Morgunblaðið - 31.10.2016, Síða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Sjúkraþjálfun er úr-
ræði í heilbrigðiskerf-
inu sem er verulega
vannýtt en gæti sparað
háar upphæðir og auk-
ið skilvirkni heilsu-
gæslunnar og öldr-
unarþjónustu samhliða
því að auka lífsgæði.
Sjúkraþjálfarar veita
þjónustu sem miðar að
því að bæta, viðhalda
og endurhæfa hreyfigetu og virkni
fólks. Þeir aðstoða fólk á öllum lífs-
skeiðum þegar sótt er að hreyfigetu
og virkni vegna öldrunar, slysa,
sjúkdóma, kvilla, ástands eða um-
hverfislegra þátta. Lögð hefur verið
sívaxandi áhersla í vestrænni heil-
brigðisþjónustu á að efla meðferð í
formi þjálfunar og hreyfingar vegna
þess einfaldlega að sýnt hefur verið
fram á gagnsemi þess og sparnað
þegar á heildarmyndina er litið.
Þetta er gert undir kjörorðinu „Ex-
ercise is medicine“ eða „þjálfun er
læknisfræðileg meðferð“.
Sjúkraþjálfun skilar árangri
Með því að efla þjónustu á sviði
sjúkraþjálfunar í gegnum heilsu-
gæslur hefur víða erlendis náðst
mikill árangur við að draga úr þörf
fyrir þjónustu heimilislækna vegna
stoðkerfisvandamála. Á sama tíma
og þetta hefur bætt heilsu og lífs-
gæði margra þá hefur
aðgangur þeirra sem
glíma við annarskonar
kvilla að þjónustu
heimilislækna aukist.
Nýlegar breytingar í
heilsugæslunni hér-
lendis þar sem verið er
að ráða sálfræðinga inn
á stöðvarnar eru því
fagnaðarefni. Sálfræð-
ingar og sjúkraþjálf-
arar hafa alla tíð átt ná-
ið og gott samstarf og
samstarf þeirra á
heilsugæslustöðvum væri ákjós-
anlegt módel fyrir heilsugæsluna að
þróa í baráttunni við lífsstíls-
sjúkdóma.
Sjúkraþjálfun eykur lífsgæði
Það er einnig gríðarlega mikil-
vægt að eldri borgarar hafi greiðan
aðgang að sjúkraþjálfun og almennri
endurhæfingu. Besta leiðin til að
bregðast við fjölgun aldraðra er að
stuðla að því að þeir haldi heilbrigði
sínu, hreysti og atgervi sem allra
lengst. Rannsóknir hafa sýnt að
aldraðir sem njóta þjálfunar eru
mun líklegri til að geta verið heima
lengur, ekki síst ef þeir í framhaldi
fá þjónustu sjúkraþjálfara heim.
Sjúkraþjálfun á hjúkrunarheimilum
er ekki síður mikilvæg því hún getur
hjálpað öldruðum einstaklingum til
aukinnar sjálfbjargar og þannig
minnkað þörf fyrir aðstoð. Í því felst
sparnaður að ógleymdum þeim
auknu lífsgæðum sem slíkt felur í
sér. Þessi sparnaður kemur hins
vegar ekki fram á fyrsta degi og er
því freistandi fyrir aðþrengda fram-
kvæmdastjóra hjúkrunarheimila að
spara eyrinn með því að skera niður
þjónustu sjúkraþjálfunar.
Betri nýting fjármuna
Á skal að ósi stemma, segir í mál-
tækinu og ekki er vanþörf á að halda
því á lofti þegar hugað er að heil-
brigðiskerfinu. Hátækni, lyf og
skurðaðgerðir eru afar dýr úrræði
og því nauðsynlegt að huga að því
hvað hægt er að gera áður en til
þeirra úrræða þarf að grípa. For-
varnir, fræðslu og sjúkraþjálfun má
stórefla í þessum tilgangi.
Sé ráðamönnum alvara í því að
efla heilsugæsluna og öldrunarþjón-
ustu þá er stórfelld efling sjúkra-
þjálfunar og aðkoma fleiri heilbrigð-
isstétta innan hennar lykillinn að
lausn þess stóra verkefnis.
