Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Blaðsíða 31
32 Menning Vikublað 3.–5. febrúar 2015
Misþyrming
í víking
Í byrjun næstu viku kemur, í Nor-
egi og Bandaríkjunum, út platan
Söngvar elds og óreiðu með ís-
lensku svartmálmssveitinni
Misþyrmingu. Platan kemur út
hjá bandaríska útgáfufyrirtæk-
inu Fallen Empire og norsku
svartmálmsútgáfunni Terratur
Possessions, en íslensku hljóm-
sveitirnar Svartidauði og Sinmara
hafa einnig gefið út hjá þeirri síð-
arnefndu. Þá kemur Söngvar elds
og óreiðu út á snældu á Íslandi
hjá kassettuútgáfunni Vánagandr
sem gefur út íslenskan svart-
málm. Meðlimir sveitarinnar eru
einungis tveir, Helgi Rafn sem leik-
ur á trommur og Dagur Gíslason
sem leikur á öll önnur hljóðfæri.
Hljómsveitin er nú þegar bókuð á
þungarokkshátíðir í Evrópu síðar á
árinu, meðal annars Inferno Festi-
val í Ósló í Noregi og Nid rosian
Black Mass V í Brussel í Belgíu.
Fjölbreytt
danshátíð
Í dag, þriðjudag, hefst þriðja út-
gáfa Reykjavík Dance Festival
og stendur yfir í allan febrúar.
Að þessu sinni er áhersla lögð
á danshöfundinn og hinar mis-
munandi vinnuaðferðir hans.
Meðal þess sem er á dagskránni
er sýningin walk+talk Reykjavík
með Ernu Ómarsdóttur og Mar-
gréti Bjarnadóttur, Lunch Beat í
Hörpu, gjörningakvöld, vinnu-
stofa með sviðslistafræðingn-
um og heimspekingnum Bojönu
Cjevic og frumsýning Íslenska
dansflokksins á Taugum, tveimur
nýstárlegum og óhefðbundnum
dansverkum í Borgarleikhúsinu;
Blýkufl eftir Sögu Sigurðardóttur
og Liminal eftir Karol Tyminski.
Einnig heldur samstarf RDF og
Víðsjár áfram, en verkin verða
tekin upp og flutt á RÚV síðar á
þessu ári.
Verðlaunaður
á Slamdance
Kvikmyndagerðarmaðurinn
Einar Baldvin Árnason vann til
verðlauna í flokki teiknimynda
fyrir stuttmynd sína The pride of
Strathmoor á Slamdance-kvik-
myndahátíðinni í síðustu viku.
Myndin er mastersverkefni Einars
Baldvins frá USC School of Cinem-
atic Arts en hún keppti um verð-
launin við verk jafnt fagmanna
sem annarra nemenda. Myndinni
er lýst sem dimmu ferðalagi í
gegnum geðveikrahæli undir
miklum áhrifum frá ljóðskáldinu
Edgar Allan Poe. Slamdance-há-
tíðin er haldin ár hvert í Utah í
Bandaríkjunum en sérstök áhersla
er lögð á kvikmyndir sem fram-
leiddar eru af litlum og sjálfstæð-
um kvikmyndaframleiðendum.
Að taka pinnann
úr handsprengju
n Níu bækur í 69 eintökum hver hafa komið út hjá grasrótarforlaginu Tunglið
Í
kvöld, þriðjudag, fer fram fyrsta
tunglkvöld ársins 2015, en þá
gefur Tunglið forlag út ljóð sjö
skálda á óvenjulegu formi: vegg-
spjaldi eða ljóðaplacati. Tunglið
forlag var stofnað á vormánuð-
um 2013 og hefur gefið út níu bæk-
ur. Verkin koma út á fullu tungli og
eru einungis til sölu það eina kvöld.
Ef upplagið, sem er ávallt 69 tölu-
sett eintök, selst ekki upp á útgáfu-
kvöldinu er því fargað.
