Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Qupperneq 37
Helgarblað 13.–16. mars 2015 Fólk Viðtal 37
Stelpurnar tóku mig alveg í gegn og
leyfðu mér ekki að komast upp með
neina rembu og dónaskap. Mér
leist heldur ekkert vel á þær eins og
sést á dagbókarskrifum mínum frá
fyrstu vikunum en við vorum hvött
til að skrifa dagbók um reynsluna
í náminu. Í dag eru þessar stelpur
eins og systur mínar,“ segir Jóhann
es sem fann sig strax í náminu. „Ég
fann að ég var kominn á rétta hillu
enda held ég að ég hafi aldrei áður
verið með 100 prósent mætingu í
skóla fyrr en ég kom í leiklistina.“
Ætlaði að verða rokkstjarna
Þótt engir atvinnuleikarar séu í fjöl
skyldunni segir hann mikið um
hæfileikaríkt tónlistarfólk í fjöl
skyldunni í Færeyjum. Hjá hon
um sjálfum kviknaði leiklistaráhugi
þó ekki fyrr en hann var að nálgast
fullorðinsaldur. „Ég ætlaði alltaf að
verða rokkstjarna og eyddi mest
um tíma í að læra á hljóðfæri og
vera í hljómsveitum. Ég kynntist
leiklistinni í gegnum tónlistina en
árið sem Sverrir Bergmann sigraði í
Söngvakeppni framhaldsskólanna
lenti ég í öðru sæti. Atriðið mitt var
mikið leikrit, ég var í korselett og
með hárkollu og tók lag úr Rocky
Horror. Í kjölfarið fékk ég hlutverk
í sýningunni Með fullri reisn en þá
hafði ég aldrei velt því fyrir mér að
verða leikari. Gói, Guðjón Karls
son, var í þessari sýningu og fræddi
mig um það að hér á landi væri
leiklistarskóli – sem ég hafði ekki
hugmynd um – og ef maður færi í
þann skóla væru ansi góðar líkur á
að maður gæti starfað við þetta. Ég
fór í prufur með honum og komst
inn, ansi sáttur. Eftir þetta vorum
við Gói mikið saman, hann leiddi
mig fyrstu árin eftir útskrift.“
Hann segist ekki vita hvort
starfsvalið hafi komið fólkinu sínu
á óvart. „Ég fékk allavega mikinn
stuðning, sérstaklega frá mömmu.
Hún setti aldrei neitt spurningar
merki við það sem ég ákvað að taka
mér fyrir hendur, tók því öllu og
studdi mig. Henni fannst bara frá
bært að ég ætlaði að verða leikari.“
Tengdapabba leist ekkert á
Eiginkona Jóhannesar heitir Rósa
Björk og saman eiga þau tvö börn,
Ólöfu Höllu, sem verður sjö ára á
árinu, og Stefán Hauk, sem verður
fjögurra ára. Hjónakornin kynnt
ust fyrir tólf árum og giftu sig fyrir
þremur árum. „Ég var hálfnaður
með leiklistina og Rósa var í háskól
anum í hagfræði þegar við kynntu
mst á efri hæðinni á Dubliner. Sæti
okkar voru bak í bak og ég reyndi
eitthvað að sjarmera hana og vin
konur hennar. Það heppnaðist
greinilega og við fórum að hittast
í kjölfarið. Ég man samt að pabbi
hennar var ekkert of hrifinn. For
eldrar hennar búa úti á landi og
þegar hún hringdi og sagði pabba
sínum frá þessum unga leiklistar
nema sló þögn á manninn. Það
eina sem hann sagði var; talaðu við
mömmu þína, sem spurði hana í
kjölfarið hvort ég væri drykkfelldur.
En svo fór ég seinna á Egilsstaði
með henni og sjarmeraði þau líka.
Við eigum gott samband í dag og
karlinn hefur til dæmis kennt mér
á skíði.“
Óttaðist föðurhlutverkið
Jóhannes Haukur viðurkennir að
hafa óttast ábyrgðina sem fylgdi
föðurhlutverkinu. „Ég var mjög
hræddur þegar konan mín varð
fyrst ófrísk og viss um að nú væri lífi
mínu lokið. Það var náttúrlega bara
vitleysa eins og ég komst að um leið
og barnið fæddist. Þetta er það sem
lífið snýst um. Ég hef bara alltaf ver
ið svolítið sjálfmiðaður einstakling
ur, sem er gott fyrir leikara, og var
hræddur um að ég gæti ekki hugs
að um barn. Raunin er hins vegar
sú að barnið verður eins og fram
lenging af sjálfum manni, öll eigin
sjálfmiðun yfirfærist á barnið. Mér
finnst föðurhlutverkið eiga mjög
vel við mig,“ segir hann og játar það
kinnroðalaust að vera dálítið mik
ið upptekinn af sjálfum sér. „Það er
eitthvað sem konan mín segir mér
og ég gengst alveg við því. Til dæm
is nýt ég þess í botn að hlusta á eða
horfa á mig á meðan flestum öðr
um finnst slíkt óþægilegt. Ég upplifi
bara mikla sjálfsánægju og finnst
ég oft alveg frábær. Kannski er þetta
einhver snefill af sjálfsdýrkun en
ég vil meina að ég geri þetta til að
betrumbæta mig; meta vinnufram
lag mitt í tilraun til að gera betur.
