Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Blaðsíða 60
52 Fólk Helgarblað 29. maí–1. júní 2015
Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík / Hús Blindrafélagsins / Sími 552-2002
Sama veRð í 7áR!
Þunnar
og þægilegar
daglinsur
2500 kr.
Gjaldþrot stjarnanna
n Uppspretta peninga er ekki endalaus n Það hefði verið gott að leggja fyrir
Þ
egar maður þénar mörg
hundruð milljónir á ári, eða
jafnvel milljarða, ætti að vera
auðvelt að leggja til hliðar í
smá sjóð og geyma til mögru
áranna. Það er þó regla sem ekki all-
ar Hollywood-stjörnur hafa tileinkað
sér og fyrir vikið hefur þeim tekist að
verða gjaldþrota. Það getur nefnilega
ýmislegt komið upp á þegar mað-
ur er frægur og skatturinn gerir ekki
greinarmun á Jóni og séra Jóni. Hér
er listi yfir nokkrar stjörnur sem ekki
hafa kunnað að fara með peninga.
Einhverjar þeirra hafa þó náð sér aft-
ur á strik eftir að hafa lýst sig gjald-
þrota. n
Eyddi öllu á níu árum
Wayne Newton komst í heimsmetabók Guinness árið 1983 fyrir að vera launahæsti
skemmtikrafturinn fram að þeim tíma. Þrátt fyrir þann merka titil tókst honum að eyða
öllu sem hann hafði þénað á um níu árum og árið 1992 lýsti hann sig gjaldþrota. Það er
eflaust ekki á allra færi að eyða svo miklum peningum á ekki lengri tíma, en þetta tókst
Newton og gerði hann það með stæl.
Seldi eignirnar
Nicholas Cage var lengi vel einn vinsælasti leikarinn í Hollywood
og eignir hans voru á metnar á tugi milljarða. Honum tókst engu
að síður að koma sér í hundruð milljóna króna skuldir og neyddist
til að selja alla kastalana sína, óðalssetrin, skúturnar og önnur
tæki, til að eiga fyrir skuldunum. Með því að losa sig við eitthvað
af þessu tókst honum að bjarga sér frá stóru gjaldþroti.
Gerði meðlagið útslagið?
Leikarinn Brendan Fraser hefur ekki verið neitt sérstaklega
heppinn með hlutverk á síðustu árum. Hvort hann hafi slæma
dómgreind á hvað eru góð hlutverk, eða hvort honum býðst ekk-
ert betra, skal látið ósagt. En hann hefur ekki riðið feitum hesti
frá verkefnum í Hollywood nýlega. Hann virðist hafa lifað hátt í
kjölfar lítillar velgengni, eytt um efni fram og á sama tíma greitt
háar meðlagsgreiðslur með börnum sínum. Hann þurfti allavega
að óska eftir gjaldþrotaskiptum.
Gat ekki borgað leigu
Barnastjarnan Lindsey Lohan hefur ráðið illa við frægðina og átt í miklum vandræðum
með áfengi og fíkniefni. Hún stundaði skemmtanalífið mjög grimmt á tímabili og eyddi
peningum af miklum móð. Á sama tíma fækkaði hlutverkum sem henni buðust og inn-
koman varð lítil sem engin. Varð það til þess að Lohan gat á tímabili ekki borgað leigu, en
hún virðist eitthvað hafa rétt úr kútnum á síðustu mánuðum.
Réð einkaspæjara
Courtney Love var meinaður aðgangur að sjóðum dóttur sinnar
eftir að eiginmaður hennar og barnsfaðir, Kurt Cobain, svipti sig
lífi árið 1994. En hún hafði þá eytt um efni fram og vantaði pen-
inga. Love vill hins vegar meina að svikarar hafi stolið af henni fé
og réð á sínum tíma einkaspæjara til að hafa upp á þeim.
Gjaldþrot ofurmódels
Fyrsta ofurmódelið, eins og fyrirsætan
Janice Dickinson kallar sig gjarnan,
neyddist til að lýsa sig gjaldþrota
eftir farsælan feril þegar henni hafði
tekist að safna skuldum upp á hundruð
milljóna króna.
Velgengni í kjölfar gjaldþrots
Að lýsa sig gjaldþrota þýðir ekki alltaf að viðkomandi sé búinn
að vera fjárhagslega. Í sumum tilfellum virðist slíkur gjörningur
einfaldlega vera táknræn yfirlýsing um nýtt upphaf. Hvort það
var tilfellið hjá Larry King er hins vegar óvíst. En það vildi engu að
síður svo skemmtilega til að sama ár og hann óskaði eftir gjald-
þrotaskiptum fékk hann boð um að taka að sér sjónvarpsþátt
sem fékk nafnið Larry King Live. Hann á því áratuga farsælan
feril að baki eftir gjaldþrotið og náði sér heldur betur á strik
fjárhagslega.
Svik umboðsmanna
Söngvarinn Meatloaf rak umboðsmenn
sína árið 1981 eftir að hann komst að
því að þeir höfðu stolið frá honum fé.
Í kjölfarið tókst umboðsmönnunum
að láta frysta eignir Meatloaf á þeim
forsendum að hann hefði rift samningi
við þá á ólöglegan hátt. Þá dreifðu
þeir alls konar óhróðri um söngvarann,
sem hefur varla borið sitt barr síðan.
Meatloaf gafst loksins upp og lýsti sig
gjaldþrota því hann gat ekki staðið undir
skuldunum.
Hátt fall
Goðsögnin Burt Reynolds var einn af
launahæstu leikurum í Hollywood á
áttunda áratug síðustu aldar. Þrátt fyrir
það neyddist hann til að lýsa sig gjald-
þrota aðeins tveimur áratugum síðar.