Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 11
Vikublað 3.–5. febrúar 2015 Fréttir 11 Vilja endurskoða lög um nálgunarbann n Ósamræmi lögreglu og Hæstaréttar n Komið verði í veg fyrir að þetta endurtaki sig Ó formlegar viðræður fara nú fram á Alþingi um að skipa þverpólitíska nefnd um endurskoðun laga um nálgunarbann og brottvís­ un af heimili. Samkvæmt heimild­ um DV koma viðræðurnar í kjölfar þess að Hæstiréttur felldi á dögun­ um úr gildi þrjú nálgunarbönn lög­ reglustjórans á höfuðborgarsvæð­ inu gegn mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið gegn fyrrver­ andi sambýliskonum sínum. Ein þessara kvenna er Juliane Fergu­ son en hún flúði heimili sitt vegna heimilisofbeldis í fyrra og hef­ ur í þrjá mánuði dvalið í Kvenna­ athvarfinu. Fyrrverandi sambýlis­ maður hennar hefur viðurkennt að hafa sent samstarfsfélögum Juliane kynlífsmyndbönd af henni nokkrum vikum áður en Hæsti­ réttur felldi dóm sinn. DV sagði sögu Juliane um helgina. Þarf að skoða nánar „Lögregla túlkar lögin á einhvern annan hátt en Hæstiréttur, að því er virðist. Ef það er þannig að lögin eru ekki að ná fram því markmiði sem þeim er ætlað þá þurfum við að skoða það nánar,“ segir Björt Ólafs­ dóttir, þingmaður Bjartrar framtíð­ ar, í samtali við DV en hún tók mál­ ið upp á Alþingi í umræðum um störf þingsins í síðustu viku. „Við getum ekki boðið konum og börn­ um þessa lands upp á að þurfa að þola heimilisofbeldi vegna þess að við erum of svifasein eða erum að gera eitthvað annað. Það á ekk­ ert annað að ganga fyrir í störfum okkar á Alþingi en að vernda fólk gegn þess konar glæpum,“ sagði Björt meðal annars í ræðu sinni en hún er einnig fyrsti flutnings­ maður lagafrumvarps um bann við hefndarklámi. Þolir enga bið Undir þetta tók meðal annars Þor­ steinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins. „Ég verð að segja að ég er mjög sleginn yfir því sem kemur fram í viðtali við að­ stoðarlögreglustjórann á höfuð­ borgarsvæðinu, Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, um að Hæstiréttur hafi fellt úr gildi þrjú nálgunar­ bönn sem lögreglan í Reykjavík hafði sett,“ sagði hann og vísaði þar til viðtals Stöðvar 2 í síðustu viku við Öldu Hrönn. Þar segir að­ stoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að löggjaf­ arvaldið verði að grípa boltann ef lögin nái ekki þeim tilgangi sem til er ætlast. „Ef það er pláss fyrir mat á aðstæðum í þeim lögum sem koma í veg fyrir að nálgunar­ bann virki verðum við alþingismenn einfaldlega að skýra þessi lög,“ segir Þor­ steinn enn fremur. Hann segir ekki pláss fyrir að það sé mats­ atriði hverju sinni hvenær ofbeldismenn séu settir í nálgunarbann. „Það er skylda okkar að grípa þegar í stað í taumana og lagfæra þá lagabreytingu sem við gerðum á sínum tíma, til að koma í veg fyrir að þessir atburðir endur­ taki sig.“ Við þetta má bæta að stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingar­ innar sendi frá sér ályktun í síðustu viku þar sem hún sagðist harma ákvörðun Hæstaréttar. Skoraði hún jafnframt á stjórnvöld að gripa strax til aðgerða og kanna hverju það megi sæta að þessum aðilum, lög­ reglu og Hæstarétti, beri svo mikið í milli. „Finna þarf strax úrlausnir og annmarka sem kunna að vera er varða lög og reglur varðandi mála­ flokkinn svo þolendur heimilis­ ofbeldis njóti réttlátrar málsmeð­ ferðar. Þetta mál þolir enga bið,“ segir meðal annars í ályktuninni. n Um lög um nálgunarbann n Fyrir árið 2000 var úrræðið nálgunar- bann ekki að finna í íslenskum lögum. Hins vegar gat lögregla veitt áminningu ef einhver raskaði friði annars manns. Ef maður hélt áfram að raska friði annars manns, þrátt fyrir áminningu lögreglunn- ar, varðaði það sektum eða varðhaldi allt að sex mánuðum. Áminning