Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Side 30
2 Ferðaþjónusta - Kynningarblað Helgarblað 29. maí–1. júní 2015
Gisting í fallegu umhverfi í alfaraleið
Glaðheimar sumarhús og Hótel Blönduós
G
laðheimar Sumarhús eru í alfaraleið,
við þjóðveg 1 á Blönduósi og eru opin
allt árið. Á svæðinu er rekið tjaldsvæði
og einnig er þar upplýsingamiðstöð.
„Við bjóðum upp á 19 sumarhús
af ýmsum stærðum og gerðum. Í flestum geta
4–6 gist í einu,“ segir Lárus B. Jónsson hjá
Glaðheimum Sumarhúsum. „Flest þeirra eru
með heitum potti og nokkur eru með sána.
Öll sumar húsin eru til leigu allt árið.“ Um
hverfið er fallegt og upplagt að láta sér líða
vel í sumarhúsunum á bökkum Blöndu og
náttúruperlan Hrútey er þar örstutt frá og
gönguleiðir niður með Blöndu að sjó.
Glaðheimar Sumarhús leigja einnig út fjór
ar stúdíóíbúðir og er hver þeirra hentug fyrir
fjögurra manna fjölskyldu. Þær eru í næsta ná
grenni sundlaugarinnar á Blönduósi, sem er
ein af betri sundlaugum landsins.
Glaðheimar Sumarhús eru að Brautar
hvammi, Blönduósi. Síminn er 8201300 og
6903130, netfang gladheimar@simnet.is .
Bókunarhnappur er á heimasíðunni glad
heimar.is n
S
ami eigandi rekur einnig 16 herbergja
hótel, Hótel Blönduós og gistiheimili.
Blönduós er stærsti þéttbýlisstaður
inn við Húnaflóa og er Hótel Blöndu
ós í hjarta bæjarins og í alfaraleið.
Samgöngur eru góðar og Hótel Blönduós
því tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem eru
á ferðinni, til að gista í og njóta þess sem
Blönduós hefur upp á að bjóða, áður er haldið
er á næsta áfangastað. Frá Hótel Blönduósi er
stutt í fjöruna og fjölda fallegra gönguleiða.
Rétt utan við Blönduós er níu holu golfvöllur
í Vatnahverfi.
Fjöldi safna er á Blönduósi; Heimilisiðnað
arsafnið, Hafíssetrið, sem staðsett er í Hille
brandtshúsi í elsta bæjarhlutanum, Textílsetur
Ísalands og Laxasetur Íslands.
Flest herbergin á Hótel Blönduósi eru
tveggja manna og baðherbergi inni á hverju
herbergi. Morgunmatur er í boði fyrir hótel
gesti á veitingastað hótelsins, en hann má
einnig bóka sem kvöldmat fyrir stærri hópa.
Einnig er gistiheimili 300 metra frá Hótel
Blönduós þar sem að 30 manns geta gist. Her
bergin þar eru tveggja manna. Hótel Blöndu
ós er að Aðalgötu 6, Blönduósi. Símar eru
4524205, 8981832 og 8201300, netfangið er
hotelblonduos@simnet.is. n
Á hreindýraslóðum í
náttúrufegurð Austfjarða
Skjöldólfsstaðir á Jökuldal – Gisting og fjölbreytt afþreying
Á
Skjöldólfsstöðum á Jökuldal
er rekið aðlaðandi gistiheim
ili með góðri aðstöðu fyrir
alla ferðalanga. Hvort sem er
hópa sem vilja borða saman
í virðulegum sal, eða ferðalanga sem
gista í tjaldi. Á Skjöldólfsstöðum er
hægt að mæta óskum allra. Gisti
heimilið er í dag með 12 herbergi,
tvö eins manns, níu tveggja manna
og eitt fjögurra manna. Herbergin
er hægt að panta uppábúin eða sem
svefnpokapláss. Verið er að leggja
lokahönd á tíu tveggja manna her
bergi, með baðherbergi og uppábún
um rúmum, sem ráðgert er að taka í
gagnið um mánaðamótin júní júlí.
Hægt er að fá barnarúm.
Sameigin leg baðaðstaða og inni
falinn er aðgangur að heitum potti og
sundlaug.
Skjöldólfsstaðir státa af rúmgóðu
tjaldsvæði með aðgangi að rafmagni.
Sturtur, heitur pottur og sundlaugin
eru innifalin í verði inn á tjaldsvæð
ið. Í Hákonarstofu sem staðsett er á
tjaldsvæðinu er hægt að sitja við op
inn eld og orna sér á fallegum sumar
kvöldum. Ekki gleyma gítarnum.
Hreindýrabollur, áfengi og ís
Fjölbreytt veitingasala er á Skjöld
ólfsstöðum. Boðið er upp á mat, kaffi
og áfengi ásamt gosi, ís og sælgæti. Á
matseðli er meðal annars matur úr
Héraði: silungur, lamb og hreindýr.
Hægt er að fá hreindýrabollur, kjöt
súpu, hreindýra og lambaborgara,
steikur og fleira. Með kaffinu er boð
ið upp á heimabakað bakkelsi. Í júní
verður matseðillinn þó einfaldur þar
sem verið er að leggja lokahönd á
herbergisframkvæmdir.
Á neðri hæð veitingasalar er
barnahorn með sjónvarpi, dvd
spilara, leikföngum, dýnum og
púðum. Á staðnum fást einnig
minjagripir úr Héraði, en Ólafía Sig
mundsdóttir er þar með vinnustofu
og saumar muni úr hreindýraleðri.
Dansleikir, fundir og ráðstefnur
Góður 120 manna veislusalur er á
Skjöldólfsstöðum. Þar er tilvalið að
halda brúðkaup, afmæli, fermingar,
erfidrykkjur, árshátíðir, dansleiki,
fundi, ráðstefnur og fleira.
Góð aðstaða er til að sýna hvers
kyns myndir og halda fyrirlestra en
skjávarpi og tjald eru á staðnum.
Ýmsir viðburðir eru ár hvert
haldnir á Skjöldólfsstöðum. Fyrstu
helgina í júní er árleg opnunarhátíð
með ýmsum viðburðum fyrir börn
og fullorðna. Árlega er haldið upp
á afmæli Hákonar Aðalsteinsson
ar skálds þann 13. júlí. Vegna fram
kvæmdanna verður þessum tveim
ur viðburðum þó fagnað saman í
júlí þetta árið. Fyrstu helgina í sept
ember er dansleikur en Geirmund
ur Valtýsson hefur spilað á þeim
dansleik síðustu 20 ár.
Skjöldólfsstaðir á Jökuldal,
sími: 4711085 og 8951085, net
fang allij@centrum.is og heima
síðan er : www. ahreindyraslod
um.is n