Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Síða 28
Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 28 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir • Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Helgarblað 13.–16. mars 2015 Maður er greinilega hvergi óhultur Þetta var ógeðslega vont Ég fæddist bjartsýnn Ekki boðleg framkoma Bergþóra Þorsteinsdóttir sótti börnin vegna lögregluaðgerða. – DV Yrja Ás Siggeirsdóttir stækkaði varir sínar með óhefðbundinni aðferð. – DVBaldur Sigurðarson berst fyrir sjóninni. – DV S amkeppniseftirlitið sendi frá sér skýrslu í vikunni sem heitir því ábyrga og hlutlausa nafni: „Leiðbeining um samkeppni á dagvörumarkaði – Staða samkeppninnar 2015.“ Á blaðsíðu 39 segir: „Verð á innfluttum vörum hefur ekki lækkað í takt við styrkingu geng- is íslensku krónunnar, þegar horft er til síðustu ára.“ Þetta þýðir á mannamáli að versl- anir hafa tekið fleiri krónur í sinn vasa á kostnað viðskiptavina sinna. Þetta jafngildir verðhækkun til neytenda. Það vantar ekki grátinn þegar krón- an veikist og talið er bráðnauðsynlegt að hækka vöruverð til að mæta aukn- um kostnaði. En nú þegar dæmið snýst við og neytendur og þjóðarhag- ur gætu notið góðs af verðlækkunum, fara verslunarmenn með veggjum og taka fleiri krónur í eigin vasa. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Sam- taka verslunar og þjónustu (SVÞ), sagði í sjónvarpsfréttum um skýrsluna að menn yrðu að taka inn í myndina að verslunin hefði mátt taka ýmislegt á sig í hruninu. Þessi útskýring Andrésar er ódýr. Allir viðskiptavinir þeirra verslana sem eru í samtökum Andrésar lentu líka í hruninu. Almenningur er enn að glíma við hrunið. Birtingarmyndin hefur verið aukin skattbyrði og launa- lækkanir og ekki er boðlegt að versl- un í landinu taki sig saman og auki álagningu þegar færi gefst. Með slíku er komið aftan að neytendum og það er ekki boðleg framkoma. Aftur í skýrslu Samkeppniseftirlits- ins: „Fyrirliggjandi opinberar upplýs- ingar gefa ekki til kynna mikla hækkun frá erlendum birgjum.“ Og „Skýringa á verðhækkunum kann að vera að leita í aukinni álagningu birgja og/eða verslana, en þó ekki síður í viðskipta- samningum þessara aðila.“ Þetta þýð- ir einfaldlega á mannamáli að verð- hækkanir hafa ekki komið að utan heldur eru verslanir að leggja meira á vöruna og auka sinn hagnað þar með. Hér með er skorað á þau fyrirtæki sem reka stærstu smásöluverslan- ir landsins að upplýsa neytendur um kostnaðarþróun og hrekja þær full- yrðingar sem Samkeppniseftirlitið setur fram í margnefndri skýrslu. Hér þarf allt að vera uppi á borði. Auðvitað ætti almenningur að krefjast svara og leggja leið sína í þær verslanir sem geta sýnt fram á að neytendur njóti styrk- ingar krónunnar í formi verðlækkana. Ábyrgð viðskiptavina er mikil og vald þeirra óumdeilt. Í stað þess að fljóta í meðvitundarleysi inn í næsta stór- markað, þarf fólk að opna augun og fylgjast með. Versla hjá þeim sem gera grein fyrir máli sínu og tryggja neyt- endum ávinning þegar innstæða er fyrir slíku. Þá er að sama skapi hægt að hlusta á röksemdir þegar grípa þarf til verðhækkana vegna aðgerða erlendra birgja eða veikingar