Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Side 48
Helgarblað 29. maí–1. júní 201540 Sport Þess vegna býr KR ekki til betri leikmenn n Einn KR-ingur í einni af bestu deildunum frá upphafi n Lélegar aðstæður Á sunnudag fór ég á KR-völlinn og sá heimamenn vinna ÍBV 1–0. Meðan á leiknum stóð heyrði ég einn áhorfanda kvarta yfir því að KR byggi ekki til betri leikmenn. Hann hafði eitthvað til síns máls, hugsaði ég, Skúli Jón Friðgeirsson var eini uppaldi leikmaðurinn í byrjunarliði. En fótbolti snýst ekki um að spila með sem flesta heimamenn heldur að vinna leiki. Það það þekkja Vesturbæingar betur en nokkrir aðrir. KR er langsigursælasta liðið í íslenskum fótbolta. Liðið hefur orðið Íslandsmeistari 26 sinnum og bikarmeistari 14 sinnum. Þrátt fyrir glæsta sögu hefur liðinu ekki tekist að búa til leikmenn af sömu gæðum og erkifjendurnir í Val og á Skaganum. Séu skoðaðar fimm bestu deildir Evrópu (þær sem oftast hafa unnið Evrópubikarinn), Spán, England, Ítalíu, Þýskaland og Hol- land, hefur aðeins einn KR-ingur leik- ið í þessum deildum, Brynjar Björn Gunnarsson í ensku úrvalsdeildinni. Þá er það athyglisvert að enginn upp- alinn KR-ingur var í leikmannahópi Íslands í eina stóra landsliðsverk- efninu sem lokið er á árinu. Þó er næsta víst að Theódór Elmar Bjarna- son verði valinn fyrir leikinn í næsta mánuði gegn Tékkum en hann var meiddur síðast þegar liðið lék, gegn Kasakstan. Ömurlegar aðstæður Algeng afsökun í Vesturbænum á skorti á toppatvinnumönnum er sú að liðið sé undir pressu á hverju ári að vinna titla. Ef svo er, hvaða góði fótboltamaður hefur ekki fengið tækifæri með meistaraflokki KR? Ef þú ert nógu góður færðu tækifærið. KR-ingar virðast líta svo á að leikmenn verði KR-ingar á því einu að spila í Vesturbænum. Gummi Ben, Pétur Péturs og Atli Eðvalds eru ekki uppaldir KR-ingar en hafa orðið svartir og hvítir á því að leika með liðinu. Eitthvað sem virðist ekki gerast hjá öðrum liðum. Þegar ég kom heim velti ég því fyrir mér sem maðurinn í stúkunni sagði. „Af hverju býr KR ekki til betri leikmenn?“ Svarið liggur ekki í þjálfun að mínu mati. KR-ingar leggja mikið upp úr því að ráða góða þjálfara í yngri flokkum og eru alveg á pari þar við önnur félög. Líklega liggur svarið við spurningunni í aðstæðunum í Vesturbænum. Það æfingasvæði sem er KR hefur afnot af er ekki í líkingu við það sem þekkist í Kópavogi og Hafnarfirði til dæmis. Aðeins einn gervigras völlur er á svæðinu en hann er lélegur og nánast ónothæfur því engin kynding er undir vellinum. Ætli KR sér að búa til betri leikmenn þarf félagið að huga að þessum málum. Mín stuttu kynni af KR Ég get sjálfur deilt minni reynslu eft- ir veru mína hjá KR árið 2004. Þá voru að koma upp drengir fæddir 1983–1987. Áberandi var að fótbolt- inn var ekki í fyrsta sæti hjá drengjum í KR eins og ég upplifði síðan síðar á ferlinum hjá Breiðablik, þar sem fót- boltinn var strákunum allt. Í KR var fótboltinn í þriðja sæti á eftir skólan- um og félagslífinu. Margir af þessum drengjum sem þarna voru áttu eftir að verða góðir námsmenn og eru far- sælir í atvinnulífinu í dag. En enginn af þeim var tilbúinn að leggja mikið á sig til að ná langt í fótbolta. Ég man eftir leik sem við KR-ingar lékum í Færeyjum við HB. Ungu strákarnir í KR máttu