Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Einari. Stundum kvikna hugmyndir
að einstökum atriðum sagnanna af
einhverju sem ég les, sé eða heyri í
fréttum og fjölmiðlum, því þeir
spegla, þrátt fyrir allt, stöðu og
stefnu samfélagsins. Ég er enn
fréttafíkill og fjölmiðlasjúklingur þótt
ég hafi að mestu sagt skilið við fer-
ilinn fyrir áratug og einbeitt mér að
þessum skapandi skriftum síðan. Það
var líka réttur tímapunktur til að
hætta. Margt er vel gert í íslenskum
fjölmiðlum þessi árin en starfsum-
hverfið er mun verra og fjand-
samlegra en það var. Ég er því þakk-
látur fyrir að hafa upplifað
„gullöldina“ í blaðamennsku og jafn
þakklátur fyrir að hafa hætt áður en
hagsmunagæslan batt enda á hana – í
bili að minnsta kosti.“
Ég veit að þú hefur verið mikill
bíóáhugamaður í gegnum tíðina.
Bækur þínar eru mjög myndrænar,
eða það hefur mér að minnsta kosti
alltaf fundist; skrifarðu ef til vill með
meira en bara bókina í huga?
„Nei, ég hef aldrei annað í huga en
bókina sjálfa, en trúlega hefur gamall
kvikmyndaáhugi töluverð áhrif á það
hvernig ég skrifa. Áður en ég ræðst í
að skrifa senu reyni ég að sjá hana
fyrir mér, fólkið, aðstæðurnar, finna
lyktina, heyra umhverfishljóðin, þar
á meðal músíkina, sem litar svo mjög
líf okkar og leggur sögunum til titla
þeirra.“
Þú átt þér orðið aðdáendur í út-
landinu. Hvernig bregst fólk þar við
Einari og ævintýrum hans? Er öðru-
vísi að stússa í því að kynna sögurnar
sínar erlendis?
„Minn besti og fjölmennasti les-
endahópur er í Frakklandi. Bæk-
urnar um Einar blaðamann virðast
falla Frökkum vel í geð, af ein-
hverjum ástæðum sem eru mér
ókunnar en er auðvitað mjög gleði-
legt.
Frakkar eiga sér langa og þrosk-
aða sögu í glæpabókmenntum en eru
um leið óvenju opnir og forvitnir um
sögur og höfunda frá öðrum og fram-
andi löndum. Þetta finnur maður
skýrt á fjölmörgum glæpasagna-
hátíðum þar í landi, sem ég hef þegið
boð á undanfarin ár. Ég var á tveim-
ur slíkum um daginn, í Avignon og
Toulouse, og heyrði á fólkinu mikinn
áhuga á örlögum einstakra persóna
en ekki síður á því skrýtna landi þar
sem sögurnar gerast.“
Einar virðist farinn að róast en
dóttir hans komin inn á ritstjórnina,
áköf og frökk. Dálítið villt! Eru kyn-
slóðaskipti í vænum; Einar jafnvel
farinn að íhuga að rifa seglin?
„Í 13 dögum stendur Einar sann-
arlega frammi fyrir ákveðnum tíma-
mótum í lífi og starfi. Gunnsa dóttir
hans er byrjuð að feta í fótspor föður
síns af miklum ákafa, svo miklum að
honum þykir nóg um að vissu leyti en
er að hinu leytinu stoltur af næstu
kynslóð.
Einar er í ákveðinni tilvistar-
kreppu en tekur henni af eðlislægu
æðruleysi og forvitni um það sem
koma skal. Hann hellir sér út í morð-
rannsókn en yfir honum hangir tíma-
frestur, sem í blaðamennsku kallast á
ensku deadline, og sagan tekur mið
af í titlinum 13 dagar sem einnig vísar
í flott lag eftir JJ Cale.
Og nafnið hans Einars hefur frá
upphafi vísað til einsemdar hans.
Hann rannsakar vandræði annarra
um leið og sín eigin. Og þegar upp er
staðið er hann aftur orðinn einn.“
Morgunblaðið/Eggert
Höfundur „Glæpasagan er alltaf jafn
heillandi vegna þeirra fjölmörgu möguleika
sem hún veitir til að segja spennandi sögur
af hversdagsfólki sem óhversdagslegir at-
burðir sækja heim,“ segir Árni Þórarinsson.
Allt fyrir gluggana
á einum stað
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - mán-föst 10-18 - lau 11-15
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fim 3/11 kl. 20:00 111. s. Sun 13/11 kl. 20:00 116.s Fim 24/11 kl. 20:00 121.s
Fös 4/11 kl. 20:00 112. s. Fim 17/11 kl. 20:00 117.s Fös 25/11 kl. 20:00 122.s
Lau 5/11 kl. 20:00 113. s. Fös 18/11 kl. 20:00 118.s Lau 26/11 kl. 20:00 123.s
Fös 11/11 kl. 20:00 114. s. Lau 19/11 kl. 20:00 119.s Sun 27/11 kl. 20:00 124.s
Lau 12/11 kl. 20:00 115. s. Sun 20/11 kl. 20:00 120.s
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Mið 2/11 kl. 19:00 aukas. Sun 6/11 kl. 13:00 12.sýn Sun 13/11 kl. 13:00 14.sýn
Lau 5/11 kl. 13:00 11.sýn Lau 12/11 kl. 13:00 13.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 15.sýn
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Njála (Stóra sviðið)
Sun 6/11 kl. 20:00 Mið 16/11 kl. 20:00 Mið 7/12 kl. 20:00
Fim 10/11 kl. 20:00 Mið 23/11 kl. 20:00
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur.
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Fim 3/11 kl. 20:00 aukas. Lau 5/11 kl. 20:00 10.sýn
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar - síðustu sýningar
Extravaganza (Nýja svið )
Fös 4/11 kl. 20:00 4. sýn Fim 10/11 kl. 20:00 7. sýn Fös 18/11 kl. 20:00 9.sýn
Lau 5/11 kl. 20:00 5. sýn Sun 13/11 kl. 20:00 8. sýn Lau 19/11 kl. 20:00 10.sýn
Sun 6/11 kl. 20:00 6. sýn Mið 16/11 kl. 20:00 auka.
Nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Þri 1/11 kl. 20:00 Fors. Fös 11/11 kl. 20:00 aukas. Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn
Mið 2/11 kl. 20:00 Fors. Lau 12/11 kl. 20:00 5.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn
Fim 3/11 kl. 13:00 Fors. Sun 13/11 kl. 20:00 6.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn
Fös 4/11 kl. 20:00 Frums. Fim 17/11 kl. 20:00 7.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn
Sun 6/11 kl. 20:00 2.sýn Fös 18/11 kl. 20:00 8.sýn Sun 4/12 kl. 20:00 aukas.
Mið 9/11 kl. 20:00 3.sýn Lau 19/11 kl. 20:00 9.sýn Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn
Fim 10/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 10.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn
Aðeins þessar sýningar. Örfáir miðar lausir.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Atvinnublað alla laugardaga
mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?