Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Blaðsíða 4
Helgarblað 29. maí–1. júní 20154 Fréttir
Heill heimur af pylsum!
Hrísateig 47
Pylsur á pönnuna
en einnig úrvals skinkur og álegg á veisluborðið
að ógleymdri svínasultunni, beikoninu og ýmsu öðru góðgæti.
Gæðapylsur og skinkur án allra auka-
og fylliefna og án MSG. Framleiddar eftir
uppskriftum frá öllum heimshornum.
Íslenskt kjöt – íslensk framleiðsla!
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
UPPFYLLIR
SKILYRÐI
NÁLARAUGANS
Paleo
GABS
SCD
Í
búi í Eyja- og Miklaholtshreppi
þarf að greiða 50 þúsund króna
sekt til ríkissjóðs vegna ummæla
sem hann lét falla á Facebook-
síðu sinni um þáverandi oddvita
hreppsins, Guðbjart Gunnarsson.
Ummælin voru að auki dæmd dauð
og ómerk.
Ummælin tengdust Guðbjarti
og Ólafi Ólafssyni, oftast kenndum
við Samskip. Ólafur á jörð í Eyja- og
Miklaholtshreppi. Ummælin sem
íbúðinn lét falla voru eftir farandi:
„En það vantar ekki að hann smjaðr-
ar fyrir Ólafi sem á […] Enda gaf
Ólafur honum nýjan traktor (mútur
eða hvað?)“
Konan sagði fyrir dómi að um-
mælin hefðu tengst deilum sínum og
fjölskyldu sinnar við Ólaf. Viðkom-
andi taldi að um væri að ræða „vald-
níðslu gagnvart fjölskyldu“ sinni auk
þess sem að til staðar væru „undar-
leg tengsl oddvitans“ við Ólaf og eig-
inkonu hans.
Í dómnum kemur fram að með
Facebook-færslunni hafi viðkom-
andi ýjað að því að oddvitinn hafi
gerst sekur um refsivert brot í starfi,
en að hann hafi raunar fengið lán-
aðan plóg og traktor frá Ólafi, líkt og
algengt væri milli bænda. Ekki hefði
verið um að ræða gjöf. Sektina og
málsvarnarlaun, 1,2 milljónir, þarf
konan því að greiða vegna málsins. n
ritstjorn@dv.is
Dýr Facebook-færsla
Ýjaði að því að oddviti hefði gerst sekur um refsivert brot
Deilur í sveitinni Ólafur
reyndist hafa lánað dráttarvél-
ina til oddvitans. MynDin er úr safni
Halldór bor-
inn til grafar
„Halldór var fyrst og
síðast heilindamaður,“
segir Davíð Oddsson,
ritstjóri Morgunblaðsins, í
minningargrein í Morgunblaðinu
um Halldór Ásgrímsson,
fyrrverandi forsætisráðherra, sem
borinn var til grafar á fimmtudag.
Davíð er í hópi fjölmargra sem
skrifa minningargrein í blaðinu
um Halldór. Davíð segir Halldór
hafa verið samviskusaman
mann sem tók verk sín alvarlega,
hann hafi verið atorkusamur
og ósérhlífinn. „Hann var
viðkvæmur maður með ríka
samúð gagnvart náunga sínum,“
segir Davíð einnig.
Halldór lést þann 18. maí síð-
astliðinn, 67 ára að aldri, í sumar-
húsi sínu í Grímsnesi.
Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, segir
orðið „höfðingi“ koma upp í hug-
ann þegar Halldórs sé minnst.
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi
forsætisráðherra, segir Halldór
hafa verið ríkan af drengskap.
Geir Haarde, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, segir að Halldór hafi um
margt verið líkur Ólafi Jóhannes-
syni. „Menn þurftu ekki að vera
sammála honum en alltaf var
hægt að treysta orðum hans.“
Útför Halldórs fór fram frá
Hallgrímskirkju í gær, fimmtudag,
klukkan eitt, á vegum ríkisins.
Bekkir Hallgrímskirkju voru
þéttsetnir og voru Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra og Davíð
Oddsson meðal líkmanna.
