Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 28
Vikublað 3.–5. febrúar 2015 Lífsstíll 29
Losti og kynLífsLeikir á Akureyri
n BDsM á íslandi stóð fyrir námskeiði um helgina n Pervertar sameinuðust á norðurlandi n flengingar, bindingar og vaxleikir
Stöð 1: Fyrir og eftir leik
Hér var fjallað um það sem þarf að leggja
til grundvallar áður en BDSM-leikur hefst
og það sem nauðsynlegt er að huga að
eftir að honum lýkur. Hér er átt við að fyrir
leik séu grunnreglurnar tryggðar, allir að-
ilar séu sammála um mörk og væntingar,
og að samþykki sé til staðar á öllum
stigum leiksins. Mikil áhersla er einnig lögð
á það sem hefur verið kallað „aftercare“
á ensku en það snýst um að líkamlegar og
andlegar þarfir séu uppfylltar eftir að leik
lýkur. Í BDSM-leik eru oft framkölluð sterk
lífeðlisfræðileg viðbrögð, til að mynda
framleiðsla adrenalíns og endorfína.
Einnig geta leikir verið líkamlega krefjandi,
en það skapar hættu á blóðsykurfalli.
Það er því regla að hafa alltaf eitthvað
sætt við höndina, sleikjó, nammibita eða
annað, og tryggja að allir fái nægan vökva
að drekka.
Stöð 2:
Bindingar
Á þessari
stöð voru alls
kyns binditól
sýnd. Hér
voru reipi,
kaðlar, keðjur
og ólar í stórum
hrúgum. Spjallað
var um misjafnan
tilgang bindinga og mismunandi bindi-
aðferðir. Stundum er fólk tjóðrað niður
til að það hunskist til að vera kyrrt en í
öðrum tilfellum er verið að leika sér með
fagurfræði og erótíska snertingu. Hér var
lögð rík áhersla á öryggi – til dæmis er ekki
mælt með því að nota rándýra silkiklúta
til bindinga, heldur aðeins það sem má að
ósekju klippa í sundur ef skyndilega skyldi
þurfa að losa bindingjann. Mikilvægt er
að hafa við höndina viðeigandi verkfæri
til að losa fjötrana, skæri ef um bönd er að
ræða og járnklippur ef keðjur eru notaðar.
Að ýmsu er að huga þegar fólk er fjötrað –
tækni og búnaður er eitt, en álag á líkama
og liði er annað. Við fengum líka að heyra
um helstu atriði varðandi líkamlegt öryggi
þess sem fjötraður er og tækni sem má
nota til að allir gangi heilir frá leiknum.
Stöð 3: Drottnun og undirgefni
Margir BDSM-leikir snúast um valdaskipti
og hlutverk. Sumir skilgreina sig sem
drottnandi, aðrir sem undirgefna og enn
aðrir eru „skiptar“ (e. switches), þ.e.
hafa hæfileikann til að gangast inn í
bæði hlutverkin. Í sumum tilfellum
er þó valdið ekki aðalatriði heldur
að annar aðili tekur sér hlutverk
geranda og hinn þiggjanda. Það á til
dæmis við um marga sadómasókíska
leiki þar sem annar aðilinn meiðir en
hinn nýtur þess að vera meiddur. Í þessum
leikjum, rétt eins og öðrum BDSM-leikj-
um, eru mörkin það mikilvægasta. Hér
þurfa þeir sem leika að vera sammála um
hvar mörkin liggja og hvað valdaskiptin
eða hlutverkin eiga að fela í sér. Það er
talsverður munur á svefnherbergisleik þar
sem annar fær að ráða og D/u sambandi
þar sem annar aðilinn þjónar hinum og
afsalar sér ýmiss konar rétti til ákvarðana.
Stöð 4: Vaxleikir
Leikir með kertavax eru flóknari en sýnist
í fyrstu. Að ýmsu þarf að huga og málið
er flóknara en sýnist í fyrstu. Kerti geta
nefnilega verið ansi mismunandi og efnin
sem notuð eru til að steypa þau brenna
við misháan hita. Kertin sem hann mælir
sérstaklega með eru stóru kubbakertin
í Tiger en aldrei skyldi nota kerti úr
býflugnavaxi. Vaxleikir snúast um að vax
er látið drjúpa á húð og hitinn er þannig
notaður til að framkalla skynhrif. Hér var
að sjálfsögðu farið í öryggisatriði og helstu
atriði brunavarna.