ekkert vera að því að fara til Færeyja. Það var svo margt í gangi í fé- lagslífinu í skólanum. Tveir óheppnir Hins vegar voru þarna tveir afgerandi góðir fótboltamenn, Kjartan Henry Finnbogason, þá 18 ára, og Theodór Elmar Bjarnason, þá 17 ára. Tveir frábærir fótboltamenn sem ég hugsaði með mér að gætu farið alla leið. Þeir voru óheppnir. Tóku rangt skref, fóru til Celtic og ferill þeirra hefur aldrei náð því flugi sem ég vonaðist eftir. Ekki misskilja mig, þeir geta báðir litið stoltir um öxl. Theodór Elmar, nú 28 ára, hefur á sínum ferli leikið með Lyn í Noregi, Gautaborg í Svíþjóð og nú með Randers í Danmörku. Á síðasta ári lék hann fjóra leiki með landsliði Íslands í undankeppni EM 2016 í stöðu hægri bakvarðar. Hann var meiddur í síðasta leik gegn Kasökum og þá tók Birkir Már Sævarsson stöðu hans. Kjartan Henry verður 29 ára seinna á árinu. Hann fór á flakk í minni félög á Norðurlöndunum og Skotlandi. Hann kom svo heim til KR árið 2010 og lék með liðinu alveg þar til á síðustu leiktíð. Á þessum tíma vann hann allt sem hægt var að vinna hér á landi og var einn besti leikmaðurinn hér á landi á þessum árum. En hann hefur aldrei náð að fylgja því eftir í atvinnumennsku. Í dag leikur hann með smáliðinu Horsens í næstefstu deild í Danmörku og stendur sig vel, skorar mikið. Björt framtíð Spennandi KR-ingar á leiðinni Í dag eru tveir sérstaklega spennandi KR- ingar erlendis sem gætu komist í sviðsljósið á komandi árum. Rúnar Alex Rúnarsson, 20 ára markvörður, er sonur Rúnars Kristinssonar. Hann er mikið markvarðarefni og gæti í framtíðinni leikið með íslenska landsliðinu. Rúnar lék á dögunum sinn fyrsta leik með danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland. Annar spennandi, hæfileikaríkur leikmaður er Albert Guðmundsson sem leikur með Heerenveen. Albert er framsækinn miðjumaður og af miklu knattspyrnufólki kominn. Það kæmi mér ekki á óvart ef strákurinn fengi tækifæri í hollensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Einn á meðal þeirra bestu Aðeins einn uppalinn KR-ingur leikur í einni af fimm bestu deildum Evrópu. Ástæðan fyrir því að ég valdi England, Þýskaland, Ítalíu, Spán og Holland er sú að lið frá þessum löndum hafa í sögulegu samhengi staðið sig langbest í Evrópukeppni Meistaraliða (Meistaradeild). Ég tek saman íslenska leikmenn sem hafa leikið með íslenskum liðum til 18 ára aldurs. Þó verður að hafa í huga að að erlend félagslið eiga auðvitað stóran þátt þjálfun Eiðs Smára, Gylfa Sigurðssonar og fleiri. n Premier League n Guðni Bergsson – Valur n Eiður Smári Guðjohnsen – ÍR/Valur n Jóhannes Karl Guðjónsson – ÍA n Þórður Guðjónsson – ÍA n Jóhann Guðmundsson – Víðir/ Keflavík n Aron Gunnarsson – Þór Ak. n Brynjar Björn Gunnarsson – KR n Arnar Gunnlaugsson – ÍA n Heiðar Helguson – Dalvík/Þróttur n Hermann Hreiðarsson – ÍBV n Ívar Ingimarsson – Súlan Stöðvarfirði n Eggert Jónsson – Austri/Fram n Þorvaldur Örlygsson – KA n Gylfi Þór Sigurðsson – FH/Breiðablik n Lárus Orri Sigurðsson – ÍA/Þór Ak n Grétar Rafn Steinsson – KS/ÍA n Sigurður Jónsson – ÍA* n Árni Gautur Arason – ÍA ** *Deildin hét Divison 1 þegar hann lék í efstu deild á Englandi. **Lék ekki í deild með Man City en spilaði í FA Cup gegn Man Utd og Tottenham. Hjörvars Hafliðasonar Hápressa LA