„Við munum auð-
vitað halda skilorð“
Lögmaður fagnar því að Hæstiréttur hafi hlustað á málsbætur fólksins
S
kúli Bjarnason, lögmaður
nímenninganna úr Gálga-
hraunsmálinu, var varkár í
sínum fyrstu viðbrögðum rétt
eftir dómsuppkvaðninguna
í Hæstarétti. Skúli fagnaði þó dómn-
um, sagðist í fljótu bragði líta á hann
sem hálfan sigur og taldi gott að
Hæstiréttur hlustaði á málsbætur
fólksins, en það hefði ekki verið gert
í héraðsdómi.
Nímenningarnir fóru inn á fram-
kvæmdasvæði við vegarlagningu í
Gálgahrauni í október 2013 er þeir
voru að mótmæla framkvæmdum
þar og voru fyrir vikið dæmdir í 150
þúsund króna sektargreiðslu eða átta
daga fangelsi ef greiðsla væri ekki innt
af hendi. Enn fremur voru þeir dæmd-
ir til greiðslu hluta málskostnaðar.
Í dómi Hæstaréttar er sektar-
greiðslan skilyrt þannig að hún fellur
niður ef sakborningar halda skilorð í
tvö ár.
„Fyrstu viðbrögð eru að þetta sé
í það minnsta hálfur sigur. Það er að
minnsta kosti hlustað á fólk,“ sagði
Skúli í stuttu samtali við DV.
Tugir handteknir, níu ákærðir
Alls voru níu, tveir karlar og sjö konur,
ákærð fyrir að óhlýðnast fyrirmælum
lögreglu þegar þau mótmæltu vega-
gerð í Gálgahrauni þann 21. október
2013. Þegar mótmælin stóðu sem
hæst voru raunar tugir manna hand-
teknir og færðir í einangrun, en aðeins
hluti þeirra var formlega ákærður.
Mótmælin snerust um lögmæti
fyrirhugaðrar framkvæmdar við lagn-
ingu nýs Álftanesvegar um þvert
Gálgahraun. Mótmælendur töldu að
bíða ætti niðurstöðu dómstóla áður
en framkvæmdir hæfust, en þá höfðu
fern náttúruverndarsamtök, Land-
vernd, Náttúruverndarsamtök Ís-
lands, Náttúruverndarsamtök Suð-
vesturlands og Hraunvinir höfðað
dómsmál til þess að fá skorið úr um
lögmæti framkvæmdarinnar.
Mótmælin voru friðsamleg, en
mótmælendur tóku sér stöðu í hraun-
inu, sátu og neituðu að færa sig þrátt
fyrir fyrirskipun lögreglunnar. Lög-
reglan taldi þá vera að trufla aðgerðir
í hrauninu á vinnusvæði, en mótmæl-
endurnir sögðu lögregluna hafa skil-
greint vinnusvæðið eftir á með því að
færa til borða.
stilling og rósemi
Sakborningarnir tóku niðurstöðunni
af stillingu og rósemi og voru dálitla
stund að átta sig á því hvað fælist í
dómsorðinu. En viðbrögð allra voru
jákvæð og þau töldu sigur hafa unn-
ist.
„Þetta er mikill sigur,“ sagði
Gunnsteinn Ólafsson við blaða-
mann DV. „Það er engin sekt ef við
höldum skilorð. Ríkið heldur and-
litinu með þessum dómi en ég get
ekki litið á þetta öðruvísi en sem
sýknun og mikinn sigur fyrir okkur
því það er bara hreinlega verið að
viðurkenna það að menn hafi farið
offari í þessu máli. Það er greinilegt
að dómararnir álíta að lögreglan hafi
farið offari.“
Halda skilorð
„Við munum auðvitað halda skilorð
enda erum við öll með hreint
sakavottorð,“ sagði Viktoría Áskels-
dóttir, ein nímenninganna. Hún sagð-
ist þó áskilja sér rétt til að fá að taka
þátt í mótmælum áfram. „Það er von-
andi ekki búið að banna mér að mót-
mæla. En ég er ánægð. Þetta er mikill
sigur þó að ríkið reyni að halda and-
litinu,“ bætti Viktoría við. n
Í Hæstarétti Nímenningarnir og lögmaður þeirra voru byrjuð að
melta niðurstöðuna. MynD DV eHf / sigTryggur ari
Viktoría Áskelsdóttir Viktoría var ánægð með niðurstöðuna.
MynD DV eHf / sigTryggur ari
nímenningarnir
Allt fólkið er með
hreint sakavottorð.