Stöð 5: Flengingar
Ýmiss konar flengileikir eru ansi vinsælir
bæði hjá þeim sem stunda BDSM og hjá
þeim sem telja sig alls ekki stunda BDSM
heldur smá flipp í svefnherberginu.
Flengingar má stunda með berum
lófa eða ýmsum tegundum barefla.
Á staðnum var stórt safn barefla,
svipur, prik, stafir og meira að segja
gömul brotin ár sem búið var að líma
handfang á. Hér þurfti leiðbeinandinn
fórnarlamb úr hópnum til að sýna
helstu tækni og beitingu áhalda. Ekki
stóð á viðstöddum og nánast var barist
um það hlutverk. Hér var rætt um tækni
við slátt, upphitun og takt, og að sjálf-
sögðu kosti og galla mismunandi barefla.
Miklu máli skiptir hvar á líkamann er
slegið, sumir staðir eru viðkvæmir og hægt
er að valda raunverulegum skaða. Því er
mikilvægt að fara að öllu með gát. Allt of
algengt að fólk kaupi svipu, taki hana með
inn í svefnherbergi og byrji að slá makann.
Í mörgum tilfellum kann fólk ekki á verk-
færið og þess vegna er mikilvægt að æfa
sig, til dæmis með því að slá í púða.
Stöð 6:
S&M
Sadómasókískir leikir snúast um að sad-
isti, sem hefur gaman af því að valda sárs-
auka, tekur sér hlutverk geranda og meiðir
masókista sem nýtur sársaukans. Hér
snýst leikurinn um að framkalla lífeðlis-
fræðileg viðbrögð líkamans við sársauka,
nefnilega framleiðslu endorfína, sem kalla
má náttúruleg sæluhormón. Í leikjum sem
þessum er að sjálfsögðu mikilvægt að
mörk séu skýr og að ekki sé framinn varan-
legur skaði á vefjum líkamans. Sársauka er
hægt að framkalla með ýmsum aðferðum
– hér er það aðeins hugmyndaflugið sem
takmarkar möguleikana.
Partí
Í BDSM-partíum gilda aðrar reglur en í til
að mynda Eurovisionpartíum eða fimm-
tugsafmælispartíum. Ekki er æskilegt
að fólk sé drukkið, ólögleg vímuefni eru
ekki leyfð, og almennar kurteisisreglur
BDSM-iðkenda eru viðhafðar. Þær reglur
fela í sér að ekki er leyfilegt að trufla leik
sem er í gangi, ekki er leyfilegt að nota
leikföng annarra nema með leyfi, og þú
snertir ekki aðra manneskju nema að hafa
leyfi til þess. Ef fólk vill leika í einrúmi eða
stunda kynlíf, er farið inn í herbergi og
lokaðar dyr eru merki um að viðkomandi
óski eftir næði.
Leikur með stjórn og sársauka
Hún er undir þrítugu – í korseletti og svört-
um stuttum kjól með hárið í tagli. Hann er
nálægt fimmtugu – með voldugt skegg
og í leðurbuxum. Hann leiðir hana að vegg
þar sem hanga ýmiss konar leðurólar með
sylgjum. Fyrst tekur hann leðurfestingar
fyrir hendurnar – tvær ólar, fastar saman,
sem fara utan um úlnliðina. Í ólunum er
keðja sem hann festir um mitti hennar.
Hann velur næst svarta, slétta leðurhálsól
og stendur með líkama sinn upp að henni
á meðan hann festir ólina um háls hennar.