Leikgleði og leitin að ljóðrænu
„Við settum okkur það markmið að
gefa út á hverju fullu tungli sumar-
ið 2013. Við fórum á fullt að leita að
handritum og þá kom í ljós að það
voru margir höfundar sem áttu góð
handrit sem pössuðu ekki alveg inn
í meginstraumsbókaútgáfuna, styttri
bækur sem voru kannski ekki svo
söluvænlegar,“ segir Dagur Hjartar-
son, sem stendur fyrir útgáfunni
ásamt Ragnari Helga Ólafssyni.
Ritstjórarnir hafa þannig sett sér
skýrar reglur sem ramma inn útgáf-
una en segja einnig fagurfræðilegan
þráð tengja bækurnar. „Nafn forlags-
ins gefur nokkra vísbendingu um
í hvaða átt við erum að horfa – ætti
að vera nokkuð augljóst – en það er
oftar en ekki einhver ljóðrænn tónn
sem sameinar Tunglbækurnar. Það
er ákveðin leit eftir hinu ljóðræna.
Þetta er ekki bundið við ákveðinn
stíl, efni eða form heldur kannski
frekar við veruhátt eða óljósa tilfinn-
ingu,“ segir Ragnar Helgi.
Bækurnar eru stuttar og útgáfu-
ferli bókanna er snarpara en hjá
stærri forlögum. „Við vildum að út-
gáfa bókarinnar væri ekki langdreg-
ið ferli, heldur vildum við reyna
að safna orkunni og þjappa henni
saman á einum stað og afmörkuð-
um tíma,“ segir Ragnar Helgi. „Hjá
okkur gerist allt mjög hratt – sól-
arhringarnir eru stuttir á tungl-
inu. Við erum kannski að fá hand-
rit í hendurnar tveimur vikum áður
en það kemur út. En það er þá mjög
margt sem verður ósjálfrátt til í ferl-
inu, alls konar leikgleði. Frá því að
við fáum handritið í hendurnar
þar til bókin kemur út þá er gleðin
í gangi allan tímann. Ólíkt því sem
gerist kannski þegar þú ert í sam-
starfi við hin alvarlegri forlög, þar
sem að þú getur verið í mjög langan
tíma að veltast með handritið. Enda
lítum við ekki á okkur sem einhverja
endastöð fyrir útgáfuna, höfundarn-
ir eiga textann og geta gert það sem
þeir vilja með hann,“ segir Dagur og
bendir á að bæði Sverrir Norland og
Pétur Gunnarsson sem hafi gefið út
hjá forlaginu hafi unnið hugmyndir
úr tunglbókum sínum áfram og gef-
ið út í stærri verkum fyrir síðustu jól.
Handsprengjur í himnaríki
Bækurnar koma aðeins út í fáum
eintökum og hafa undantekninga-
laust selst upp. Er hugmyndin þá
að búa til sérstaka safngripi? „Nei,
það er alveg andstæða þess. Það er
alls ekki hugmyndin að búa til lúx-
usvarning eða safngrip,“ segir Ragn-
ar Helgi. „Bækurnar okkar eru ódýr-
ari en venjulegar kiljur. Þetta er dýr
framleiðsla þannig að við erum
að selja þetta mjög nálægt prent-
verði,“ bætir Dagur við. „Bækurn-
ar eru seldar á nógu lágu verði til að
við töpum hæfilega. Það er mark-
mið forlagsins að skila hæfilegu tapi.
Við reynum að vera örlítið fyrir neð-
an núllið. Það felur í sér að við séum
að tapa frekar litlu, sem er gott því
við erum ekki borgunarmenn fyr-
ir mjög miklu tapi, “ segir Ragnar
Helgi. Ásamt hinu snarpa útgáfuferli
gegnir hið takmarkaða upplag frekar
því hlutverki að afhelga bókina. „Bók
er svolítið íkon í okkar menning –
helg stofnun. Þú gefur út bók fyr-
ir eilífðina. Hún mun lifa þig. Það er
eins og að planta tré í lystigarði. En
við vorum að gæla við það að bóka-
útgáfan yrði meira eins og að taka
pinnann úr handsprengju. Hún spr-
ingur og svo er hún bara horfin. Þetta
er augnablikshöfnun á eilífðinni,“
segir Ragnar Helgi. „Íslendingar
trúa ekki á himnaríki en þeir trúa á
bókasöfn. Ef þeir gefa út bók þá lifa
þeir að eilífu,“ bætir Dagur við.
