- bragðsgóð ákvörðun og frammistaða Carney verið framúrskarandi. Þá hefur Theresa May sagst gjarn- an vilja að Carney stýri Englands- banka áfram. Hefur hún reynt að leið- rétta það sem ráðherrann segir vera mistúlkun á ummælum sínum um peningastefnu bankans. Phillip Ham- mond fjármálaráðherra hefur einnig sagst fagna því ef Carney situr áfram í embætti. Seint á sunnudag greindi svo Fin- ancial Times frá því að Carney væri ekki á förum. FT segir Carney hafa tjáð vinum sínum að hann sé reiðubú- inn að starfa út skipunartímann og að hann hyggist senda frá sér yfirlýs- ingu í þessari viku til að binda enda á skaðlegar vangaveltur um framtíð bankans. Heimildarmenn FT segja jafnframt að Carney sé staðráðinn í að verja sjálfstæði Englandsbanka. Á fimmtudag mun Carney kynna nýjustu verðbólgutölur og er gert ráð fyrir að þær sýni að breska hagkerf- inu hafi vegnað betur en búist var við. ai@mbl.is AFP Umdeildur Fyrir helgi töldu bresku dagblöðin að fararsnið væri á Carney. Mark Carney ekki á förum  Mun verja sjálfstæði Englandsbanka Samfélagsmiðillinn Facebook hefur um langt skeið gert auglýsendum kleift að birta hnitmiðaðar auglýs- ingaherferðir sem aðeins er beint að tilteknum samfélagshópum, s.s. á grundvelli aldurs, kyns og áhuga- mála. Fréttastofan ProPublica segir að með þessu sé mögulega verið að brjóta bandarísk lög sem banna mismunun. Ef auglýsandi vill til dæmis aug- lýsa húsnæði gæti hann gerst brot- legur við lög um húsnæðismál með því að láta auglýsingar sínar aðeins birtast hjá Facebook-notendum sem hafa „tengsl“ við tiltekinn kyn- þátt. Sama gildir með auglýst störf, að ekki er löglegt að setja auglýs- ingarnar fram með þeim hætti að útiloki tiltekna þjóðfélagshópa, t.d. á grundvelli kyns eða kynþáttar. Facebook spyr notendur ekki um kynþátt en greinir áhugasvið þeirra til að meta hvort notandi hafi sterk tengsl við tiltekna kyn- þætti. Facebook ver þessa starfshætti og segir auglýsingavalkosti sína til þess gerða að notendur vefsins sjái auglýsingar sem þeir hafi meiri áhuga á. ai@mbl.is Auglýsingastillingar Facebook kunna að vera ólöglegar AFP Breytur Það virðist hægt að nota auglýsingastillingar Facebook til að misuna fólki s.s. eftir kynþætti. ● Í skýrslu sem þrýstihópurinn Leave Means Leave birti á sunnudag er því haldið fram að stærstu bankar og fjár- málafyrirtæki Bretlands muni árlega hafa 12 miljarða punda ávinning af út- göngu landsins úr ESB. Munar þar hvað mest um að losna undan íþyngjandi regluverki Evrópusambandsins. Segir Bloomberg niðurstöður skýrsl- unnar stangast á við þær raddir sem hafa varað við að útganga úr ESB stefni tugum þúsunda starfa í fjármálageira í voða og verði til þess að Bretland fari á mis við tekjur og skattgreiðslur sem hlaupa á tugum milljarða punda. ai@mbl.is Bankar betur staddir utan Evrópusambandsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.