Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki lokka þig til samkomulags
sem þú ert óöruggur gagnvart. Farðu í bank-
ann og greiddu reikningana. Taktu af allan
vafa um það hvað þú vilt.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert óvenju viðkvæmur þessa dag-
ana. Þú þarft að spjalla við einhvern og fá út-
rás fyrir innibyrgðar tilfinningar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú veist ekki af hverju en þú ert
eitthvað óákveðinn í dag. Vertu óhræddur
þótt einhverjum í kringum þig kunni að finn-
ast þetta óþarfa stælar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur ekki lengur horft framhjá
efasemdum þínum varðandi atvinnuna. En
þegar aðrir fylgja ekki þínum reglum kemur
annað hljóð í strokkinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færist allur í aukana við að koma
fyrirætlunum þínum í framkvæmd, ekki síst
vegna hvatningar samstarfsfólks þíns. Skort-
ur á innblæstri er nánast óbærilegur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert staðráðinn í að leggja mikið á
þig til þess að auka tekjurnar núna. Einhver
hefur sagt ljóninu einhvern tímann í fyrnd-
inni að það geti ekki eitthvað og vantrúin er
orðin að vana.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það lífgar tvímælalaust upp á tilveruna
að eiga stund með góðum vinum. Ekki er
verið að setja upp hindranir þér til höfuðs.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er fallegt að aðstoða aðra
en það má ekki ganga svo langt að þú
gleymir sjálfum þér. Og dugi það ekki máttu
ekki hika við að leita þér aðstoðar hvar sem
er.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þú sért fullur af krafti og
viljir drífa í hlutunum geturðu ekki ætlast til
þess að aðrir séu sama sinnis. Talaðu við
fólk sem sér lífið í sama ljósi og þú.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það kann að vera að fjármálin séu
þér þyngri í skauti en þú vilt vera láta. Með
því ert þú að leggja grunn að betri og trygg-
ari framtíð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu þátt í umræðunni, en
mundu að ef þú vilt ná eyrum annarra þarft
þú að vanda framkomu þína og málfar.
Finndu þér eitthvað sem vekur ástríður þín-
ar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú þarf að hefja viðræður og komast
að samkomulagi. Hikaðu ekki við að segja
hug þinn. Segðu nákvæmlega hvað þú ert til
í og ekki til í að gera.
Páll Imsland heilsaði Leirliði ásvartri nóttu, – sagði: „Það líð-
ur vart á löngu uns við fáum okkar
Löngulínu-hafmeyju í túristaþágu.
Annað gengur ekki. Best væri að
hafa hana við Sæbrautina og til
þess að apa nú ekkert danskt of ná-
ið mætti hugmyndin að henni vera
eftirfarandi.
Hún sveif upp úr öldunum sæblaut
á Sundunum austur með Sæbraut.
Hún bar með sér ótta,
var berlegá á flótta
og óttanum olli grátt sænaut.
Ólafur Stefánsson er í Sólar-
löndum en hefur sent Sigrúnu Har-
aldsdóttur vísur, sem hún setur síð-
an inn á Leirinn og orðið hafa
vísnasmiðum að yrkisefni, m.a.
Gústa Mar:
Ólafs stökur Stefánssonar
stafsettar af drift.
Ætli hún riti einhverskonar
ósjálfráða skrift?
Sigrún gekkst við því: „Jú, það er
rétt, ég er ofurnæm. Ég finn t.d. á
mér núna að Ólafur Stefánsson hef-
ur ort þessa vísu í dag. Kem henni
hér með á framfæri.
Píratafrúin er pikkföst í sessi,
en pínlegt að sjá þau á myndinni,
er hefja upp fingurinn, hún og Spessi,
á hrundögum árla í fyrndinni
Þetta hreyfði við Jóni Arnljóts-
syni:
Náttúran er næm sem fyrr,
negla vil ég Dísu.
(Það var einhver Ólafur,
sem orti þessa vísu.)
Mér er sem ég sjái sr. Skírni
Garðarsson klóra sér í höfðinu þeg-
ar hann segir: „Þessi er allavega
ekki eftir mig, því ég heiti ekki
Ólafur!“ Og bætir síðan við: „Þessa
fann ég á gulnuðum miða, hún er
ort 1973 í minningu manns sem ég
þekkti vel…
Einn var vinur minn austan af landi,
ærið tæpur á geðinu.
