Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Síða 2
Vikublað 3.–5. febrúar 20152 Fréttir Fylltu upp í gryfjuna B úið er að fylla upp í sandgryfju, sem ekki drenaði sig, við leik- skólann Rauðhól í Norðlinga- holti í Reykjavík. Gryfjan hafði verið foreldrum og starfsmönnum skólans til mikils ama en hún átti það til að að safna í sig talsverðu vatni og hafði niðurfall sem í henni var ekki undan í miklum leysingum eins og hafa verið að vetrarlagi síðustu tvö ár. Vatnið safnaðist því saman og gat orðið allt að 30 sentímetra djúpt. Vatnið var mikil slysagildra fyrir börn á leikskólanum og höfðu foreldrar áhyggjur af því að þarna gæti orðið slys. „Framkvæmdasvið Reykjavíkur- borgar hefur haft vitneskju af þessu frá því að leikskólinn hóf starfsemi 2007 og hefur því dælt úr henni eftir þörfum. Það er niðurfall í lautinni en hún hefur ekki drenað sig og því hefur þessi vatnssöfnun átt sér stað,“ sagði Guðrún Sólveig Vignisdóttir leikskólastjóri við DV í síðasta viku- blaði og bætti því við að málið hefði verið þungt í vöfum enda þyrfti bæði fjármagn og heimild arkitektsins til að breyta gryfjunni. Kalla þurfti til dælubíl allt að tvisvar á dag til að dæla upp vatninu, en stundum náði það að frjósa svo úr varð skautasvell. „Þetta er búið að vera svona í nokkur ár. Það þarf bara að fylla upp í þetta en það virðist ekkert gerast,“ sagði móðir barns við leikskólann. Eftir að DV hafði samband við leik- skólastjórann síðastliðinn mánudag var ákveðið að ganga í málið og eins og sést á meðfylgjandi mynd hefur nú verið fyllt upp í gryfjuna. Því er ekki lengur hætta á að hún dreni sig ekki. n astasigrun@dv.is Slysagildru á leikskóla í Norðlingaholti hefur verið breytt Dópaðir og ölvaðir Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn um helgina, sem báðir voru staðnir að fíkniefnaakstri. Báðir reynd- ust hafa neytt kannabisefna en annar var auk þess undir áhrifum amfetamíns, að því er segir í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum. Þá voru tveir ökumenn til viðbótar handteknir fyrir ölv- unarakstur. Annar þeirra var að legga af stað til Reykjavíkur þegar lögregla stöðvaði hann. Fóru í 176 utanlands- ferðir 41 þingmaður fór í 176 utan- landsferðir á síðasta ári. RÚV greindi frá þessu á mánudag. Sá þingmaður sem fór í flestar ferðir var Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefnd- ar, en hann fór í tólf ferðir. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, fór í ellefu ferðir og Karl Garðars- son, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, fór í tíu. Af þingmönnum stjórnarand- stöðunnar sem fóru í flestar ferð- ir fór Helgi Hjörvar, þingflokks- formaður Samfylkingarinnar, í níu ferðir, Katrín Jakobsdóttir, formaður VG í átta, og Ögmund- ur Jónasson þingmaður VG í sjö. Þá greinir RÚV frá því, og vísar í svar frá skrifstofu Alþingis, að þingið sé ekki með neina samn- inga um sérkjör á flugmiðum heldur sé leitað hagstæðustu kjara hverju sinni. Lífshætta á Jökulsárlóni Æ fleiri erlendir ferða- menn leggja leið sína að Jökulsárlóni á Breiða- merkursandi að vetrar- lagi og leggja sig í lífs- hættu þegar þeir fara út á ísinn á lóninu. Þetta er mat lögreglunnar á Hornafirði og rekstraraðila við Jök- ulsárlón. Mikill sjávarfallastraumur er inn og út úr