Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Síða 14
Helgarblað 7.–10. ágúst 201514 Fréttir Erlent
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin f
PLANKAPARKET
840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Þóttist hafa dáið
Árið 1979 fékk Margaret Thatcher, þáverandi forsætisráðherra Bretlands,
upplýsingar um að þingmaðurinn John Stonehouse hefði verið njósnari
fyrir Tékkóslóvakíu frá árinu 1962. Hafði Stonehouse selt áfram upplýs
ingar en þrátt fyrir þessa vitneskju Thatcher og samstarfsmanna hennar
var ákveðið að aðhafast ekkert frekar í málinu þar sem sönnunargögn
in væru af skornum skammti og alls óvíst að hægt væri að dæma hann
fyrir landráð. Líf Stonehouse fram að því hafði verið nokkuð æsilegt, en
á þessum tíma sat hann í fangelsi þar sem hann hafði verið dæmdur fyr
ir margs konar svik og pretti, eða alls 21 ákærulið. Forsaga þess var sú
að árið 1974 hafði hann skilið fötin sín eftir á sólarströnd í Miami og lét
sig hverfa. Hann var talinn af, en hafði raunar flúið með ástkonu sinni til
Ástralíu. Stonehouse hafði áttað sig á því að honum var ekki vært í Bret
landi þar sem ósáttir viðskiptamenn eltu hann á röndum. Þegar hann
fannst var hann dæmdur til sjö ára fangavistar.
Leiddur í gildru
Brooks Newmark, ráðherra Íhaldsflokksins, sagði
af sér embætti í fyrra eftir að hafa verið leiddur
í gildru af breskum blaðamanni. Blaðamaður
inn, sem starfaði fyrir Sunday Mirror, þóttist vera
„íhaldsstelpa á þrítugsaldri“ sem starfaði við al
mannatengsl og sendu þau á milli sín nektarljós
myndir. Newmark sagði af sér, en hann kvart
aði einnig undan aðferðum dagblaðsins og taldi
það hafa beitt fyrir sig vafasömum aðferðum sem
stæðust engar siðareglur. Blaðamaðurinn, sem var raunar ungur karl
kyns blaðamaður, hafði notað myndir af sænsku módeli til að tæla New
mark. Hann notaði Twitter til að ná sambandi við Newmark og fljótlega
fóru ráðherrann og blaðamaður
inn að tala saman, daðra og senda
myndir. Newmark óskaði eftir ljós
myndum frá því sem hann taldi
vera unga stúlku á milli tvítugs og
þrítugs. Newmark var og er enn
harðgiftur fjölskyldumaður. Hann
greindi frá því að hneykslið hefði
lagt gríðarlegar byrðar á herð
ar fjölskyldumeðlima en sagðist
einnig ætla að taka sig á, sagð
ist hafa verið „kjáni“ og að hann
væri að sækja sér sálfræðiaðstoð,
enda væri hann mikill spennufík
ill. Myndasendingarnar höfðu ver
ið hluti af fíkninni. Dagblaðið sætti
mikilli gagnrýni og þótti mörgum
að blaðið hefði farið offorsi.
Kókaín, hjákonur
og meiðyrðamál
Þ
egar lávarðurinn John Sewel
var gripinn glóðvolgur við að
sniffa kókaín af beru brjósti
vændiskonu var hann neydd
ur til þess að fara í leyfi frá
störfum, rétt á meðan að rannsókn
færi fram. Kaldhæðni örlaganna er
þó sú að Sewel hefur lengi barist fyr
ir ströngum siðareglum lávarða í
Bretlandi og hafði fyrir skömmu sett
á laggirnar nýjar reglur sem þóttu
marka nýja tíma í þeim málum. Sewel
er þó ekki eini breski stjórnmálamað
urinn sem hefur komist í hann krapp
an þegar kemur að kynlífshneykslum.
Hér eru rifjuð upp níu æsileg kynlífs
hneyksli sem ratað hafa í fjölmiðla. n
astasigrun@dv.is
Leðurjakki, brjóstahöld og kókaín
Lávarðurinn John Sewel hafði átt
langan og farsælan starfsferil, en
var samt sem áður frekar óþekkt
ur í bresku pressunni þegar hann
var á dögunum afhjúpaður í kyn
svalli með vændiskonum að neyta
fíkniefna. Óhætt er að segja að hann
sé núna hálfgerður heimilisvinur,
heimsfrægur á Bretlandi og þótt víð
ar væri leitað. Hann hefur verið þrí
kvæntur og á tvö börn.
Það var Tony Blair sem gerði
hann að lávarði árið 1996, en áður
hafði Sewel starfað sem háskóla
prófessor. Hann starfaði í ríkis
stjórn Blair sem ráðherra gagnvart
Skotlandi. Breska dagblaðið The
Sun birti myndir af Sewel þar sem
hann virtist vera að sniffa kókaín af
beru brjósti vændiskonu. Hann kallaði asískar konur „hórur“ og sagði
annarri vændiskonunni að hann vildi að „hún leiddi hann út á ranga
braut“. Á myndbandinu heyrist önnur kvennanna segja: „Þú ert svo
mikið partíljón“ og hann svarar: „Ég veit, ógeðslegt, ekki satt.“
Undanfarin ár hefur hann starfað í nefnd lávarðadeildarinnar á
breska þinginu sem hefur eftirlit með hegðun og framgöngu annarra
lávarða.
Aðeins tíu dögum áður en myndir birtust af honum í föruneyti
vændiskvenna að neyta fíkniefna hafði hann talað af miklum eld
móð um það að nýjar siðareglur deildarinnar ættu að tryggja góða
framkomu allra. „Framganga fárra eyðileggur orðspor okkar. Skandal
ar eru góðar blaðafyrirsagnir,“ sagði hann. „Allir meðlimir skrifa und
ir drengskapareið þar sem þeir heita því að fylgja siðareglunum [...].
Krafan um að allir meðlimir vandi sig í allri framgöngu sinni hefur
verið sett fram.“ Hann sagði af sér nefndarsetunni á meðan að rann
sókn fer fram. Sewel er eðli málsins samkvæmt í miklum vandræð
um, bæði sem lávarður, en einnig sem fjölskyldufaðir. Þá má hann
búast við því að lögreglan rannsaki myndefnið sem The Sun hefur
undir höndum enda sést hann bæði neyta fíkniefna og vera í sam
floti með meintum vændiskonum. Margir telja eðlilegt að hann segi
alfarið af sér sem lávarður, en sé ekki aðeins í tímabundnu leyfi.
Paddy brókarlausi
Lávarðurinn Paddy Ashdown tók þá umdeildu
ákvörðun að verða á undan fjölmiðlum til að
upplýsa um ástarsamband sitt við einkaritar-
ann sinn. Eflaust voru það góð ráð, en áður en
hann opinberaði sig á þennan hátt hafði hann
fengið lögbann á umfjöllun Daily Mail um
einkahagi sína. „Ég ákvað að grípa tækifærið
og segja frá sjálfur.“ Hann var fyrir vikið
uppnefndur Paddy Pantsdown, eða Paddy
brókarlausi í breska dagblaðinu The Sun.