Ég er líklega ekki mjög dóm
harður á sjálfan mig og á auðvelt
með að hrósa mér. Kona mín ger
ir mikið grín að þessu hjá mér. Ég
var líka lengi vel að draga hana inn
í þetta með mér með því að fá hana
til að lesa yfir handrit með mér. Hún
hefur þó ekki gert það í sex ár, fékk
nóg einn daginn, lagði frá sér hand
ritið og sagðist ekki nenna þessu og
bað mig vinsamlegast að sjá um
mína vinnu sjálfur. Ég hélt að hún
hefði mikla ánægju af því að hlýða
mér yfir en hún kom mér í skilning
um að að sjálfsögðu var það ekki
þannig. Þegar hún bað mig svo að
prófarkalesa 80 blaðsíðna ritgerð
hennar um stærðarhagkvæmni
mjólkurframleiðslu á Íslandi komst
ég í gegnum eina og hálfa blað
síðu. Ég gat ekki meira. Áhugasvið
okkar eru ólík. En svo kemur hún í
leikhúsið þegar afurðin er tilbúin.
Ég læt samt eiga að lesa hagfræði
greinarnar hennar.“
Skuldajöfnun á dánarbeði
Jóhannes Haukur hefur verið starf
andi leikari frá útskrift. „Ég hef ver
ið lánsamur á mínum tíu ára ferli
og hef alltaf haft nóg að gera. Það
eru alls ekki allir sem fá vinnu við
leiklist á Íslandi en ég hef ekki þurft
að kvarta yfir verkefnaskorti. Þess
vegna höfum við hjónin alltaf lagt
jafn mikið til heimilisins. Lengi vel,
á meðan við vorum í námi, vorum
við með blað uppi á vegg þar sem
við skráðum niður það sem við
keyptum og skuldajöfnuðum svo
innkaup okkar einu sinni í mánuði.
Blaðið er ekki lengur uppi á vegg
en við borgum enn þá allt 50/50
og erum ekki með sameiginlegan
reikning. Svo ef mér finnst ég hafa
borgað meira til heimilisins einn
mánuðinn læt ég hana borga meira
næst og svo öfugt. Kannski er þetta
pínu hjákátlegt og það er spurning
hvort við verðum enn að skulda
jafna á dánarbeðinum en þar sem
okkur er þetta báðum eðlislægt höf
um við þetta svona,“ segir hann og
bætir kátur við að hann eigi mikið
inni vegna summunnar sem hann
hafi fengið fyrir sjónvarpsþættina.
„Og hún fær alveg að heyra það frá
mér,“ segir hann brosandi.
Frægur eftir miðnætti
Hann segist hafa heillast af ákveðni
Rósu Bjarkar. „Hún er svo sjálf
stæð, klár og greind. Ég veit að
hún myndi alltaf spjara sig án mín
og það er það sem heillaði mig, að
hún væri ekki einhver sem ég þurfti
að bjarga eða sjá um. Hún er fullfær
um það sjálf. Er ekki einmitt sagt að
maður finni sér maka út frá foreldri
sínu? Ég held að það eigi við hér.
Mamma, sem ól mig upp ein, hef
ur alltaf verið sjálfstæð. Ég sé mikið
af mömmu í Rósu, þessa sterku
Marokkó Jóhannes Haukur hefur verið við tökur meira og minna í Marokkó frá því í haust. Mynd Úr einkaSaFni„Ég er lík-
lega ekki
mjög dómharður
á sjálfan mig og
á auðvelt með
að hrósa mér
Fjölskyldan heimsótti hann Jóhannes saknaði barnanna mikið og grét sig í svefn
fyrstu nóttina. Mynd Úr einkaSaFni
Ætlaði að verða
rokkstjarna
Jóhannes Haukur
átti sér drauma
um að verða rokk-
stjarna. Tónlistin
leiddi hann út í
leiklistina. Mynd
SigTryggur ari
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofanar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf