Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Blaðsíða 27
Helgarblað 29. maí–1. júní 2015
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem
er undir álagi og fæst við flókin verkefni.
Hentar vel eldri borgurum, lesblindum og
nemendum í prófum. Dregur úr streitu,
eykur ró og bætir skap.
Bodyflex
Strong
Bodyflex Strong mýkir liðamót og dregur
úr verkjum í þeim og styrkir heilbrigði
burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki
laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Birkilaufstöflur
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á vökva-
jafnvægi bæði líkama og húðar og örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum, losar vatn úr líkamanum og
dregur úr bólgum.
Evonia færir hárrótinni næringu og styrk
til þess að efla hárvöxt. Evonia er hlaðin
bætiefnum sem næra hárið og gera það
gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
Umræða Stjórnmál 27
Þegar Íslendingar voru mestir og bestir
af aurum api; þeir höfðu ekki fyrr
komist yfir peninga en þeir fóru að
gera sig að viðundrum með bjána-
skap og flottheitum, Bentley-bíl-
um, einkaþotum og yfir drifnum
lúxussnekkjum.
Áfram með grein
Svans Kristjánssonar
Höldum áfram að vitna í stórfróð-
lega grein Svans Kristjánssonar
í Skírni. Hann vitnar í fyrirlestur
sem forsetinn hélt í Belgrad 2004.
„Í Belgrade-fyrirlestrinum nafn-
greindi forsteinn hin íslensku fyrir-
tæki sem hefðu orðið að meirihátt-
ar alþjóðlegum fyrirtækjum /…/
Lykillinn að velgengni þeirra allra,
sagði forsetinn, var viðskiptamenn-
ingin (business culture) sem hefði
sex megineinkenni:“ Síðan eru
þessi sex einkenni talin upp, og
vel að merkja er skortur á „flóknu
regluverki“ tvítalinn sem höfuð-
kostur. Eitt einkennið er orðað
svona: „Mikill sköpunarkraftur. Í ís-
lenskri menningu hefðu skapandi
einstaklingar ætíð notið mikill-
ar virðingar, fólk sem gæti ort ljóð
og hefði frásagnargáfu. Aðdáun á
skapandi einstaklingum hefði verið
yfirfærð á frumkvöðla og athafna-
menn í viðskiptalífinu sem eru
kallaðir „athafnaskáld“ – skáld
athafnanna. Með hnattvæðingu
viðskiptalífsins getur slíkur sköp-
unarkraftur ráðið úrslitum.“ Um
þetta mætti ýmislegt segja, en í
hina röndina er það óþarfi, segir sig
sjálft. En það var eitt af þessum sex
atriðum sem vakti alveg sérstaka
athygli mína, og hljóðar svo: „Mikil
áhersla er lögð á árangur, að vinna
strax þau verk sem þarf að vinna.
Munurinn á Svíum og Íslendingum
að þessu leyti sé mjög skýr. Þannig
voru Svíi og Íslendingur á ferð
saman í Afríku. Þegar bíllinn bil-
aði alvarlega fór Svíinn að skrifa
bréf til að biðja um hjálp en Ís-
lendingurinn steig út og gerði við
bilunina.“ (leturbreyting ek)
Við erum svo miklu fremri
hinum Norðurlandaþjóðunum
Hér náttúrlega á ferðinni það herfi-
legasta af allri vitleysu bóluár-
anna, en það var sú útbreidda og
margendurtekna dellukenning að
við Íslendingar værum á einhvern
hátt fremri og betri en nágrannar
okkar og frændur. Og skoðum þetta
nánar: Íslendingur kunni að gera
við bíl, en Svíi ekki. Nú er það ef-
laust svo að meðal beggja þjóða sé
hægt að finna einstaklinga sem eru
misflinkir í bílaviðgerðum. En er
einhver sérstök ástæða til að álykta
sem svo að þarna séu þjóðarein-
kenni á ferðinni? Í því sambandi
mætti kannski minna á að áratug-
um saman hafa Svíar hannað og
smíðað bíla, sem er öllu meira en
sagt verður um okkar ágætu þjóð.
Og Svíar bjuggu meira að segja til
bíla sem voru þekktir fyrir endingu
og vandvirkni: Volvó, Saab og
Scania Vabis. Svo það er ekki fráleitt
að ætla að einhverjir af því þjóðerni
séu vel til þess bærir að laga þannig
bíla þegar þeir bila. Og að það sé
ekki einkakunnátta Íslendinga.
Og munurinn á Svíum og Ís-
lendingum þegar kemur að ár-
angri?! Það þarf ekki að telja upp
öll góðu og árangursríku fyrirtæk-
in sem Svíar hafa stofnað og rek-
ið og eru sum meira en aldargöm-
ul stórveldi á heimsvísu. Og ég held
að það verði að flokkast undir ágæt-
is árangur. Þess utan verður það
ekkert af Svíum tekið, og er meira
en sagt verður um okkur hérlands-
menn, að þeir hafa rekið árangurs-
ríkt og friðsælt samfélag síðustu
aldirnar, með furðu góðum jöfnuði,
velmegun og stöðugleika. Og ekki
alveg víst að margir hafi efni á að
gera lítið úr því.
Það eina sem maður verður að
vona, og biðla til allra góðra vætta
um, er að útlendingar frétti sem
fæstir að svona töluðu okkar tals-
menn, rétt áður en allt hrundi hér
á landi. n
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR
„Hvað var nú
þetta? Hvert var
nú tilefnið til að fara að
blanda Íslendingasögum,
skáldum og jafnvel hinum
góðu ömmum okkar inn í
umræðuna?