Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Qupperneq 8
Vikublað 10.–12. mars 20158 Fréttir
Hreiðar
Már byrjaður
að afplána
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr-
verandi forstjóri Kaupþings,
hefur hafið afplánun í hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg
vegna Al Thani-málsins. Hreið-
ar Már var dæmdur í fimm og
hálfs árs fangelsi vegna máls-
ins í Hæstarétti fyrr á árinu. DV
greindi frá því fyrir skemmstu
að Ólafur Ólafsson hefði hafið
afplánun og væri á Kvíabryggju.
Ólafur var dæmdur í fjögurra
og hálfs árs fangelsi í febrúar
fyrir hlutdeild
sína í mark-
aðsmisnotk-
un en auk
hans voru
þeir Hreiðar
Már Sigurðs-
son, Sigurður
Einarsson og
Magnús Guð-
mundsson dæmdir í málinu.
Eins og kunnugt er voru þeir
dæmdir vegna viðskipta sjeiks-
ins Al Thani sem keypti hlut í
bankanum fyrir hátt í 30 millj-
arða. Samtals hlutu þeir átján og
hálfs árs fangelsi. Um að ræða
þyngstu dóma sem fallið hafa í
efnahagsbrotamáli á Íslandi og
þá langþyngstu sem fallið hafa
í markaðsmisnotkunarmáli.
Dómarnir eru allir óskilorðs-
bundnir.
Missti trúna í
MörguM skrefuM
n formaður Vantrúar var mjög trúaður áður en hann gekk til liðs við samtökin
s
indri Guðjónsson, formaður
Vantrúar, var mjög trúaður
áður en hann gekk til liðs við
samtökin.
Hann var þrettán ára
þegar hann gekk í söfnuðinn Orð lífs-
ins. „Þá „frelsaðist ég“ eftir að hafa
lesið guðspjöllin og hlustað á kristna
útvarpsstöð sem hét Stjarnan og fór
svo á samkomur þar í kjölfarið. Svo
hætti sá söfnuður og ég fór í annan
söfnuð sem heitir Frelsið. Ég var á
tímabili í Krossinum og síðan var ég
undir lokin í Hvítasunnusöfnuðinum
á Akureyri.“
Leysti Snorra í Betel af
Hann segist meira að segja hafa leyst
af Snorra í Betel, sem þá var forstöðu-
maður í Hvítasunnusöfnuðinum á
Akureyri, þegar hann var í sumar-
fríi. „Ég predikaði á sunnudögum, til
dæmis þegar hann var í Ísrael. Svo sá
ég líka oft um Biblíu fræðslu á mið-
vikudögum.“
Sættist við þróunarkenninguna
Sindri segist hafa misst trúna í mörg-
um litlum skrefum. „Um tvítugt var ég
algjör bókstafstrúarmaður og sköp-
unarsinni. Ég trúði á unga jörð og
hafði bókstaflegan skilning á Biblí-
unni. En í mörgum skrefum breytt-
ist ég alltaf í hógværari og hógværari
útgáfu af trúmanni,“ segir hann. „Til
dæmis las ég um þróunarkenninguna
og sættist við hana og áttaði mig á því
að Biblían væri ekki óskeikul. Líka að
sum orð sem eru höfð eftir Jesú hefði
hann líklega ekki sagt. Einn daginn
áttaði ég mig á því að ég tryði ekki á
Biblíuna yfirhöfuð eða á aðra guði.“
Þrjú hundruð í Vantrú
Vantrú vakti athygli á dögunum þegar
samtökin sendu frá sér tilkynningu
um að frá og með 1. mars yrðu all-
ir Íslendingar skráðir í Vantrú. Síðar
kom í ljós að um var að ræða ádeilu
á sjálfkrafa skráningu barna í trúfélag
foreldra við fæðingu.
Á vefsíðu Vantrúar segir að helsta
markmið félagsins sé að veita mót-
vægi við boðun hindurvitna og vinna
gegn áhrifum þeirra í samfélaginu,
svo sem skipulögðum trúarbrögðum,
skottulækningum og gervivísindum.
Meðlimir samtakanna eru í kringum
þrjú hundruð talsins, að sögn Sindra.
