Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Page 12
Helgarblað 13.–16. mars 201512 Fréttir
Mikil vonbrigði
fyrir Eldheima
n Lokun Landeyjahafnar stöðvar ferðamannastraum til Vestmannaeyja
L
okun Landeyjahafnar hefur
orðið til þess að straumur er
lendra ferðamanna til Vest
mannaeyja hefur stórminnkað
undanfarna mánuði, þar á
meðal í gosminjasafnið Eldheima
sem var opnað í fyrravor með pomp
og prakt.
Ekkert að gera í marga mánuði
Safnið var opnað 23. maí í fyrra og
nam kostnaðurinn um einum millj
arði króna. Í upphafi var reiknað með
um sextán þúsund gestum árið 2014
en fjöldinn fór fram úr öllum vænting
um og varð að lokum 26 þúsund.
„Þetta gekk óskaplega vel þangað til í
lok nóvember er Landeyjahöfn lokað
ist. Síðan hefur nánast ekkert verið að
gera. Við bíðum eftir að höfnin opn
ist aftur og þá verður flautað af stað,“
segir Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri
Eldheima.
Fótunum kippt undan
Hún bætir við að lokun hafnarinnar
hafi orðið til þess að safnið hafi misst
damp í kynningarmálum. „Þetta kipp
ir undan okkur fótunum. Þetta eru
gríðarleg vonbrigði og það er slæmt
að sitja á þessu flotta ferðaþjónustu
verkefni, sem er flaggskipið okkar,“
segir safnstjórinn, ósáttur við gang
mála. „Hluti landsmanna vælir yfir
því að það sé orðið of mikið af ferða
mönnum í landinu. Við í Vestmanna
eyjum getum ekki skrifað undir það.
Við gætum tekið við miklu fleira fólki
allt árið en þetta er að stoppa okkur.“
Ferðamenn vilja ekki fljúga
Aðeins tekur rúman hálftíma að sigla
með Herjólfi frá Landeyjahöfn í stað
Þorlákshafnar, þar sem siglingin tekur
tæpar þrjár klukkustundir. Það hefur
því fælt erlenda ferðamenn frá þegar
ekki er siglt frá Landeyjahöfn, því
flestir vilja ekki fljúga til Eyja, meðal
annars vegna kostnaðar. Ástæðan fyr
ir lokun Landeyjahafnar er sambland
af aðstæðum við höfnina og hvernig
Herjólfur er smíðaður.
Í skelfilegum málum
Aðspurð segir Kristín að aðeins
nokkrir tugir erlendra ferðamanna
hafi komið í Eldheima það sem af
er þessu ári. „Það sem ég er að gera
þessa dagana er að endurgreiða og
afbóka. Ég var með bókaða hópa í
febrúar og átti að vera með stóran 100
manna hóp um síðustu helgi,“ segir
hún. „Ég hefði svo innilega alla burði
til að vera með flottasta safn lands
ins allt árið. Ég gæt verið að moka
fólk þarna inn ef allt væri í lagi. Ef
þessi tenging frá Landeyjahöfn væri
til staðar allt árið væri ferðaþjónusta
í Vestmannaeyjum með öðrum brag.
Hún er í skelfilegum málum þessar
vikur og mánuði sem Landeyjahöfn
er lokuð.“
Safnið stendur undir sér
Þrátt fyrir að aðeins örfáir hafi heim
sótt Eldheima síðan í lok nóvember
segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, að safnið sé ekki
rekið með tapi. „Safnið stendur undir
sér en við erum ekki að hafa þær tekj
ur út úr því sem við myndum annars
hafa,“ segir Elliði.
Lokun Landeyjahafnar er honum
mikil vonbrigði. „Daginn eftir að
Landeyjahöfn lokar verður mað
ur strax var við breytinguna. Það er
varla að við sjáum erlenda ferðamenn
en það er mjög mikið af þeim þegar
Landeyjahöfn er opin. Við höfum
bent á að þjóðhagslegur ávinningur
af samgöngum sem þessum sé gríðar
lega mikill,“ segir hann.
Mörg hundruð milljónir
„Hvað varðar það sem nú er og það
sem verður þegar Landeyjarhöfn
verður farin að virka, þá er ljóst að
þessar töpuðu tekjur má telja í hundr
uðum milljóna króna, bæði í ferða
þjónustu og flutningi á hráefni. Þegar
við bætist að hver dagur sem siglt er
um Þorlákshöfn er milljón krónum
dýrari en hver dagur sem siglt er um
Landeyjahöfn þá er von að fólk spyrji
sig af hverju í ósköpunum hlutirnir
eru ekki lagaðir.“
Fólk fjárfesti fyrir aleiguna
Elliði segir mikla óánægju ríkja innan
ferðaþjónustunnar í Eyjum með gang
mála. „Í aðdraganda opnunar Land
eyjahafnar höfðum við mikla trú á
þessu og fólk fjárfesti rúmlega al
eiguna í ferðaþjónustutækifærum,
sem væru að ganga vel ef ríkið lag
aði það sem miður fer við höfnina,“
segir bæjar stjórinn, sem reiknar með
því höfnin verði opnuð í lok mars eða
byrjun apríl. Hann býst þó við áfram
haldandi lokunum yfir vetrartímann.
„Í að minnsta kosti tvö ár verðum við
í nákvæmlega sömu stöðu, það er
hverjum degi ljósara.“
Stækkaði hótelið í góðri trú
Magnús Bragason, hótelstjóri Hótel
Vestmannaeyja, réðst í að stækka það
um helming á síðasta ári í von um að
allt skánaði með tilkomu Landeyja
hafnar. „Við héldum að við gætum
gengið að þessu vísu eins og talað var
um, stærri hluta ársins. Eins og þetta
er núna er þetta rétt hálft árið. Þegar
búið er að vera lokað í marga mánuði
hefur þetta mikil áhrif,“ segir hann.
„Við þolum þetta eins og er en maður
er kvíðinn ef þetta fer ekki að verða
betra.“
Fólk í ferðaþjónustu uggandi
Að sögn Magnúsar hefur ástandið
mikil áhrif á aðra innan ferðaþjón
ustunnar í Eyjum, til dæmis mat
sölustaði. „Menn eru mjög uggandi
hérna í ferðaþjónustunni. Auðvitað er
búið að vera óvenjuvont veður og það
verður að taka það inn í dæmið. En við
þráum að fara að fá einhverja fram
tíðarlausn á þessi mál. Maður vonar
og trúir því að þessir menn séu að
vinna í þeim af fullum krafti. En ein
hvern veginn finnst manni stundum
það ekki alveg vera að gerast,“ segir
hann. n
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Magnús Bragason Stækkaði Hótel
Vestmannaeyjar um helming í fyrra.
Elliði Vignisson Bæjarstjórinn segir að
ekkert hafi verið gert til að bæta ástand
mála í Landeyjahöfn.
„Hluti landsmanna
vælir yfir því að
það sé orðið of mikið af
ferðamönnum í landinu.
Við í Vestmannaeyjum
getum ekki skrifað und-
ir það.
Kristín Jóhannsdóttir
Kristín
Jóhannsdóttir
Safnstjóri Eldheima er
ósáttur við hversu fáir
erlendir ferðamenn
geta heimsótt safnið.
Mynd/BaJu WiJono
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Aðalfundur VR
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf,
innborgun í VR varasjóð, lagabreytingar og
ný reglugerð Vinnudeilusjóðs VR.
Dagskráin og allar nánari upplýsingar á vr.is.
Taktu þátt í baráttunni fyrir
réttindum þínum!
Miðvikudaginn 25. mars kl. 19:30
á Hilton Nordica