Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 18
Umræða 19Vikublað 3.–5. febrúar 2015 Svo hefur lífið auðvitað verið samfelld leiksýning Mannréttindi í ákvörðunarrétti einstaklings um sína dauðastund Bryndís Schram hefur upplifað margt á langri ævi, bæði gleði og sorgir. – DV Steinunn Eldflaug Harðardóttir birtist óvænt í japönskum sjónvarpsþætti. – DVSylviane Lecolutre var viðstödd þegar maður hennar framdi sjálfsvíg með stuðningi í Sviss. – DV 1 „Það dó eitthvað inni í mér þegar ég missti Snæfríði“ Bryndís Schram er ein af glæsilegustu konum þessa samfélags, og hefur staðið við hlið manns síns, Jóns Baldvins Hannibalssonar, í gegnum súrt og sætt. Stóra höggið kom í janúar 2013, þegar Snæfríður, dóttir þeirra, lést skyndilega. „Ég er farin að reyna að líta björtum augum á framtíðina núna. Þetta er svo mikið óréttlæti því börnin eru framlenging af manni sjálfum og þau eiga að lifa lengur,“ segir Bryndís. Lesið: 46.118 2 Helgi í Góu vill byggja blokk fyrir starfsfólk sitt Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við sælgætisframleiðandann Góu, vill byggja þriggja hæða fjölbýlishús á lóð við Tjarnarvelli í Hafnarfirði. Um 20 íbúðir yrðu í húsinu en lóðin átti áður að fara undir KFC-veitingastað. Helgi er ósáttur við bæjaryfirvöld sem segja fjölbýlishúsið ekki passa inn í götuna. Lesið: 29.430 3 Innsigluðu ást sína í Heiðmörk „Það var fyrst í stúdentsprófunum sem eitthvað gerð- ist. Við fórum upp í Heiðmörk saman og það gerði útslagið,“ segir Bryndís Schram um upphaf ástarsambands hennar og Jóns Baldvins Hannibals- sonar. Lesið: 27.708 4 Þættir teknir upp á Reyðarfirði fá skelfilega dóma í stóru miðlunum Breska þáttaröðin Fortitude, sem var tekin upp hér á landi, fær falleinkun í nokkrum af stærstu fjölmiðlum veraldar. Sagan er sögð of flókin, hreimur leikaranna, sem er norrænn, beinlínis vandræðalegur og handritið er sagt vera skelfilegt. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn fá þó rós í hnappagatið, því útliti þáttanna er hrósað í hástert. Lesið: 25.223 5 Justin Bieber brjálaðist: Tvær tólf ára birtust í sundlaugarpartíinu hans Justin Bieber var langt ekki sáttur við tvær tólf ára stelpur sem laumuðu sér inn í húsgarðinn við heimili hans á dögunum. Lesið: 22.410 E nn og aftur erum við minnt á afleiðingar markaðsvæð- ingar kvótakerfisins, Gríms- ey blæðir og byggð í eynni í hættu. Skemmst er að minnast afleiðinga ákvörðunar eigenda Vísis í Grindavík þegar þeir fóru með kvótann og vinnsl- una frá Djúpavogi og Þingeyri. En þetta eru ekki einu staðirn- ir sem illa standa vegna fiskveiði- stjórnunarstefnunnar. Hvert einasta byggðarlag, sem á einhvern hátt byggir afkomu sína nær eingöngu á útgerð, á undir högg að sækja. Fjársterkir aðilar geta hæglega gert heilu byggðarlögin óbyggileg á stuttum tíma, nánast á einni nóttu með kvótakaupum. Hinir stóru og fjársterku gleypa þá minni í grein- inni og öllu er lýtur að starfsöryggi íbúa eða öðrum samfélagslegum sjónarmiðum er hent fyrir róða. Í þessum litlu þorpum snertir það hvern einasta íbúa ef kvóti er seldur úr byggðarlaginu. Þar