Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Blaðsíða 30
Helgarblað 7.–10. ágúst 201530 Lífsstíll
H
ar
ðp
ar
ke
t
Þýsk gæði!
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Hinn ástríki drottnari
A
llir hafa eitt eða fleiri hlutverk
í lífinu, við gerum okkur hins
vegar oftast ekki grein
fyrir að við séum að
leika hlutverk eða hvað felst
í því. Í BDSM eru hlutverk-
in hins vegar fastmótaðri og
fylgja reglum sem byggjast
á að allir aðilar viti fyrirfram
sitt hlutverk og hvaða rammi
gildir fyrir leikinn eða sam-
bandið.
Til að geta stundað heilbrigt og
sem öruggast BDSM-kynlíf er nánast
skylda að kynna sér efnið í einrúmi
fyrst, bæði til að geta sagt af eða á um
hvað þú vilt eða vilt ekki, og eins til
að fá innsýn í hulduheima hlutverka
drottnarans (e. dominant) og þess
undirgefna (e. submissive).
The Loving Dominant er skrif-
uð af reynslubolta í drottnun, fyrsta
útgáfan hefur verið endurútgefin og
uppfærð nokkrum sinnum. Í nýj ustu
útgáfunum skrifar eiginkona
hans með honum sem gef-
ur bókinni skemmtilega víxl-
un sjónarhorna hvort sem
þú lest hana og telur þig vera
drottnara eða undirgefinn/na
… eða hvort tveggja!
Þetta er bókin sem höf-
undur 50 Shades of Grey
hefði þurft að lesa áður en Mr.
Grey lak út úr pennanum.
Mælum með kaupum, jafnvel á
2–3 til að senda vinum (en kannski
ekki ættingjum). Fæst í Nexus. n
Kynlífsbókin
Páll Helgi er kynlífslestrarhestur. Hann
er fróðleiksþyrstur og fordómalaus og
deilir uppáhaldsbókunum sínum með
lesendum Kynlífspressunnar.
The Loving Dominant, höfundar: John og Libby Warren
Að verA eðA verA
ekki ... druslA!
J
óhanna er fertug og býr í
Vestur bænum. Hún er gift kona
með þrjú börn en hefur undan-
farin ár verið að endurupp-
götva sjálfa sig sem kynveru.
Hún talar mikið um hversu mikil-
vægt það er að leyfa sér að sveiflast
og gera sér grein fyrir að þarfirnar
eru mismunandi á mismunandi tím-
um. Jóhanna féllst á að deila með
lesendum Kynlífspressunnar reynslu
sinni af því að sættast við sína innri
druslu!
Ég er kynvera og hef gengið í
gegnum alls konar tímabil í lífinu,
en er fyrst núna að skilja hvað þau
hafa öll verið mikilvæg fyrir mig. Ég
á ekki bara við unglingsárin þegar ég
hafði þörf fyrir að vera séð og vildi fá
að reynsluaka sjálfri mér með mis-
munandi farþegum, ekki heldur
bara tímabilið þar sem ég uppgötv-
aði ástina í lífi mínu og uppgötv-
aði að líkami minn virkaði til fram-
leiðslu barna. Tímabilið einskorðast
ekki heldur við þau áföll sem ég hef
upplifað og tengjast því að vera kyn-
vera. Ég er eins og fjölært blóm sem
blómstrar aftur og aftur.
Næringin er ÉG
Ég uppgötvaði nýlega að næringin
sem ég þarf er ÉG og fjölbreytt sam-
vera með mér sjálfri. Að næra MIG
gerir MIG sterkari. Um leið og ég næ
að æfa mig í ákveðinni leikni þá verð
ég sterkari mannvera. Sterkari kyn-
vera líka. Að leyfa mér að vera drusla
af og til er þess vegna álíka mikilvægt
fyrir mig eins og að fara út að skokka,
borða næringarríkan mat og rækta
samband mitt við vini og fjölskyldu.
Það að vera „slöttí“ og svara kyn-
þörfinni minni er ekki bara dóna-
legur hluti af mér sem ég á að halda
leyndum og skammast mín fyrir,
heldur frekar að lyfta þegar þörf er á
og næra þegar þörf er á. Það er jafn-
mikilvægt að segja nei takk og setja
mörk þegar við á. Að vera „slöttí“
kona þýðir ekki að vera alltaf til í
kynlíf með hverjum sem er – þvert
á móti. Þetta eiga margir karlmenn
erfitt með að skilja og halda að þegar
kona er til í daður, kynferðislegt tal
og perraskap, þá hafi þeir aldeilis
dottið í lukkupottinn og hafi jafnvel
óheft aðgengi allan sólarhringinn.
Kraftur í neiinu
Vissulega hef ég staðið í kassaröð-
inni í Krónunni og átt í eldheitu
spjalli á Tinder við girnilegan gaur
... og notið þess fram í fingurgóma.
En ég nýt þess líka og finn hvernig ég
eflist við að segja nei takk þegar ég er
ekki í stuði og vil bara klára að prjóna
ermina á lopapeysunni minni. Það
er hvorki ósigur né afköllun á minni
innri druslu. Krafturinn kemur úr
því að hlusta á það sem innri röddin
segir – hvað ég þarf og vil á hverjum
tíma.
Ég er „slöttí“. Ég nýt þess að geta
verið það líka þegar ég er að sækja
mér annars konar næringu. Í raun
snýst þetta um að læra að hlusta á
sjálfa mig. Hvað ég vil, hvað ég vil
ekki, að stundum stangast það á
við það sem ég vildi í gær. Að læra
að setja mörk og næra mig á ÖLLU
því sem ég gæti þurft á að halda þá
stundina. n
n eða hvernig ég fór að hlusta á sjálfa mig n ekki „slöttí“ alla daga
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
„Að vera
„slöttí“
kona þýðir ekki
að vera alltaf
til í kynlíf með
hverjum sem er
Hressandi kynlíf
Stundum eru konur
í brjáluðu stuði,
stundum ekki!