Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 13
14 Fréttir Erlent Vikublað 3.–5. febrúar 2015 Höggva hendur og fætur af albínóum D æmi eru um að albínóar í Afríkuríkinu Tansaníu séu hundeltir eins og skepnur og þeir limlestir eða jafnvel myrtir. Ástæðan fyrir þessu er sú að sumir standa í þeirri trú að líkamshlutar albínóa færi þeim aukna heppni, hamingju og hagsæld – verð- mæti sem varla eru metin til fjár. Þetta þýðir að sumir eru tilbúnir að leggja mikið á sig og greiða hátt verð fyrir líkamshluta albínóa; hvort sem um er að ræða hendur, fætur eða allan lík- amann. Tíu milljónir fyrir líkamann Breska blaðið Daily Mail fjallaði um málið í vikunni en áður hefur verið greint frá grimmum örlögum albínóa í ríkjum Afríku, einna helst Tansaníu, Keníu og Búrúndí. Að því er fram kemur í umfjöllun Daily Mail eru sumir reiðubúnir að greiða sem nem- ur allt að hálfri milljón íslenskra króna fyrir útlim albínóa. Og þeir efnamestu eru sagðir reiðubúnir að greiða allt að tíu milljónum fyrir líkama albínóa. Útlimunum, líkamsleifunum, er svo komið í hendur töfralækna sem búa til mixtúrur eða „heilsudrykki“ úr þeim. 74 myrtir hið minnsta Tölur um fjölda albínóa sem drepnir hafa verið á undanförnum árum í Tansaníu eru á reiki. Ekki eru mörg ár síðan byrjað var að taka saman tölur markvisst um albínóa sem verða fyrir ofsóknum og árásum. Síðan þá hafa 74 verið myrtir og 59 verið limlestir en lifað af. Jafnvel hinir látnu eru ekki ör- uggir því að minnsta kosti sextán sinn- um hafa grafarræningjar látið greipar sópa þar sem albínóar hvíla. Hafa ber í huga að þetta eru bara dæmi sem vit- að er um. Þau gætu verið mun fleiri. Eins og fjallað er um í ítarefni hér á síðunni stafar albínismi af gölluðu litargeni. Á Vesturlöndum er talið að einn af hverjum tuttugu þúsundum þjáist af þessum galla en í Tansaníu er hlutfallið mun hærra, eða einn af hverjum fjórtán hundruðum. Numin á brott Í umfjöllun Daily Mail er sagt frá ný- legu dæmi þar sem fjögurra ára stúlka, Pendo Emmanuelle Nundi, var numin á brott af heimili sínu. Þetta gerðist í desember og voru faðir henn- ar og frændi handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Stúlkan hefur enn ekki fundist þrátt fyrir mikla leit og loforð lögreglu um peningaverð- laun fyrir þann sem getur gefið upp- lýsingar um hvarfið. Góðgerðasamtök í landinu, sem starfa í þágu albínóa, eru ekki vongóð um að hún finnist á lífi. Mwigulu Matonange var bara tíu ára þegar tveir menn réðust á hann þegar hann gekk heim úr skólanum ásamt vini sínum. Mennirnir biðu ekki boðanna og hjuggu af honum vinstri handlegginn áður en þeir létu sig hverfa. „Þeir héldu mér niðri líkt og þeir væru að slátra geit,“ sagði hann í samtali við IPP Media eftir árásina sem átti sér stað í febrúar 2014. Mwigulu hafði aldrei séð mennina fyrr. Skjótfenginn gróði Í tilfelli Pendo var engin tilviljun að spjótin beindust að föður hennar og frænda. Faðir hennar tók sér góð- an tíma í að tilkynna hvarfið til lög- reglu og leitaði ekki til nágranna sem gætu hafa orðið vitni að hvarfinu. Þess eru dæmi að foreldrar eða aðrir fjöl- skylduvinir snúist gegn ástvinum sín- um í von um skjótan gróða. Það gerð- ist í tilfelli 38 ára konu sem þjáðist af albínisma. Eiginmaður hennar og fjórir menn réðust á hana með sveðju í febrúar 2014 meðan hún svaf. Sam- kvæmt umfjöllun Daily Mail, sem vís- ar í skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum, var átta ára dóttir hjónanna vitni að atvikinu. Fáir sakfelldir „Í hvers konar stríði erum við þegar foreldrar gera svona? Hverjum getum við treyst? Þú veist ekkert hver er óvinur þinn,“ segir Josephat Torner sem starfar fyrir mannréttindasamtök í Tansaníu. Josephat, sem er albínói, telur að forríkir aðilar standi að baki árásunum. Annað geti ekki verið enda séu menn tilbúnir að borga svim- andi háar fjárhæðir fyrir líkamshluta albínóa, upphæðir sem nema marg- földum mánaðarlaunum, jafnvel