Liga n Eiður Smári Guðjohnsen – ÍR/Valur n Alfreð Finnbogason – Grindavík/ Fjölnir/Beiðablik n Jóhannes Karl Guðjónsson – ÍA n Þórður Guðjónsson – ÍA n Pétur Pétursson – ÍA Serie A n Birkir Bjarnason – KA n Albert Guðmundsson – Valur n Emil Hallfreðsson – FH n Hörður Björgvin Magnússon – Fram Bundesliga n Magnús Bergs – Valur n Atli Edvaldsson – Valur n Bjarni Guðjónsson – Valur n Þórður Guðjónsson – ÍA n Lárus Guðmundsson – Víkingur R. n Pétur Ormslev – Fram n Gylfi Sig. – FH/Breiðablik/Reading n Helgi Sigurðsson – Víkingur R. n Ásgeir Sigurvinsson – ÍBV n Eyjólfur Sverrisson – Tindastóll n Gunnar Heiðar Þorvaldsson – ÍBV Erdevise n Alfreð Finnbogason – Grindavík/ Fjölnir/Breiðablik n Eiður Smári Guðjohnsen – ÍR/Valur n Joey Guðjónsson – ÍA n Jóhann Berg Guðmundsson – Breiðab. n Aron Gunnarsson – Þór Akureyri n Arnar Gunnlaugsson – ÍA n Victor Pálsson – Fjölnir/Fylkir/ Liverpool n Pétur Pétursson – ÍA n Kolbeinn Sigþórsson – Víkingur/HK n Grétar Steinsson – KS/ÍA n Bjarki Gunnlaugsson – ÍA n Gunnar Einarsson – Valur n Jóhannes Harðarson – ÍA England Þýskaland Holland Í slökum liðum Rúnar Kristinsson er án efa einn hæfileikaríkasti knattspyrnumaður sem komið hefur úr yngri flokka starfi KR, hann var í frægum 69-árgangi KR sem þykir einn sá besti í félaginu. Hann er leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 104 leiki og einn besti miðvallarleikmaður sem við höfum átt. Á atvinnumannsferli sínum lék Rúnar ekki með jafn öflugum liðum og hæfileikar hans gáfu tilefni til. Hann var á 25. aldursári þegar hann fór loks út og lék á 13 ára atvinnumannsferli með Örgryte, Lilleström og Lokeren. En þegar hann var yngri var erfiðara að komast út vegna kvóta á erlenda leikmenn en hins vegar er það synd að þessi frábæri leikmaður hafi ekki átt betri atvinnumannsferil en raun ber vitni. Í Frostaskjóli KR-ingurinn Guðmundur Reynir Gunnars- son fór í atvinnumennsku og lék í Svíþjóð 2008 til 2009 en leikur nú með Víkingi Ólafssvík í fyrstu deild. MynD PRESSPHoToS.Biz Spánn Ítalía Brynjar Björn Gunnarsson er sá KR-ingur sem staðið hefur sig best í atvinnu- mennsku. Brynjari gekk illa í atvinnumennsku til að byrja með. Fyrst fór hann 23 ára til Valerenga í Noregi og var þaðan lánaður til Moss. En 24 ára færði hann sig yfir til Svíþjóðar áður en Guðjón Þórðarson, fyrrverandi þjálfari Brynjars hjá KR og landsliðinu, fékk Brynjar til sín til Stoke City. Eftir það fóru hlutirnir að ganga upp hjá Brynjari. Hann fór með Stoke úr C-deild. Þaðan fór hann til Nottingham Forrest og Watford áður en hann gekk til liðs við Reading. Þar náði Brynjar að leika 43 leiki í efstu deild og er eini KR-ingurinn til að leika með liði í einu af fimm bestu deildum Evrópu (Spánn, England, Þýskaland, Ítalía og Holland). Brynjar besti atvinnumaður KR frá upphafi Þórólfur Beck í Skotlandi Þórólfur Beck var á sínum tíma einn besti leikmaður Íslands. Þórólfur hélt til Skotlands árið 1961 þá 21 árs og lék með St. Mirren í þrjár leiktíðir áður en stórlið Glasgow Rangers fékk hann til sín. Þar gengur hlutirnir ekki sem skyldi og lék Þórólfur aðeins ellefu leiki með Rangers þær tvær leiktíðir sem hann var hjá liðinu. Eftir það hélt Þórólfur til Frakk- lands og síðar Bandaríkjanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.