eru fjölskyldur sem hafa á einn eða annan hátt lagt sitt af mörkum til þjóðfélagsins og telja sig hafa öðl- ast einhvern rétt til þess að búa þar sem þær kjósa en því er ekki að heilsa. Ekki er bara um að ræða að vinnan sé í hættu eða tekin frá þeim heldur eru allar eigur þess, m.a. fasteignir, sviptar verðgildi sínu og allt vegna markaðsvæð- ingar kvótakerfisins. Það er að mínu mati svo andstætt öllum rökum að mark- aðssetja fiskinn í sjónum með þeim hætti sem nú er og þar með heilu byggðarlögin að það nær nánast engri átt. Byggðafjandsamlegt fiskveiðistjórnunarkerfi Fiskveiðistefnan á auðvitað að vera hluti af byggðastefnunni og miða að því að byggð haldist í landinu. En núverandi kerfi vinnur að mínu mati algjörlega á móti byggða- sjónarmiðum sem sýnir sig best í þeim dæmum sem ég tók hér að framan. Að ekki sé talað um þær byggðir sem veikst hafa mörg undanfarin ár vegna kaupa og sölu á kvóta. Sú pólitíska ákvörðun sem felst í fiskveiðistjórnunarkerfinu, að láta handhafa kvótans hafa sjálfdæmi um ráðstöfun og framsal veiði- heimilda, eykur hættuna á að enn fleiri minni byggðarlög hreinlega leggist af. Það er afleitt kerfi sem er þannig úr garði gert að ákvarð- anir stærri útgerða, í eiginhags- munaskyni, hefur áhrif á afkomu fjölskyldna sem þær svo flytja hreppaflutningum. Fjölskyldur sem hafa valið sér búsetu og lagt sitt af mörkum til að viðhalda byggð í landinu. Auðlindaákvæði í stjórnarskrá Það er dapurt að almenningur fái engu ráðið um þróunina í sjávar- útveginum og sé leiksoppur ör- fárra handhafa kvótans hverju sinni. Þrátt fyrir vilja stórs hluta þjóðarinnar hefur okkur ekki bor- ið gæfa til að setja nýja stjórnarskrá sem m.a. tryggir eign þjóðarinn- ar á sameiginlegum auðlindum og sanngjarnt gjald fyrir afnot þeirra. Því var ítrekað hótað á síðasta kjörtímabili, m.a. af hálfu útvegs- manna, að ef það yrði gert yrði far- ið með slíkar breytingar á kerfinu fyrir dómstóla og skaðabótakrafa gerð á ríkið. Ef breyta á einhverju til hins betra í samfélaginu þá er auð- lindaákvæði í stjórnarskrá sem ver eignarrétt þjóðarinnar nauðsyn- legt. Það er ekki hægt að karpa um fiskveiðistjórnunarkerfið í mörg ár og láta byggðunum blæða út. Við þurfum að ná sáttum og tryggja undirstöður byggðarlaganna sem byggja lífsafkomu sína nær ein- göngu á sjávarútvegi og binda aflaheimildir við byggðarlögin. En framar öllu – þessi auðlind á ekki að vera til sölu. n Er okkur alvara með byggð í öllu landinu? Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður Vinstri grænna Kjallari Myndin Hælisleitendur mótmæla Sjö hælisleitendur mótmæltu seinagangi við afgreiðslu á hælisumsóknum þeirra í húsakynnum kærunefndar útlendingamála við Skuggasund. Í hópnum var meðal annarra þriggja barna móðir frá Alsír sem beðið hefur í tvö ár eftir niðurstöðu í máli sínu. Mynd SiGtryGGur Ari „Það er dapurt að almenningur fái engu ráðið um þróun- ina í sjávarútveginum og sé leiksoppur örfárra handhafa kvótans hverju sinni Mest lesið á DV.is Eiginlega kastað út í djúpu laugina

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.