Sjúkraþjálfun bætir
heilbrigðisþjónustuna
Eftir Unni
Pétursdóttur »Hátækni, lyf og
skurðaðgerðir eru
afar dýr úrræði og því
nauðsynlegt að huga að
því hvað hægt er að
gera áður en til þeirra
úrræða þarf að grípa.
Unnur Pétursdóttir
Höfundur er formaður
Félags sjúkraþjálfara.
Hjáróma raddir
reyna ákaft með ein-
hæfum fullyrðingum að
ala á óánægju með hið
ágæta fyrirkomulag
sem komist hefur á
varðandi sjávarútveg-
inn okkar og ætla sum-
ir að færast mikið i
fang. Ástandið er líkt
og á frægum ung-
mennafélagsfundi á
Akureyri fyrir öld síð-
an., menn hétu því að vinna hin
ótrúlegustu afreksverk í þágu lands
og þjóðar. Meðal fundarmanna var
Matthías Jochumsson, þá prestur á
Akureyri. Honum þótti nokkuð vel
í lagt hjá mörgum, reis úr sæti
sínu og sagði svo allir máttu heyra:
Ég heiti því að verða hundrað ára,
en bætti svo við: ef ég dey ekki áð-
ur. Heitstrengingar fundarmanna
urðu síðan marktækari. Nú heyrast
hinar undarlegustu fullyrðingar úr
mörgum barkanum, reikningskunn-
átta þess fólks hefur leitt til þeirr-
ar niðurstöðu að
„samfélagið“ njóti
ekki allt góðs af
hagnaði sjávarútvegs-
ins. Athugum þetta
aðeins: Þúsundir
heimila og ein-
staklinga búa við góð
kjör vegna launa frá
útgerðum og fisk-
vinnslufyrirtækjum,
þessar launagreiðslur
nema milljörðum og
skattar af þeim efla
ríkissjóð um hundruð
miljóna; fyrirtækin kaupa vörur og
þjónustu frá fjölda aðila um allt
land; útvegsfyrirtækin greiða stór-
ar upphæðir í lífeyrissjóði og einnig
greiða þau í sjóð atvinnuleysis-
trygginga. Ofan á þetta greiða fyr-
irtækin nokkra milljarða í skatta
(veiðigjöld). Ekki má gleyma því að
fyrir fáeinum árum síðan voru
skuldir sjávarútvegsins u.þ.b. fimm
hundruð milljarðar en nú fara þær
minnkandi. Fjármunir flæða frá
fyrirtækjum í sjávarútvegi um allt
þjóðfélagið og beint eða óbeint
njóta allir landsmenn góðs af. Hver
og einn þegn í ríkinu á betri daga
vegna mikilla afkasta í sjávarútveg-
inum, líka þeir sem nú um stundir
eru nöldrandi út af ríkjandi fyrir-
komulagi. Það mætti sljákka dálítið
í þeim sem eru hvað háværastir um
þessar mundir. Stjórnendur veiði-
flotans sýna ábyrgð og fylgja ráð-
um vísindamanna við Hafrannsókn-
arstofnun, vinnsla og
markaðssækni eru með þeim ágæt-
um að hvergi mun sambærilegur
árangur til skoðunar. Einsýnir
menn með yfirboð munu eiga erfitt
uppdráttar.
Sjávarútvegur og samfélag
Eftir Emil Als
Emil Als
» Fjármunir flæða frá
fyrirtækjum í
sjávarútvegi um allt
þjóðfélagið og beint eða
óbeint njóta allir lands-
menn góðs af.
Höfundur er læknir.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Innréttingar
Íslensk hönnun – þýsk gæði
EIRVÍK Innréttingar
Eirvík innréttingar eru hannaðar af íslenskum innanhússarkitektumog sérsmíðaðar
í fullkominni verksmiðju í Þýskalandi. Einingarnar koma samsettar til landsins sem
sparar tíma í uppsetningu og tryggirmeiri gæði.
Sérstaða okkar fellst í því að bjóða heildarlausn fyrir eldhúsið. Höfuðáhersla er
lögð á persónulega þjónustu og lausnir sem falla að þörfumog lífsstíl hvers og eins.
Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í innréttinguna og eldhústækin og tryggðu þér
raunveruleg gæði á réttu verði.
Hönnun og ráðgjöf á staðnum.
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI
TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR
ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR
OFBELDI.
NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN?
Mikið sárgremst
mér alltaf þegar talað
er um áfengið af létt-
úð og kæruleysi, ör-
lagavald ótalinna,
ógæfuvald um leið,
áfengið sem er orsök
að fjölda skelfilegra
heilsufarsvandamála.
Áfengið sem er t.d.
talið af brezkum yfir-
völdum sem alvarleg-
asta heilbrigðisvanda-
málið þar í landi hinna óteljandi
bjórkráa. Alvarlegt heilbrigðis-
vandamál einnig hér á landi, af
völdum þess á ýmsan veg deyr
fjöldi manns á hverju ári, enda
kemur skaðvaldurinn svo víða við
eins og allir ættu að þekkja, einnig
þeir sem tala af léttúð og kæru-
leysi um áfengið án þess að minn-
ast á afleiðingarnar.
Þegar þessi mál eru rædd svo
sem ekkert sé vandamálið, aðeins
glaumur og gleði af þeim sem
maður álítur með fullum sönsum,
þá sárnar mér enn frekar, af fólki
sem maður hélt jafnvel að væri
læst á skilaboð virtustu stofnana
heims, en lætur bullið vaða um þá
sem taka hér undir þessi skilaboð
og vara við í krafti þess. Þessa sér
maður oft stað og þá gjarnan talað
í nafni einhvers óútskýrðs frelsis
eða þá um hinn eina sanna gleði-
gjafa eins og stóð í vísukorni einu
á dögunum: Vínið gleður alla. Alla
sem sagt. Svo fá voru þau orð og
bitur sannleikurinn hvergi nærri,
næstum eins og háðsglósa til allra
þeirra sem vínið gleður aldeilis
ekki. Vonandi sagt til að passa upp
á rímið eða þá í gamni en í þessu
gildir líka að öllu gamni fylgir
nokkur alvara, í þessu tilfelli dauð-
ans alvara í þeirra orða fyllstu
merkingu.
Eða þá eins og ég las um daginn
og hirði ekki um nafn höfundar, að
vínið keypt í venjulegri búð væri
ekkert óhollara en það sem keypt
væri í Vínbúðinni, átti
auðvitað að vera sneið
til okkar sem erum á
móti þessu óútskýrða
frelsi höfundar eða
m.a.o.: Hvenær hefur
einhver haldið svona
firru fram? Eitt er víst
að við, andstæðingar
þessa gæsalappafrelsis
sem ég kalla svo, erum
með önnur rök og
skotheldari en þetta
og höfum sérfræðinga
í lýðheilsumálum okkur til halds
og trausts. Í sömu grein eða ann-
arri var talað um ofstækið gegn
bjórnum á sínum tíma þar sem
andstæðingar bjórsins hefðu talað
um að allt færi á versta veg, ef
bjórinn yrði lögleyfður, en auðvit-
að hefðu allir spádómar þeirra ver-
ið út í loftið. Alveg skautað fram
hjá þeirri döpru staðreynd að
neyzlan stórjókst á eftir og hefur
haldist síðan, en auðvitað telja
slíkir greinarhöfundar það vera
hreinan hégóma eða þá að þeim
finnst það bara vera góð viðbót við
vínmenninguna margumtöluðu. En
þegar maður hefur fyrir augum og
eyrum sér nær daglega hræðileg
hryggðarefni af völdum þessa
sama áfengis sem fullyrt er að
gleðji alla, þá er von að manni
sárni þegar tekið er með léttúð og
kæruleysi á þessum málum. For-
varnarstarf síðustu ára meðal ung-
linga hefur virkilega skilað árangri
og ekki er það að þakka þessum
léttúðargemsum sem hugsa greini-
lega ekki um áhrifin og ekki orð
um það meir að sinni.
Léttúð varðandi
áfengisneyzlu er
engum til sóma
Eftir Helga Seljan
Helgi Seljan
» ... af völdum þess á
ýmsan veg deyr
fjöldi manns á hverju
ári.
Höfundur er formaður fjölmiðla-
nefndar IOGT.
—með morgunkaffinu