Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Blaðsíða 20
Umræða Stjórnmál 21Vikublað 3.–5. febrúar 2015 Veikindin gerð að féþúfu n Einkareksturinn og heilbrigðið n Gróðahvöt megi ekki verða til þess að fjölga sjúklingum Þ egar samningar tókust milli ríkisins og lækna í nýliðnum mánuði eftir langvinn kjara- átök var jafnframt undirrit- uð yfirlýsing forsætis-, heil- brigðis- og fjármálaráðherra annars vegar og formanna Læknafélags Ís- lands og Skurðlæknafélags Íslands hins vegar um markmið og upp- byggingu heilbrigðiskerfisins. Sjöunda grein þessarar yfirlýs- ingar varð tilefni til sérstakrar um- ræðu á Alþingi á mánudag. Þar segir að fram skuli fara heildstæð skoðun á skipulagi, uppbyggingu og fjár- mögnun heilbrigðiskerfisins. „Opna þarf möguleika á fjölbreyttum rekstr- arformum sem byggja á virkri þjón- ustu- og verkefnastýringu, skýrum gæðakröfum samhliða jafnræði í greiðslum óháð rekstrarformi.“ Laumað inn í dulargervi Málshefjandi var Svandís Svavars- dóttir, Vinstri hreyfingunni – grænu framboði. Hún nefndi að heil- brigðis- og menntakefið íslenska væri dýrmæt eign sem almenning- ur gæti gengið að án tillits til efna- hags. Það væri gömul saga og ný að hægriflokkar hafi litið á þessa þjón- ustu sem markaðsvöru sem einka- aðilar mættu hagnast á og ættu að geta gert sér að féþúfu. „Kannski væri þetta skýrasti greinarmunur- inn á hægri og vinstri í hefðbundinni pólitík. Það þyrfti því ekki að koma á óvart að hægristjórnin sem nú ríkti legði áherslu á að færa samfélagið meira að því að þessir hornsteinar velferðarakerfisins yrðu varningur á markaði. Svandís sagði að það kæmi því ekki á óvart að inn í yfirlýsinguna skyldi hafa verið laumað setningu um aukna einkavæðingu sem þar væri kallað fjölbreytt rekstrarform. „Það er sama orð og iðulega er notað til að kynna einkavæðinguna til leiks undir rós,“ sagði Svandís og nefndi hliðstæðar setningar úr stefnuyfir- lýsingu ríkisstjórnar Geirs H. Haarde frá 2007 og annarra ríkisstjórna allt aftur til ársins 1995. Vildarvinir í startholum „Ætlar heilbrigðisráðherrann að koma af stað einkafyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu? Hvar? Hann veit væntanlega að einkavæddasta heilbrigðisþjónusta í veröldinni er í Bandaríkjunum og er jafnframt sú dýrasta,“ sagði Svandís og hnykkti á því að sýnt hefði verið fram á það þráfaldlega að einkavædd heilbrigð- isþjónusta væri almennt dýrari en sú ríkisrekna. Hún gagnrýndi sjálf- stæðismenn fyrir að gefa sig fyrst að rekstrarformi, til dæmis um rekstur sjúkrahótela, frekar en að ræða vand- ann á legudeildum í heilbriðgiskerf- inu. Og þar gæfu sig fram vildarvin- ir þeirra sem væru í startholunum þegar verkið væri boðið út. „Svo þeir geti boðið í sjúklingana og grætt á þeim. Hann (heilbriðgisráðherra) er fangi þeirrar stefnu sem hann stend- ur fyrir. Hann er velviljaður en hún er honum fjötur um fót. Hún snýst nefnilega ekki um mannúð nema á yfirborðinu, heldur þegar grannt er skoðað snýst stefnan um gróða.“ Þrautreynd rekstrarform Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra nefndi í upphafi að yfir- lýsingin, sem nefnd er hér að ofan, hafi fyrst og fremst snúist um að læknar og stjórnvöld ætluðu að taka höndum saman um að skapa bætt- ar vinnuaðstæður og auka hag- kvæmni í heilbrigðiskerfinu. Hér á landi væru margvísleg rekstrarform og hefðu verið lengi sem byggðust á samningum við ríkið. „Það er al- gerlega ástæðulaust af þessu tilefni að ala á einhvers konar hugmynd- um um það að fram undan séu ein- hverjar byltingarkenndar breytingar sem eigi sér stað á grunni þeirrar yf- irlýsingar sem hér er vitnað til. Ég leyfi mér að fullyrða það að hér eftir sem hingað til muni þessi ríkisstjórn halda áfram að vinna að því að bæta heilbrigðisþjónustuna með það að markmiði að auka gæði og draga úr kostnaði. Kristján nefndi dæmi um marg- vísleg rekstrarform; sjálfseignar- stofnanir eins og Grund, sem starf- rækt hafi öldrunarþjónustu í níutíu ár. Sjúkraflutningar séu ekki á ábyrgð ríkisins heldur séu þeir reknir í sam- vinnu við sveitarfélögin og engar kröfur séu þar um breytt rekstrar- form. Hann nefndi tannlækna sem