Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Síða 25
Vikublað 3.–5. febrúar 201526 Sport
7 Romelu Lukaku
Everton
Keyptur frá: Chelsea
Kaupverð: 28 milljónir punda
n Romelu Lukaku lék sem láns-
maður hjá Everton á síðustu leik-
tíð þar sem hann stóð sig frábærlega,
raunar svo vel að Everton ákvað að
splæsa 28 milljónum punda í þennan
stóra og stæðilega belgíska
framherja. Á síðustu leiktíð
skoraði hann 15 mörk og lagði
upp 9 til viðbótar í deildinni
með Everton á 2.598
mínútum. Samkvæmt því
skoraði hann eða lagði
upp á 108 mínútna
fresti að meðaltali. Á
þessu tímabili hefur
hann skorað 7 mörk
og lagt upp 2 á 1.807
mínútum sem gerir mark
eða stoðsendingu á 200
mínútna fresti að meðaltali. Lukaku
hefur ekki náð að fylgja eftir góðri
frammistöðu á síðustu leiktíð.
Hátt verð
alls ekki
ávísun
á árangur
n Sjö dýrustu kaup tímabilsins
í úrvalsdeildinni gerð upp
n Chelsea gerði bestu kaupin
T
íu dýrustu leikmenn ensku
úrvalsdeildarinnar sem
keyptir voru fyrir tímabil-
ið kostuðu samtals tæplega
300 milljónir punda, eða 61
milljarð króna á núverandi gengi.
Á meðan sumir þessara leikmanna
hafa slegið í gegn hafa aðrir átt erfitt
uppdráttar eða byrjað tiltölulega
hægt. DV leggur hér mat á kaup-
in á sjö þessara tíu leikmanna og
hvort viðkomandi hafi staðið undir
væntingum eða ekki. n
2 Alexis Sanchez Arsenal
Keyptur frá: Barcelona Kaupverð: 33 milljónir punda
n Það kom mörgum á óvart að Barcelona skyldi selja Alexis
Sanchez enda skoraði hann 21 mark á síðustu leiktíð. Koma
Luis Suarez til Barcelona gerði það þó að verkum að Sanchez
ákvað á róa á önnur mið enda hefði leiktími hans ef til vill
minnkað. Eins og flestir vita hefur Alexis Sanchez slegið í gegn hjá Arsenal
og borið sóknarleik liðsins uppi á löngum köflum. 18 mörk í 31 leik, þar af
12 í deild, segir allt sem segja þarf um frammistöðu þessa frábæra
leikmanns. Kaupin á Sanchez eru tvímælalaust ein af kaupum
tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.
1 Angel di Maria Manchester United
Keyptur frá: Real Madrid Kaupverð: 59,7 milljónir punda
n Stuðningsmenn Manchester United bundu miklar vonir við kaupin
á Angel di Maria. Þessi 26 ára leikmaður hafði átt góðu gengi að fagna
með Real Madrid og því aðeins rökrétt að ætla að það sama yrði raunin hjá
Manchester United. Di Maria byrjaði vel hjá United; skoraði 3 og lagði upp 6 mörk í fyrstu tíu
leikjum United í deildinni. Hann meiddist í lok nóvember en kom til baka í byrjun janúar á nýjan
leik. Síðan þá hefur Di Maria ekki náð sér almennilega á strik og verða efasemdaraddir
sífellt háværari. Þessi frábæri leikmaður hefur þó nægan tíma til að blása á þær raddir
en hann þarf að fara spila og gefa af sér eins og 60 milljóna punda leikmaður.
óvíst
3 Eliaquim Mangala Manchester City
Keyptur frá: Porto Kaupverð: 32 milljónir punda
n Áður en Manchester City festi kaup á þessum 23 ára
varnarmanni frá Porto voru margir sem töldu hann
í hópi efnilegustu varnarmanna heims. Enn sem
komið er hefur Mangala ekki sýnt að hann eigi heima
í þeim hópi. Eins og dæmin sanna getur verið erfitt
fyrir unga en fokdýra leikmenn að standa undir væntingum
strax. Þeir þurfa oft tíma til að aðlagast og verða stundum
að fá að njóta vafans. Mangala er stór og stæðilegur varnar-
maður og hefur tímann á sínu bandi. Miðað við frammistöðu hans
hjá City er samt ekki margt sem bendir til þess að þarna sé á
ferðinni leikmaður sem stendur undir verðmiða sínum.
5 Cesc Fabregas Chelsea
Keyptur frá: Barcelona Kaupverð: 30 milljónir punda
n Cesc Fabregas hafði sannað gildi sitt í ensku úr-
valsdeildinni með Arsenal og því vissu forráðamenn
Chelsea að hverju þeir gengu þegar þeir
ákváðu að kaupa þennan magnaða
miðjumann. Eins og flestir vita gengu
hlutirnir ekki upp hjá Fabregas hjá
Barcelona og virðist leikstíll
ensku úrvalsdeildarinnar ein-
faldlega henta honum betur.
Það sem af er tímabils hefur
Fabregas lagt upp 18 mörk í 27 leikj-
um sem er ótrúlegur árangur. Þegar
Chelsea skorar eru yfirgnæfandi
líkur á að Fabregas hafi
komið að því marki
með einum eða
öðrum hætti.
Þessi galdra-
maður hefur
svo sannar-
lega reynst
Chelsea vel í
vetur.
4 Diego Costa Chelsea
Keyptur frá: Atletico Madrid Kaupverð: 32 milljónir
punda
n Diego Costa sló í gegn hjá Atletico Madrid á síðustu
leiktíð þegar hann skoraði 36 mörk í 52 leikjum. Chelsea
þurfti nauðsynlega á góðum framherja að
halda fyrir tímabilið og tók José Mourinho
þá ákvörðun að fá Costa í sínar raðir.
Hann sér væntanlega ekki eftir
þeirri ákvörðun enda hefur
Costa verið besti framherji
ensku úrvalsdeildarinnar í
vetur. Hann hefur skorað 17
mörk í 25 leikjum en öll mörkin hefur hann
skorað í úrvalsdeildinni. Hann er sniðinn að
leikstíl Chelsea undir stjórn Mourinhos og á líklega bara
eftir að verða ennþá betri. Kaup Chelsea á þessum 26
ára leikmanni eru klárlega ein af kaupum tímabilsins.
6 Ander Herrera
Manchester United
Keyptur frá: Athetic Bilbao
Kaupverð: 29 milljónir punda
n Ander Herrera hafði lengi verið á
óskalista Manchester United þegar félag-
ið gekk loks frá kaupum á honum í sumar
frá Athletic Bilbao. Herrera hefur verið í
algjöru aukahutverki hjá Manchester United í vet-
ur; í deildinni hefur hann leikið 656 mínútur sem
jafngildir rétt um sjö heilum leikjum af 22. Meiðsli
hafa vissulega sett strik í reikninginn hjá þessum
25 ára miðjumanni en þau segja ekki alla söguna.
Hann hefur lítið komið við sögu í síðustu leikjum
United og virðist hann einfaldlega ekki vera í
framtíðaráætlunum Louis van Gaal. Samkvæmt
orðrómi frá Englandi er jafnvel talið að United selji
leikmanninn strax í sumar.