Hann festir ólina þétt, hún kveinkar sér
brosandi – þau þekkja bæði mörkin. Hann
þéttir ólina betur, strýkur henni um bakið
og segir henni að slaka á. Ólin truflar
öndunina lítillega en þegar hún slakar á
byrjar hún að njóta þess að vera föst og á
valdi hans. Nokkrir gestir standa álengdar
og horfa, en í næsta herbergi heyrist í
svipu sem lendir taktfast á holdi. Hann
leiðir hana að leðursófa og ýtir henni niður,
heldur augnsambandi allan tímann – tek-
ur svo upp augnbindi úr leðri og hylur augu
hennar. Nú þarf hún að bíða. Það sést að
hún er spennt, andardrátturinn er djúpur
og þungur. Hann sækir litla verkfærakistu
og brúsa af handspritti, og setur á sig
svarta latexhanska – það stendur greini-
lega mikið til. Hann sest klofvega á hana
í sófanum – Hier kommt die Sonne með
Rammstein byrjar að hljóma. Hann fær
sér spritt í lófann og byrjar að maka því
á bringuna á henni. Hún er barmmikil og
mjúk undir höndum hans. Hann hreyfir sig
hægt og snertir hana með þéttum strok-
um. Hlutirnir gerast hægt – uppbygging
spennunnar er markviss. Hann rótar í verk-
færatöskunni og við sem horfum sjáum
glampa á málm í latexhulinni hönd hans.
Þetta er heftibyssa. Hann lætur kaldan
málminn gæla við húð hennar. Hún hefur
ekki hugmynd um heftibyssuna, finnur
bara málminn strjúkast við sig. Núna
hljómar Psycho Killer með Talking Heads í
græjunum. Þá kemur fyrsta skotið úr hefti-
byssunni í holdið – hún öskrar. Hann brosir
og heldur líkamanum þétt upp við hana.
Hún getur sig ekki hrært. Nú setur hann
meira spritt á hana og endurtekur leikinn
… hún veit núna hverju er við að búast og
eftirvæntingin er áþreifanleg fyrir okkur
sem horfum. Hún fær eitt hefti í viðbót í
barminn – öskrar hvellt. Við kippumst öll
við. Hann byrjar að róa hana niður – heldur
þétt um hana. Lagið sem hljómar núna
er viðeigandi og magnað – The Hanging
Tree úr kvikmyndinni The Hunger Games:
Mockingjay. Dimmt og dramatískt. Hann
lætur hana standa upp úr sófanum – held-
ur henni í örmum sér. Við horfum á, sum
með gæsahúð.
BDSM stöðvaþjálfun
Hýðingar sýndar Flengikennslan fól í sér ýmiss konar svipur og tól.
BDSM á Íslandi
Sinnir hagsmunum og fræðslustarfi
Félagið BDSM á Íslandi hefur starf-
að síðan 1997 en hlutverk
þess er að halda utan
um hagsmunamál
og fræðslustarf
fyrir BDSM-iðkendur.
Rafrænt aðsetur
félagsins er annars
vegar á Facebook,
en hins vegar á sam-
félagsvefnum Fetlife
(www.fetlife.com), sem
telur í dag rúmlega 3,5 millj-
ónir notenda á heimsvísu. Að auki heldur
félagið úti heimasíðunni www.bdsm.is.
Fullgildir félagsmenn eru í dag 60, í hópi
félagsins á fetlife eru tæplega 1.000
meðlimir en alls eru 3.000 Íslendingar
skráðir á þeim vef. Að sögn Magnúsar
Hákonarsonar, formanns BDSM á
Íslandi, er þó áætlað að milli 30 og 40
þúsund Íslendingar stundi BDSM að ein-
hverju leyti. Sumir taka fram handjárn
og svipukríli á fimmtudögum á meðan
aðrir lifa í fullkomnum valdaskiptum
allan sólarhringinn, sjö daga vikunnar.
Kona bundin Listakona úr hópi iðkenda
mætti með nokkur falleg málverk sem
skreyttu veggina.
Blaðamaður upplifir
Hér er greinarhöfundur bundinn með ljóm-
andi fínu og mjúku pólýesterbandi.
„Nokkrir gestir
standa álengdar
og horfa, en í næsta her-
bergi heyrist í svipu sem
lendir taktfast á holdi.
Drottnandi og leðurklæddur Leður
er vinsælasta efnið í klæðnaði drottnandi
karlmanna.
Hér gerðust hlutirnir Nágrannarnir höfðu ekki hugmynd um hvers kyns athafnir áttu sér
stað í húsinu. Kannski hefðu þeir viljað slást í hópinn.
Þétt hálsól og hendur fjötraðar
Í þessum leik kom heftibyssa við sögu.
Flengitól Mikið úrval svipna og
annarra barefla var á staðnum.
MynDir rAgnHeiður eiríKSDóttir