Einatt ánn reyndi að opna á grandi,
austast í dánarbeðinu.
Nú er hann ekki lifandi lengur,
– loks er hann meðal sénía – .
Hann var geðprúður gáfnadrengur,
en grenjandi skitsófrenía.
Það furðar mig reyndar að ég
skuli hafa ort þetta, en rithöndin
lýgur ekki.
Svoddan er þetta…“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Löngulínu-hafmeyja
og af Ólöfum
Í klípu
„FYRR SAGÐIRÐU AÐ KONUR LÖÐUÐUST AÐ
ÞÉR. AF HVERJU ÆTTI KVIÐDÓMURINN AÐ
TRÚA ÞÉR EF ÞÚ LÝGUR AÐ SJÁLFUM ÞÉR?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
HLUSTAÐU NÚ! EF FÓLK HÆTTIR BARA AÐ
VINNA ÞEGAR ÞAÐ ER EKKI LENGUR TIL GAGNS
HEFÐIR ÞÚ ÁTT AÐ HÆTTA FYRIR TÍU ÁRUM!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að baka uppáhalds-
eftirréttinn hans.
HJÁLP! ÉG
KANN EKKI
AÐ SYNDA!
HAHA!
BARA
GRÍN!
FISKAR ERU
EKKI FYNDNIR.
HVERNIG LÍÐUR
ÞÉR EFTIR ÞENNAN
FÍNA FJÓRRÉTTA
KVÖLDVERÐ?
MÉR FINNST ÉG
ÞURFA AÐ TAKA
GÖNGUTÚR!
ÉG KEM MEÐ
REIKNINGINN,
HERRA!
NÚNA ER EINMITT
RÉTTI TÍMINN TIL
AÐ GANGA AF STAÐ!
Síðustu mánuði hefur Víkverji haftmeð höndum það skemmtilega
hlutverk vera leiðbeinandi ungs
manns í ökunámi. Sá var búinn að
taka rúmlega tíu tíma hjá ökukenn-
ara þegar æfingaferðirnar hófst og
þær eru orðnar býsna margar. Segja
verður að stráksi kom þokkalega
undirbúinn til leiks, svo ekkert skorti
upp á frumskilning hans á umferðar-
reglum eða gangverki bílsins. Það
sem alltaf skiptir þó mestu máli er að
ökumenn, bæði nýliðar sem reyndara
fólk, hafi skilning á umhverfinu.
Fylgist vel með, skilji umferðina og
ætli sér aldrei um of. Bogann má
ekki spenna of hátt.
x x x
Æfingaaksturinn hófst á hægferð-um um íbúðahverfi í borginni,
þar sem Víkverji sagði sínum manni
að fara hægt, stoppa á hverju götu-
horni, gefa stefnuljós og svo fram-
vegis. Fór svo eftir skamman tíma að
ökuneminn ungi þurfti engar upplýs-
ingar eða leiðbeiningar um svo sjálf-
sögð atriði. Eftir það var ekkert að
vanbúnaði til að taka rúnt um þröng-
ar götur miðborgarinnar, renna sér í
gegnum hringtorgin, bakka í beygju,
snögghemla á afviknum vegum,
halda bílnum kyrrum á kúplingunni í
brekku og svo mætti áfram telja.
Þetta gekk brösuglega en hafðist
smátt og smátt.
x x x
Að bakka bílnum út af vegi ognuddast aðeins utan í annan bíl,
svo útfylla þurfti tjónaskýrslu,
reyndist góður lærdómur. Að
minnsta kosti var ekkert annað í
stöðunni að halda áfram. Missa ekki
móðinn. Svo voru teknir rúntar út á
land; suður með sjó, vestur á Snæ-
fellsnes, upp á hálendið og svo mætti
áfram telja. Þetta skotgekk og eins
og við var að búast flaug strákurinn í
gegnum ökuprófið í síðustu viku.
Hann keyrir nú eins og herforingi
um alla bæ.
x x x
En var þjálfunin næg? Kann ungimaðurinn að bregðast við í lausa-
möl, hálku, þoku eða óvæntum að-
stæðum og svo mætti áfram telja.
Umferðin er ekkert grín en fyrir
hönd síns manns vonar Víkverji það
besta. víkverji@mbl.is
Víkverji
Alvæpni Guðs Að lokum: Styrkist í
Drottni og krafti máttar hans.
Efesusbréfið 6:10
mbl.is