lögreglunnar hafði gildi í fimm ár. n Þann 22. maí 2000 var lögum um með- ferð opinberra mála breytt og ákvæði um nálgunarbann tekið í gildi. Átti ákvæðið að bæta réttarstöðu brotaþola og veita þolendum heimilisofbeldis frekari vernd. n Alls féllu 47 úrskurðir um nálgunarbann fyrir héraðsdómstólum landsins á grund- velli ákvæðisins á árunum 2000 til 2009. Af þeim samþykkti héraðsdómur kröfu lögreglu 41 sinni, en hafnaði sex sinnum. n Þann 1. janúar 2009 tóku lög um nálgunarbann gildi. Helsta breytingin var að lögregla þurfti ekki lengur „rökstudda ástæðu“ til að ætla að aðili fremdi afbrot eða raskaði á annan hátt friði þess sem í hlut átti. Orðið „rökstudd“ var tekið út. Við mat á því hvort skilyrði fyrir beitingu nálgunarbanns væru fyrir hendi bættist við setning um að líta yrði til fyrri hegð- unar manns sem krafan beindist gegn og samskipta hans við þann sem vernda átti með banninu. Í heimilisofbeldismálum var þannig hægt að líta til þess ofbeldis sem átti sér stað áður en sambúð lauk. n Þann 10. júní 2011 samþykkti Alþingi ný lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Austurríska leiðin svokallaða var innleidd sem gefur lögreglustjóra heimild til að fjarlægja ofbeldismann af heimili og meina honum að koma þangað í allt að fjórum vikum. Hins vegar var orðið „rökstudd“ aftur sett í lögin. n Þann 24. maí 2012 var lögunum breytt. Ný málsgrein bæt tist við sem mælir fyrir um heimild til þess að kæra úrskurð héraðsdóms um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili til Hæstaréttar. Þurfum að skoða málið nánar Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, hóf umræðu um nálgunarbann á Alþingi í síðustu viku. Mynd RóbeRt Reynisson Mjög sleginn Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir alþingismenn þurfa að skýra lögin. Mynd sigtRygguR ARi gríðarlegt ósamræmi Hæstiréttur felldi á dögunum úr gildi þrjú nálgunarbönn lögreglustjórans á höfuðborgar- svæðinu. Mynd sigtRygguR ARi Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is 30. janúar 2015 Mat lögreglu og dómstóla ólíkt Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðar- lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir nauðsyn á uppbyggilegu samtali um þessi mál, bæði hjá lögreglu og lög- gjafanum. „Ef tilætlaður árangur er ekki að nást, eða ef lögin eru ekki að vernda þá sem til er ætlast, þá þarf löggjafinn væntanlega að endurskoða lögin,“ segir Alda í samtali við DV. Hún bendir á að samkvæmt sjöttu grein laganna eigi sér stað ákveðið mat. Þar segir orðrétt: „Nálgunarbanni og/ eða brottvísun af heimili verður aðeins beitt þegar ekki þykir sennilegt að frið- helgi brotaþola verði vernduð með öðr- um og vægari hætti. Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til.“ Alda Hrönn segir þetta vera matsatriði og þar séu lögreglan og dómstólar ekki endilega sammála. „Þá er tvennt í stöðunni. Við þurfum í fyrsta lagi að byggja betur undir mat okkar. Spurningin er hins vegar hvort það sé nóg. Eða hvort það þurfi einnig að skýra betur hvað felist í þessum orðum. Hvað þýðir að fara ekki strangar í sakirnar en nauðsyn ber til?“ spyr Alda. Alda bendir einnig á að lögregla hafi einungis sólarhring til að vinna í málinu frá því beiðni um nálgunarbann er lögð fram. „Málið getur aldrei verið tilbúið á 24 tímum, en maður hefur alltaf ákveðnar vísbendingar. Að því snýr þessi rökstuddi grunur. En það virðast vera gerðar frekar strangar sönnunarkröfur.“ Að lokum bendir Alda á að lögreglan taki einnig fulla ábyrgð á því sem að henni snýr. „Við drögum okkar lærdóm af þessum niðurstöðum og munum að sjálf- sögðu bæta okkar vinnulag,“ segir hún. „Lögregla túlkar lögin á einhvern annan hátt en Hæstiréttur, að því er virðist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.