krónunnar. Þessar staðreyndir, sem Samkeppnis eftirlitið setur fram af mikilli kurteisi, eru móðgun við neyt- endur. Það er ekki hægt að sætta sig við þetta. Verslunin þarf að útskýra mál sitt og lækka verð í samræmi við styrkingu krónunnar. Það styttist í páskaverslun og neytendur ættu að beina viðskipt- um sínum til þeirra sem útskýra mál sitt og standa með viðskiptavinum. n Vagga guðleysis Yfirlýst trúleysi Jóns Gnarr hefur farið fyrir brjóstið á ýmsum og nokkrar greinar hafa verið skrif- aðar af fólki sem vill að Jón sjái ljósið. Í þeim hópi er Hallur Halls- son sem fyrr í vikunni skrifaði grein í Morgunblaðið þar sem hann benti Jóni á að hið kristna lýðræðislega borgarasamfélag væri besta stjórnarformið. Hallur harmar hversu áhugalausir fjöl- miðlar eru um að taka umræðu um kristni og kristin gildi. Hann lýkur grein sinni með afdráttar- lausri yfirlýsingu um 365 miðla og RÚV sem hann segir vera vöggu guðleysis í landinu. Þingmenn og þagnarheit Í fréttatilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu í vikunni var upp- lýst að þeir sem taki þátt í vinnu stjórnvalda vegna losunar fjár- magnshafta séu bundnir af inn- herjareglum sem ráðuneytið hefur sett sér, auk þess að hafa undirrit- að sérstaka trúnaðaryfirlýsingu. Þá hafa þeir alþingismenn sem skipa samráðsnefnd um afnám fjármagnshafta einnig ritað und- ir yfirlýsingu um að þeir muni „gæta þagmælsku um þau atriði“ sem þeir kunni að fá vitneskju um í starfi sínu. Einhver misbrestur virðist hafa orðið á því að þingmenn hafi staðið við það þagnarheit. Þannig má rifja upp að Árni Páll Árnason, sem á sæti í samráðs- nefndinni, mætti í viðtal á Stöð 2 þann 8. desember sl., sama dag og nefndin hafði fundað með er- lendum ráðgjöfum stjórnvalda um losun hafta. Ræddi hann opinskátt um efni fundarins og sagði ljóst að það mætti ráða af honum að afnám hafta yrði ekki sá „gróðavegur“ sem forsætisráð- herra hefði boðað. Tvískinnungur formannsins Kristján Jóhannsson, formað- ur og framkvæmdastjóri Félags flugmálastarfsmanna ríkisins, er varamaður í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Meirihlutinn, sem flokkurinn hans tekur þátt í, hefur í vetur sagt upp ráðningarsamn- ingum við fleiri hundruð bæjar- starfsmenn með það að mark- miði að lækka laun og fækka stöðugildum. Á sama tíma hefur Kristján haldið uppi gagnrýni á Isavia vegna skipulagsbreytinga og uppsagna. Hann stakk nið- ur penna í vikunni og skrifaði: „Þegar risa ríkisfyrirtæki í fullum rekstri með hundruð manna í vinnu segja upp ráðningarsam- bandi við launþega á grund- velli skipulagsbreytinga þá setur mann hljóðan.“ K jaraviðræður Samtaka at- vinnulífsins og Starfsgreina- sambandsins eru komnar í hnút og gæti stefnt í verk- fall á vormánuðum. Þetta hlýtur að vera öllum áhyggjuefni og snúin staða að vera í sporum við- semjenda en ekki síður stjórnvalda. Við ríkisstjórnarborðið eru menn hins vegar ekki á eitt sáttir um hvert hlutverk stjórnvalda á að vera til að tryggja frið á vinnumarkaði. Þar hefur fjármálaráðherra sagt í við- ræðum á Alþingi að hann líti á þetta sem verkefni aðila vinnumarkaðar- ins en forsætisráðherra hefur talað fyrir því að það sé sérstakt markmið