Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
442 1000
Nánari upplýsingar á rsk.is
Álagningu opinberra gjalda
á lögaðila árið 2016 er lokið
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef
ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.
Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á
viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega
auglýstum stöðum dagana 31. október til 14. nóvember 2016
að báðum dögummeðtöldum.
Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem
álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 30. desember 2016.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt 98. gr. laga nr. 90/2003.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Enn einn jarðskjálftinn varð á Ítal-
íu á sunnudagsmorgun og var hann
upp á 6,6 á Richter og skall á klukk-
an 07:40, árla morguns. Þrír minni
höfðu komið á síðustu vikum. Eng-
inn lét lífið í þetta skiptið en sögu-
legar byggingar skemmdust og
jafnvel gjöreyðilögðust og yfir 20
manns slösuðust. Þetta er öflugasti
jarðskjálfinn á Ítalíu í um 30 ár,
þótt mannfall hafi ekki orðið.
Hversvegna ekkert mannfall hefur
verið tilkynnt er ekki ljóst en marg-
ir íbúar svæðisins hafa ekki enn
komið aftur á þessar slóðir síðan í
jarðskjálftanum í ágúst. En hátt í
300 manns létust í jarðskjálfta á
svipuðum slóðum í ágúst en sá
skjálfti breytti mörgum þorpum í
rústir einar. Borgin Amitrice fór
sérstaklega illa útúr þeim skjálfta.
Þótt það hafi verið mikið mannfall
kemst það ekki nálægt mannfallinu
sem varð á níunda áratugnum þegar
um 2.500 manns létust í jarðskjálfta
sem varð í Campina, en sá skjálfti
náði upp í 7,1 á Richter skalanum.
Mikil eyðlegging
Mörg hús eyðilögðust í jarð-
skjálftanum í gærmorgun sem varð
í Perugia-héraðinu. Borgin Norcia
varð einna verst úti í þessari hrinu.
Norcia er um miðbik Ítalíuskagans
á austurströnd hans en skjálftarnir
fundust í Róm á vesturhluta skag-
ans og alla leið norður til Feneyja.
Yfir 200 minni eftirskjálftar hafa
mælst síðasta sólarhring frá því að
sá stóri varð.
Einsog gefur að skilja eiga borg-
aryfirvöld í Norcia í augnablikinu í
vandræðum með að veita rafmagni
og vatni til borgarbúa. Samkvæmt
CNN eru um 15 þúsund borgarar
án rafmagns.
Fræg miðaldakirkja í Norcia, San
Benedetto, er stórskemmd, nánast
hrunin eftir skjálftann.
Yfirvöld hrósa happi með að hafa
verið viðbúin og forsætisráð-
herrann Matteo Renzi fullyrti að
allar byggingar verði endurbyggð-
ar.
Margir velta fyrir sér hvers
vegna þessi jarðskjálftahrina er á
Ítalíu núna. En jarðskjálfti verður
þegar mikil spenna myndast í bergi
og nær brotmörkum. Flekahreyf-
ingar jarðskorpunnar eru misal-
gengar en nú virðist ein slík hrina
standa yfir á Ítalíuskaganum. Þar
nuggast flekarnir saman eða troð-
ast hver undir annan. Svo þegar
bergið brotnar losnar mikil orka
sem berst í allar áttir í formi bylgju-
hreyfingar.
Alltaf hætta á skjálftum á
Ítalíu og hefur alltaf verið
Samkvæmt BBC færast flekarnir
á skaganum um 3 millimetra á ári
eða á hraða sem er um einn tíundi
þess hraða sem fingurneglur
mannsins vaxa.
Ítalir munu þurfa að lifa við svona
jarðskjálftahrinur að eilífu rétt eins
og þeir hafa þurft að gera hingað til.
Árið 1980 varð hræðilegur jarð-
skjálfti í Campania og létust rúm-
lega 2.500 manns.
Árið 1908 varð jarðskjálfti nálægt
Messinu sem er talið að hafi fellt á
bilinu 75.000 til 200.000 manns. Sá
jarðskjálfti er talinn sá versti í nú-
tímasögu Evrópu og lagði borgirnar
Messinu á Sikiley og Reggio sem
liggur hinumegin við sundið nánast
í rúst.
Fjórði jarðskjálftinn
á Ítalíu á stuttum tíma
Margir jarðskjálftar hafa verið á Ítalíu undanfarna mánuði Enginn lést í
skjálftanum í fyrradag Mikið mannfall varð í jarðskjálfta á Ítalíu í sumar
AFP
Rústir Nánast ekkert nema framhliðin á þessari kirkju frá miðöldum lifði jarðskjálftann í gærmorgun af.
Fulltrúi sendinefndar Sameinuðu
þjóðanna í Sýrlandi, Staffan de
Mistura, sagðist vera sjokkeraður
yfir grimmd uppreisnarmanna í
Aleppo sem létu sig það engu skipta
hvort þeir væru að skjóta á venju-
lega borgara eða hermenn sem
væru á yfirráðasvæði stjórnarhers
Assads í vesturhluta borgarinnar.
Hann sagði árásirnar hafa verið
hræðilegar síðustu sólarhringa.
Á föstudaginn hófu uppreisnar-
sveitir árás í von um að brjóta á bak
aftur umsátur sveita stjórnarhers-
ins.
Um 275.000 manns hafa verið
innikróaðir í borginni í marga mán-
uði. Rússneskar og sýrlenskar sveit-
ir hafa staðið fyrir miklum sprengju-
árásum á uppreisnarmenn.
SÝRLAND
Sjokkeraðir yfir
uppreisnarmönnum
Ástralski for-
sætisráðherrann
Malcolm Turn-
bull hefur kynnt
tillögu að laga-
setningu sem
bannar þeim inn-
flytjendum sem
hafa smyglað sér
til landsins á bát-
um að verða að áströlskum borg-
urum.
Mörg mannréttindasamtök hafa
bent á að þetta sé ónauðsynlegt í
stöðunni sem ástralska ríkið er í
dag. Flóttamannavandinn sé eng-
inn í dag í samanburði við það sem
hann var.
En Turnbull hefur notið þónokk-
urra vinsælda fyrir að lofa að
stöðva innflytjendastrauminn til
landsins í gegnum árin.
ÁSTRALÍA
Vill banna flótta-
menn á bátum
Kosningastjórar Hillary Clinton,
forsetaframbjóðanda Demókrata í
Bandaríkjunum, eru mjög reiðir yfir
því að bandaríska alríkislögreglan
(FBI) hefur ákveðið taka aftur upp
rannsókn á tölvupóstum Clinton að-
eins tæpum tveimur vikum fyrir
kosningar.
Það mál olli henni töluverðum
vandræðum í fyrra en flestir héldu
að storminn í kringum það hefði
lægt.
Donald Trump er aftur á móti
hæstánægður með að það mál sé að
fá framgang hjá FBI og sparar ekki
stóru orðin og segir tölvupóstamál
Clinton vera stærsta pólitíska
hneykslið sem hafi komið upp í
Bandaríkjunum síðan Watergate-
málið kom upp.
Málið ku tengjast klúrum póstum
frá fyrrverandi manni aðstoðarkonu
Clinton til 15 ára stúlku.
borkur@mbl.is
AFP
Kraftur Aðeins tíu dagar eru í kjördag og nú er það harkan sex alla daga.
Segir hneykslið það
stærsta eftir Watergate
Baráttan að nálgast suðupunkt