Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Qupperneq 16
Skrýtið 17Vikublað 3.–5. febrúar 2015 Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu Frumsýning 21. febrúar mmtudag 5, febrúar Uppselt föstudag 13. febrúar örfáir miðar mmtudagur 26. febrúar Fjölskyldufarsi ársins Guðni Gíslason FP Frosti Harmageddon Miðapantanir í síma 565 5900 og midi.is Handtekin fyrir kynlífsmyndband k endra Sunderland, fyrrver- andi nemandi í Oregon State University, hefur valdið miklu fjaðrafoki meðal skólastjórnenda. Fjölmiðl- ar vestanhafs og austan hafa greint frá því að stúlkan, sem er 19 ára, hafi tekið upp kynlífsmyndband á bókasafni skólans, og hlaðið því upp á þekkta klámsíðu; pornhub.com. 260 þúsund á nokkrum dögum Athæfið hefur að vonum vakið mikla athygli, ekki síst á meðal nemenda skólans. Í myndbandinu sést stúlkan bera sig og fitla við sig í heilan hálf- tíma. Myndbandið fór fyrst á Porn- hub en síðan í víðtæka dreifingu inn- an veggja skólans. 260 þúsund manns horfðu á myndbandið á fáeinum dög- um áður en það var tekið af klámsíð- unni – að því er KEZI-TV greinir frá. Lögreglunni í Oregon var ekki skemmt, frekar en skólastjórnendum, og handtók Sunderland fyrir óviður- kvæmilega hegðun á almannafæri. Þar var hún kærð og yfirheyrð, áður en henni var sleppt á nýjan leik. Í við- tölum KEZI kemur fram að nemend- um hafi sumum verið brugðið vegna athæfis Kendru og fundist hegðunin ósæmileg. Mikið notað bókasafn Flestir voru þó undrandi á því að henni hefði tekist að framkvæma verknaðinn óséð í góðan hálftíma, enda er mikil umferð um bókasafnið alla daga. „Mér finnst alltaf vera fullt þarna. Ég skil ekki hvernig einhver getur gert þetta án þess að koma upp um sig,“ segir Shelby Wilson við KEZI. Talsmaður skólans, Steven Clark, segir að bókasafnið sem um ræðir sé vaktað af eftirlitsmyndavélum. Ómögulegt sé aftur á móti að vakta hvern ein- asta fermetra hverju sinni. „Ímynd- aðu þér; þetta eru 32 þúsund fer- metrar. Þarna fara 30 þúsund manns um í hverri einustu viku,“ segir hann við KEZI. Skólastjórnendur segja að Sunder land hafi ekki verið skráður nemandi við skólann þegar mynd- bandið var tekið upp. n baldur@dv.is Ófeimnar stúdínur Sunderland er ekki fyrsti háskólanem- inn sem vendir kvæði sínu í kross með því að reyna fyrir sér í klámi. Belle Knox, fyrrverandi nemandi við Duke University, er líklega hvað þekktust en hún reyndi að eigin sögn fyrir sér í klámmyndaiðnaðinum til þess að greiða fyrir sérkennslu í náminu. Önnur stúlka, í Florida State University, komst nýlega í fréttirnar þegar hún greindi frá því að hún hefði fengið morðhótanir frá heima- landi sínu Líbanon vegna ferils hennar í klámmyndabransanum. n fyrrverandi nemandi tók upp kynlífsmyndband á skólabókasafni n deildi því á Pornhub „Ég skil ekki hvernig einhver getur gert þetta án þess að koma upp um sig. Var handtekin Kendra var að sögn ekki lengur nemandi við skólann þegar hún lét til skarar skríða. Beraði sig Kendra olli nokkru fjaðrafoki með uppátæki sínu. Hér er skjáskot úr myndbandinu. e ftirlaunaþeginn Doug Yeomans trúði vart sínum eigin augum þegar hann fékk rukkun frá breska skattinum upp á 4,7 millj- arða punda, jafnvirði rúmlega 940 milljarða króna, á dögunum. „Mér var heldur brugðið þegar ég sá upphæðina. Maður er vanari því að sjá örlítið lægri upphæð- ir,“ segir Yeomans sem er 78 ára og búsettur í Derbyshire á Englandi. Yeomans fékk bréf en í því stóð að 950 milljónir punda, 190 millj- arðar króna, yrðu teknar af reikn- ingi hans í hverjum mánuði næstu fimm mánuðina. Yeomans, sem er tveggja barna faðir, segir að líklega hafi skatturinn farið mannavillt á honum og auðkýfingnum Richard Branson. „Þetta var svo fáránleg upp- hæð að ég óttaðist aldrei að þetta væru ekki mistök,“ segir Yeomans í samtali við Sky News. Það kom á daginn þegar Yeomans náði loks sambandi við starfsmenn skattsins. „Það er auðveldara að fá viðtal við páfann en ná sambandi við skatt- inn,“ segir Yeomans glettinn í við- talinu og bætir við að starfsmaður- inn hafi tjáð honum að um mistök væri að ræða. Talsmaður skattsins segir í samtali við Sky News að um aug- ljós mistök hafi verið að ræða. „Við tjáum okkur ekki um málefni einstakra aðila en þegar við gerum mistök reynum við að leiðrétta þau eins fljótt og kostur er og biðjast af- sökunar,“ segir talsmaðurinn. Hvað sem því líður voru mistökin leiðrétt og ætti Yeomans því að geta andað léttar. n rukkaður um 900 milljarða Breska skattinum urðu á mistök Mistök Doug Yeomans er hér með bréfið frá breska skattinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.