kjarasamninga að bæta kjör lág- og millitekjuhópa án þess að útfæra það nánar. Skattastefnan hefur áhrif Aðgerðir stjórnvalda það sem af er þessu kjörtímabili hafa hins vegar ekki greitt fyrir kjarasamningum sem snúast fyrst og fremst um það að lágtekjuhópar fái raunverulegar umbætur á sínum kjörum. Aðgerðir stjórnvalda hafa nefnilega einmitt snúist um að hossa undir afturend- ann á hátekjufólki en forgangsverk- efni þeirra hafa verið að lækka veiði- gjöld (á sama tíma og stórútgerðir greiða sér út milljarða í arð), afnema auðlegðarskatt sem lagður var á þá sem mestar eignir eiga, hækka mat- arskatt sem kemur mun verr við lág- og millitekjuhópa en þá sem hærri tekjur hafa og nú hefur ráðherra fjármála kynnt fyrirætlanir um að fækka skattþrepum á einstaklinga en þrepaskipt skattkerfi (sem tekið var upp í tíð síðustu ríkisstjórnar) er mikilvægt tæki til tekjujöfnunar ólíkt því flata skattkerfi sem Sjálfstæð- isflokkurinn kom á á árunum fyrir hrun. Skattastefnan hefur nefnilega líka áhrif á kjörin og í þeim efnum hafa önnur Norður lönd ekki hikað við að skattleggja hæstu tekjur sem meðal annars útskýrir þá staðreynd að íslenskir stjórnendur eru tekju- hærri en norrænir kollegar þeirra. Allar þessar aðgerðir styrkja stöðu hátekjuhópanna og fleira mætti raunar tína til. Því skal engan undra að Starfsgreinasambandið berji nú í borðið og geri kröfu um að lægstu taxtar fari ekki undir þrjú hundruð þúsund krónur á mánuði. Og að sjálfsögðu er holur hljómur í þeim svörum að hér verði að varð- veita stöðugleika þegar á sama tíma birtast ný gögn um misskiptingu eigna í samfélaginu þar sem ríku- stu tíu prósentin eiga 70% alls auðs. Og að á sama tíma séu tíu prósent landsmanna undir lágtekjumörk- um. Viljum við varðveita þann stöð- ugleika? Ég svara því neitandi. Mannsæmandi kjör Við hljótum að gera þá kröfu til stjórnvalda að þær breytingar sem ráðist er í ýti undir jöfnuð en fari ekki beina leið í hina áttina, í átt til aukinnar misskiptingar. Það er sú krafa sem við hljótum að gera og það er það markmið sem við ættum að fylkja okkur á bak við. Því mið- ur hafa aðgerðir stjórnvalda ekki snúist um það – ég hef þegar nefnt skattabreytingar í þágu hátekju- og eignafólks en fleira mætti telja til; sívaxandi greiðsluþátttaka sjúk- linga í heilbrigðisþjónustu, tak- markað aðgengi eldri nemenda að menntun, aðgerðir í húsnæðismál- um sem einungis gagnast íbúðar- eigendum en ekki leigjendum og svo framvegis. Raunverulegur stöðugleiki verð- ur að snúast um mannsæmandi kjör alls almennings í landinu. Hann má ekki snúast um að varð- veita misskiptingu í samfélaginu. Gegn henni eigum við að berjast og styðja kröfu lágtekjuhópanna um að hægt verði að lifa af dagvinnu- launum í landinu. n Stöðugleiki byggður á jöfnuði Katrín Jakobsdóttir formaður VG Kjallari MYnd EYÞór ÁrnaSon„Raunveruleg- ur stöðugleiki verður að snúast um mannsæmandi kjör alls almennings í landinu. Hann má ekki snúast um að varðveita misskiptingu í samfélaginu. Leiðari Eggert Skúlason eggert@dv.is „Þetta þýð- ir á mannamáli að verslanir hafa tek- ið fleiri krónur í sinn vasa á kostnað viðskiptavina sinna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.