reki stofur sínar sem einkastofur en hafi gert samninga við ríkið um ókeypis tannlækningar fyrir börn. Aðrar læknastöðvar væru í einka- rekstri á höfuðborgarsvæðinu og þar að auki mætti nefna meðferðar- úrræði eins og SÁÁ, Reykjalund og loks heimaþjónustu í hjúkrun og við mæður. „Það er mikilvægt að gera greinarmun á ríkisrekstri og opin- berri þjónustu ... Það hefur verið víð- tæk samstaða um það hér á landi að heilbrigðisþjónustan eigi að vera á ábyrgð hins opinbera og aðgengileg borgurunum án tillits til efnahags. Í áranna rás hefur reynslan sýnt og sannað að fjölbreytt rekstrarform eru vel til þess fallin að bæta og auka heilbrigðisþjónustu við landsmenn ... Rekstrarformið er algert auka- atriði í þeim efnum. Það er grund- vallaratriði að ríkið sem er ábyrgðar- aðili þessa málaflokks geri sér grein fyrir því hvaða þjónustu það ætlar að kaupa og vill veita íbúum sínum til þess að geta eflt og stuðlað að gæð- um og öryggi við þann grundvallar- þátt sem hér er verið að ræða um.“ Minni samhæfing – meiri eft- irlitskostnaður „Punkturinn um fjölbreyttara rekstr- arform vekur alvarlegar áhyggjur,“ sagði Sigríður Ingibjörg Ingadótt- ir, Samfylkingunni. „Á að einkavæða frekar heilbrigðisþjónustuna þvert á vilja almennings?“ Sigríður Ingi- björg bætti við að almenningur vildi að heilbrigðisþjónustan væri óháð efnahag og hann vildi ekki að skatt- fé myndaði arð til einstaklinga sem gerði þjónustusamninga um heil- brigðisþjónustu við ríkið. „Einkarekstur er dýrari því sveigj- anleiki verður minni í kerfinu, sam- hæfingin minni og eftirlitskostnaður meiri. Forsætisráðherra hefur gef- ið í skyn að aukinn einkarekstur sé ekki á dagskrá. Fjármálaráðherra er í hrópandi andstöðu og telur einka- rekstur vel koma til greina auki hann skilvirkni,“ sagði Sigríður Ingibjörg og taldi orð hans bera vott um slaka inn- sýn inn í íslenskt heilbrigðiskerfi „og geri sér ekki grein fyrir því að stærsti vandi þess sé fjárskortur og lítið taumhald á einkarekstri“. Hún spurði loks hvort fjármálaráðherra þyrði ekki að greina frá fyrirætlunum sínum. Meiri fjöldi – meiri gróði Jón Þór Ólafsson, Pírataflokknum, tók til umræðu um frjálst framtak og gróðavonina. „Þau eru svo dugleg við að skapa og halda í kúnnann. Það er tilgangurinn ... Þegar við ætlum að nota það rekstrarform þurfum við að spyrja okkur: Ætlum við að nota það rekstrarform þar sem við viljum hafa minna af kúnnum? Ef kúnninn er fangi viljum við ekki einkavæða fangelsi vegna þess að við viljum ekki hagsmunaaðila í þjóðfélaginu sem hefur hag af því að fjölga föngum. Þannig er það í Bandaríkjunum og þar hefur sprottið upp gríðarlega stór og sterkur iðnaður sem hefur áhrif á löggjafann til þess að ná – innan gæsalappa – fleiri kúnnum.“ Jón Þór segir því af þessum sökum að tekið er upp rekstrarform sem byggist á gróða sé einnig búið að byggja undir hags- muni sem tengist því að fjölga við- skiptavinum heilbrigðiskerfisins. n Dýrara kerfi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir: „Einkarekstur er dýrari því sveigjanleiki verður minni í kerfinu, samhæfingin minni og eftirlitskostnaður meiri. MynD Sigtryggur Ari Deilt á einkavæðingaráform Svan- dís Svavarsdóttir: „Hún snýst nefnilega ekki um mannúð nema á yfirborðinu, heldur þegar grannt er skoðað snýst stefn- an um gróða.“ Fækkum viðskiptavinum Jón Þór ólafsson: Ef kúnninn er fangi viljum við ekki einkavæða fangelsi vegna þess að við viljum ekki hagsmunaaðila í þjóðfélaginu sem hefur hag af því að fjölga föngum. MynD Sigtryggur Ari Jóhann Hauksson johannh@dv.is Þrengingar Deilt var um það á Alþingi hvort aukinn einkarekstur í heilbrigðis- þjónustu bæti þjónustuna og meðferð fjár. MynD guðMunDur VigFúSSon Þrautreynd rekstrarform Kristján Þór Júlíusson: „Það er algerlega ástæðulaust af þessu tilefni að ala á einhvers konar hugmyndum um það að fram undan séu einhverjar byltingakenndar breytingar sem eigi sér stað á grunni þeirrar yfirlýsingar sem hér er vitnað til. MynD Sigtryggur Ari „Það er sama orð og iðulega er notað til að kynna einkavæðinguna til leiks undir rós Svandís Svavarsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.