Tók á sálfræðilega
Nokkur tími leið áður en hann ákvað
að venda kvæði sínu algjörlega í kross
og ganga til liðs við Vantrú. „Þetta tók
á sálfræðilega. Þetta var breyting á
lífinu, því trúin skipti mig svo miklu
máli,“ segir hann.
„Ég man ennþá síðasta Biblíu-
versið sem ég las þegar ég var trúað-
ur. Það var kornið sem fyllti mælinn.
Þá var Móses að skamma Ísraels-
menn, eftir að þeir höfðu hertek-
ið einhverja borg, fyrir að hafa ekki
drepið alla karla, konur og dýr og
einungis tekið með sér hreinar meyj-
ar til eignar. Ég hugsaði með mér:
„Þetta er orðið gott. Þetta er bara
rugl“,“ segir hann. „Af því að Jesús á
að hafa sagt: „Ef þú trúir ekki Móses
geturðu ekki trúað mér“. Grunnurinn
í Nýja testamentinu byggir á Gamla
testamentinu og þess vegna tengist
þetta kristni líka.“
Les hebresku og arabísku
Sindri, sem er að verða 36 ára, kann
að lesa hebresku og átti lesturinn
einnig þátt í sinnaskiptunum. „Ég
lærði einhverja hebresku til að lesa
Gamla testamentið á frummálinu og
ég las mjög mikið akademíska guð-
fræði. Mér fannst hún draga úr trú-
verðugleika kristindóms, jafnvel í
hógværari mynd þar sem Biblían er
ekki tekin bókstaflega.“
Hann hefur einnig stúderað arab-
ísku og hefur lesið „helling“ af Kór-
aninum á því tungumáli. Áhugi hans
á Mið-Austurlöndum kom þó eftir
að hann missti trúna. Þrátt fyrir að
hafa ferðast á þær slóðir kviknaði trú-
in ekki á nýjan leik. „Mér þykja þessi
trúarbrögð þarna, bæði islam, kristni
og gyðingdómur alveg sérstaklega
fjarstæðukenndar hugmyndir. Ég sé
ekki að þau leiði til neins góðs fyrir
samfélögin í Mið-Austurlöndum.“
Virkur á spjallborði Vantrúar
Spurður hvort þessi umskipti hafi
ekki verið skrítin, að vera núna
orðinn formaður Vantrúar eftir hina
trúuðu fortíð sína, segir hann: „Jú,
það er eiginlega ótrúlegt að hugsa
um það. Það leið nú svolítill tími frá
því ég varð trúlaus þar til ég varð
svona virkur. Ég var reyndar oft virk-
ur á spjallborðinu hjá Vantrú en
það leið smá tími þangað til ég varð
þátttakandi í starfinu,“ segir Sindri,
sem skráði sig sem óbreyttan með-
lim samtakanna um ári eftir að hann
missti trúna. Formaður hefur hann
síðan verið í rúmt ár.
Á hugmyndafræðilega
andstæðinga
Hann viðurkennir að fólk hafi skotið
á hann fyrir að vera fyrrverandi trú-
maður sem nú er formaður Van trúar.
„Sumir gamlir kristnir vinir mínir
hafa sagt að ég hafi eitthvað á móti
kristnum en ég á mér enga óvini. Ég
á mér bara hugmyndafræðilega and-
stæðinga. Það er enginn sem mér er
illa við vegna trúarskoðana eða neins
slíks. Þetta hefur farið skakkt ofan í
suma en alls ekki alla,“ segir Sindri. n
„Mér þykja þessi
trúarbrögð þarna,
bæði islam, kristni og
gyðingdómur alveg sér-
staklega fjarstæðu-
kenndar hugmyndir.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Sindri Guðjónsson
Gekk til liðs við Vantrú
eftir að hafa tilheyrt
ýmsum trúfélögum.
Nýr 2015 Renault Trafic sendibíll
Eigum á lager vel útbúna bíla
Aukabúnaður: Hliðarhurðir á báðum
hliðum - Bakkskynjari - Hraðastillir - Handfrjáls
búnaður fyrir síma - Loftkæling - USB tengi
- flottara Stereo - Plata í botni - skilrúm með
glugga - Gluggar í afturhurðum
Okkar verð 3.396 þús
á stuttum bíl án vsk.
←