lóninu, einkum þegar nær dregur brúnni og því getur ísinn ver- ið mjög varasamur og kvikur, ekki síst vegna sjávarseltunnar í vatninu. Lónið er auk þess mjög djúpt, tæpir 250 metrar þar sem það er dýpst. „Við höfum dauðans áhyggjur af þessu,“ segir Grétar Már Þorkelsson, lögregluþjónn á Hornafirði, í sam- tali við DV. Hann segir að með vax- andi ferðamannastraumi að vetrar- lagi verði þessi hætta meiri og fólk geri sér ekki alltaf grein fyrir því að það geti verið í lífshættu fari það út á ísinn á Jökulsárlóni. Þetta eigi ekki síst við um ísinn þegar nær dregur brúnni þar sem sjávarfallastrauma gætir af miklum þunga. Erfitt að hemja ferðamenn Oddný Jakobs í kaffiteríunni við Jökulsárlón segir að ekki séu skilti uppi á staðnum með upplýsingum um hættuna. Það gæti verið í verka- hring landeigenda annars vegar og Vatnajökulsþjóðgarðs hins vegar að setja upp slík skilti. „Það eru aðeins lítil skilti þegar nær dregur brúnni þar sem varað er við lausum bökk- um. Við höfum reynt eftir megni að vara ferðamenn við því að fara út á ísinn á lóninu. Okkur hér finnst það bara vera heilbrigð skynsemi að var- ast ísinn því þetta er allt á hreyfingu. En fólk virðist ekkert hugsa á þann hátt um þetta. Stærsti hluti ferða- mannanna kemur í hópum og leið- sögumennirnir eru vakandi yfir þessu og upplýsa þá um hættuna samfara því að fara út á ísinn á lón- inu,“ segir Oddný. Íshellan á lóninu er samfelldari í vetur heldur en í fyrravetur, sérstak- lega þegar innar dregur og nær jökl- inum að sögn hennar. „Það er ekki ýkja langt síðan að ég og björgunar- sveitarmaður frá Hornafirði stóð- um hér við bakkann undan veitinga- skálanum. Við vorum reyna að kalla á nærri áttatíu manna hóp erlendra ferðamanna í land. Þarna var einnig maður með fimm manna fjölskyldu sem fór út á ísinn og mat það svo að þetta væri ekki hættulegra en að fara út á ísinn á Reykjavíkurtjörn.“ Aukinn fjöldi – vaxandi hætta Oddný segir að ferðamennirnir fari út á lónið þar sem þeim detti í hug að fara. Þeir gera sér enga grein fyr- ir hættunni eða hversu mikil hreyf- ing er á þessu og segir jafnvel við okkur að við séum að ljúga til um hættuna. Þetta gekk svo langt að far- ið var að úthúða okkur á vefsíðunni Tripadvisor fyrir að reyna að fá fólk ofan af því að fara út á ísinn. Við vær- um bara að eyðileggja fríið og svo framvegis. Það endaði með því að við gáfumst upp á því að reyna að hafa vit fyrir fólki og settum upp við- vörunarskilti inni í kaffiteríunni hjá okkur þess í stað. Svo eru leiðsögu- mennirnir í góðu samstarfi við okk- ur um þetta og vara við eftir föngum.“ Grétar Már, lögregluþjónn á Hornafirði, segir fulla ástæðu til þess að vara við hættunni því ísinn sé kvikur og sjávarföllin auki enn á hættuna. Hættan á óhöppum eða alvarlegum slysum aukist með vax- andi fjölda ferðamanna að vetrar- lagi. n n Fjöldi ferðamanna hættir sér á ísinn n Lögreglan áhyggjufull Jóhann Hauksson johannh@dv.is „Við höfum dauðans áhyggjur af þessu Hættulegur ís Vaxandi fjöldi erlendra ferðamanna leggur leið sína að Jökulsár- lóni að vetrarlagi og gerir sér illa grein fyrir hættunni samfara því að fara út á ísinn. Slysagildra Fyllt hefur verið í holu við leikskólann Rauðhól á Norðlingaholti. Holan var slysagildra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.