árs- launum, margra íbúa landsins. Undir þetta tekur Kanadamað- urinn Peter Ash sem setti á lagg- irnar góðgerðasamtökin Under the Same Sun árið 2009. „Í landi eins og Tansaníu, sem er 25. fátækasta ríki heims, eru stjórnmála- eða viðskipta- menn eina fólkið sem á nóg af pen- ingum,“ segir hann. Erfitt hefur reynst að koma lögum yfir þá sem ráðast á albínóa eða skipuleggja árásirnar og hafa einungis tíu manns verið ákærðir fyrir að ráðast á albínóa með það fyr- ir augum að limlesta þá. Enginn þeirra var kaupandi að útlimunum. „Þeir einu sem sakfelldir hafa verið eru töfralæknar eða þeir sem framkvæma árásirnar. Enginn hefur þorað að nefna kaupandann – jafnvel þó að viðkom- andi hafi fengið dauðarefsingu,“ seg- ir Peter. Segja má að framundan séu erfiðir tímar fyrir albínóa í Tansaníu. Í ágúst fara fram kosningar í landinu og óttast góðgerðasamtök að stjórn- málamenn og þeir sem verða í fram- boði freistist til að leita til töfralækna í von um gott gengi. „Á kosningaári fara albínóar í felur,“ segir Peter. Of lítil skref? Þó að árásir virðist ekki vera á undan- haldi hafa stjórnvöld í Tansaníu stigið skref til að stemma stigu við þeim. Ný- lega var starfsemi töfralækna bönnuð í landinu en bannið tekur þó ekki til jurtalækna, samkvæmt umfjöllun Daily Mail. Innanríkisráðherra lands- ins, Isaac Nantanga, lét hafa eftir sér að „þessir svokölluðu töfralæknar“ stæðu á bak við morðin á albínóum. Hvort þetta skref breyti einhverju fyrir albínóa á eftir að koma í ljós. Kvikmyndagerðarmaðurinn Harry Freeland dvaldi í Tansaníu í sjö ár. Hann fylgdi Josephat og öðrum tansanískum albínóum eftir vegna heimildamyndar sem hann gerði og kom út árið 2012, In the Shadow of the Sun. Aðspurður hvort hann telji að stjórnvöld séu að taka nógu stór skref, segir hann: „Við skulum ekki draga ályktanir strax. Við höfum heyrt svona yfirlýsingar áður,“ segir hann. Peter tekur undir þessi orð og bendir á að árið 2009 hafi forseti landsins, Jakaya Kikwete, fullyrt að starfsemi töfralækna yrði bönnuð. Þessi ákvörðun olli miklu fjaðrafoki meðal margra íbúa og var loks fallið hljóðlega frá lagabreytingunni. Josephat hefur lagt líf sitt í hættu á undanförnum árum og ferðast til af- skekktra þorpa þar sem hann hefur haldið fyrirlestra um albínóa og þá staðreynd að þeir séu ekkert öðru- vísi en annað fólk. Hann ætlar að halda baráttu sinni ótrauður áfram. „Við erum eins og fangar í eigin landi vegna húðlitar okkar. Það eina sem við viljum er að lifa eins og venjulegt fólk.“ Stafar af gölluðu litargengi Á Vísindavefnum má finna athyglis- verða umfjöllun um albínisma eft- ir líffræðinginn Þuríði Þorbjarnar- dóttur. Þar kemur fram að albínismi stafi af gölluðu litargeni. „Þetta gen er víkjandi sem þýðir að barn þarf að fá það frá báðum foreldrum til þess að áhrifin komi fram. Hafi einstaklingur eitt eðlilegt litargen sjást engin merki um albínisma hjá viðkomandi. En eignist þessi einstaklingur barn með öðrum einstaklingi sem einnig hefur eitt gallað litargen eru fjórðungs líkur á því að barnið verði albínói. Talið er að einn einstaklingur af hverjum 20.000 sé albínói,“ segir í greininni. Þá segir að eðlilega litargenið stuðli að myndum litarefnisins melaníns í húð, hári og augum. Hafi einstakling- ur erft albínóagenið frá báðum for- eldrum sínum myndast lítið eða ekk- ert litarefni í húð hans, hári og augum og hann verður albínói. n n Borga allt að hálfri milljón fyrir útliminn n Trúa að líkamshlutarnir færi þeim heppni Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Fórnarlamb Pendo Sengerema varð fyrir fólskulegri árás í fyrrasumar. Nafna hennar, Pendo Emmanuelle Nundi, sem ráðist var á í desember hefur enn ekki fundist. „Þú veist ekkert hver er óvinur þinn Baráttumaður Josephat hefur lagt líf sitt í hættu og ferðast til afskekktra þorpa í Tansaníu þar sem hann ræðir við fólk um albínisma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.