Það er þá hægt að segja að pinn-
inn sjálfur sé tekinn úr sprengjunni
á útgáfukvöldunum sem haldin eru
á fullu tungli. Þar lesa höfundarn-
ir upp úr bókunum, ásamt öðrum
atriðum: gjörningum, fyrirlestrum
eða tónleikum. Bókin verður þá að
einstökum viðburði í tíma og rúmi.
„Ég lít á það sem svo að við séum
að gera bókinni mjög hátt und-
ir höfði. Hún fær eitthvað afmark-
að augnablik í mannkynssögunni,
hver bók fær tvo klukkutíma. Þá er
hún með púls á markaðnum, svo fer
hún bara heim og lifir sínu prívatlífi.
Hún á ekki eitthvert leiðinlegt lang-
dregið sex vikna opinbert líf – höf-
undurinn þarf ekki að hafa áhyggj-
ur nema í svona tvo tíma svo getur
hann bara farið og notið lífsins,“ segir
Dagur. „Svo er þetta líka bara tilraun
til að finna fleiri leiðir til að koma
bókunum út. Þarna verður kannski
til ákveðinn hvati til að ganga í að
kaupa bókina – því annars er alltaf
hægt að kaupa bókina í bókabúð-
inni á morgun,“ segir Ragnar. „Hugs-
unin er líka kannski öðrum þræði að
leiða ákveðna myndlistarhugsun inn
í útgáfubransann, sem oft er frekar
„ óperformatífur“ getum við sagt.
Okkur langaði að bæta inn örlítið
meiri stundar-leik og „stundarleika“
í þetta ferli, nokkuð sem fólk í mynd-
listarstússi hefur verið að gera í meira
en hálfa öld,“ segir Ragnar Helgi.
Placat (með c-i)
Í kvöld er það hins vegar ekki bók
sem pinninn er tekinn úr heldur
ljóðaplacat. „Það eru tvær tungl-
bækur á leiðinni en eru ekki alveg
tilbúnar. Við ætluðum að reyna að
koma þeim út snemma á þessu ári,
en Tunglið er miskunnarlaust – það
er bara fullt einu sinni í mánuði.
Það er því ekkert hægt að fresta út-
gáfu um viku eða tvær. Okkur fannst
þá tilvalið að nota tækifærið og líta
á ljóðið sjálft. Við ætlum að prófa að
gefa út ljóð á nýju sniði, á placati.
Þetta verður safnrit af sjö ljóðum,
eitt eftir hvern höfund, en á þessu
formati, útflatt á tvívíðu formi. Í
kvöld fáum við sjö höfunda til að
lesa í sjö mínútur, svo spilar Teitur
Magnússon tónlistarmaður, sem
hefur einmitt verið að gera lög við
texta eftir Benedikt Gröndal og ann-
an gaur frá Stratford í Englandi,
Shakespeare,“ segir Ragnar og leggur
sérstaklega áherslu á að placat sé rit-
að með c-i en það er gert til heiðurs
Jörundi hundadagakonungi sem
notaði veggspjöld með yfirskriftinni
„placat“ til að koma boðskap sínum
og skilaboðum áleiðis til Íslendinga
þegar hann ríkti. Auk Ragnars og
Dags eiga Halla Oddný Magnúsdótt-
ir, Ingibjörg Magnadóttir, Kristín Ei-
ríksdóttir, Magnús Sigurðsson og
Pétur Gunnarsson ljóð á placatinu.
Tunglkvöld nr. V fer fram á Loft
hosteli, í Bankastræti, í kvöld, þriðju-
dag, og hefst kl. 20.00. n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Íslendingar
trúa ekki á
himnaríki en þeir trúa
á bókasöfn.
„Það er markmið
forlagsins að skila
hæfilegu tapi.
Leikgleði og tilraunastarf Dagur
Hjartarson og Ragnar Helgi Ólafsson
sem standa að bókaforlaginu Tunglini
eru óhræddir að prófa sig áfram með
form og útgáfuaðferðir. Mynd SiGtryGGur Ari