Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Blaðsíða 18
Vikublað 10.–12. mars 20152 Hönnun - Kynningarblað Landsins mesta úrval af perlum S kartsmiðjan í Reykjanesbæ er í eigu hjónanna Harald- ar Gunnarssonar og Katrín- ar Steingrímsdóttur, en þau stofnuðu fyrirtækið Kast ehf. árið 2011. Upp- haf fyrirtækisins má rekja til þess að Haraldur, sem leggur stund á silfur- smíði, var sjálfur að út- búa skartgripi og selja, auk þess að flytja inn ýmsa muni til skartgripagerðar að beiðni fólks. Smartsmiðjan er með til sölu landsins mesta úrval af perlum og segir Haraldur að fólk komi alls staðar að eða panti perlur sem fást ekki annars stað- ar. „Við bjóðum upp á nánast allt til skart- gripagerðar og armbands- gerðar, ásamt því að bjóða upp á gott úrval af föndurvörum,“ segir Haraldur. Skartsmiðjan er að Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ, verslunin er opin virka daga frá kl. 11–18 og laugar- daga frá kl. 12–16. Sími Skartsmiðj- unnar er 421-5121. Vefverslun er á heimasíðu Skartsmiðjunnar og einnig má fylgj- ast með nýjum vörum á facebook, en Skartsmiðjan er stöðugt að bæta við nýjum vörum og auka úrvalið. n Reykjavík Fashion Festival Tískuvika í miðborginni um helgina M eðal fjölda viðburða í Hönnunarmars eru tísku- sýningar og ýmiss konar upplifun í miðborginni og ber Reykjavík Fashion Festival þar hæst. Tugir erlendra blaðamanna koma til landsins til að fylgjast með og setja sig inn í hlutina, og margir koma til að sjá hvað er á efst á baugi, versla og njóta. Á fimmtudaginn verða opn- unarhátíðir í Hörpu og á Skybar. Á föstudag og laugardag verða tísku- sýningar Reykjavík Fashion Festi- val í Hörpu og Hönnunarmars í boði um alla borg, „með sínum fjöl- þættu litbrigðum og áherslum,“ segir Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri Miðborgarinn- ar okkar, sem situr í stjórn Reykjavík Fashion Festival. „Í ár verður eins og í fyrra og í hitti- fyrra efnt til tískuviku í miðborginni, verslanir verða opnar til klukkan 22 með margþættum áherslum, létt- ar veitingar, létt tónlist, sértilboð og uppákomur verða af ýmsum toga,“ segir Jakob Frímann. Bæði hönnuð- ir sem hafa verið áður og nýrri hönnuðir munu sýna hönnun sína, til að mynda Ása í Sút, sem er með nýja línu sem verður á lokasýningu laugardagsins. Uppákomurnar verða margs kon- ar enda yfir 300 verslanir og veitinga- hús í miðborginni og hvert og eitt þeirra slær sinn eigin tón að sögn Jakobs. Sérstaklega skreyttur tískuvagn mun flytja fólk frá einum stað til annars, en vagninn var til staðar á Hönnunarmars 2014 og gafst mjög vel. „Þetta er okkar íslenska útgáfa af því sem í New York og París heit- ir Fashion night out, þar sem að al- menningi gefst kostur á að gerast þátttakendur í tískuviðburðunum og upplifuninni og tengja sig þessari hlið mannlífsins sem hönnun og tíska er,“ segir Jakob og segir þetta komið til að vera. Hönnunarmars hefur vaxið og dafnað afskaplega á undanförnum árum og glæsileg íslensk tískufyrir- tæki hafa komið ár sinni vel fyrir borð í fjölda landa. „Það eru spennandi tímar í íslenskri hönnun, ekki síður en í íslenskri tónlist og kvikmynda- gerð,“ segir Jakob og segir frændur okkar Finna, Dani og Svía hafa náð að gera þetta einstaklega vel. n Skartsmiðjan var stofnuð 2011 af hjónunum Gunnari og Katrínu Fjör í vagninum Ánægðir gestir. Tískuvagninn Fyrir utan Hörpu 2014. Gott framtak Vagninn góði í Bankastræti. Jakob Frímann Miðborgarstjórinn sáttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.