Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Blaðsíða 28
Helgarblað 7.–10. ágúst 201528 Skrýtið Sakamál
Morð í Minto
n Gregory myrti aldrað par n Gumaði af 700 leigumorðum
G
regory Allan Despres fæddist
í Minto í New Brunswick í
Kanada árið 1982. Hann var
vart kominn á legg er móð-
ir hans sagði skilið við föður
hans. Gregory flutti með móður sinni
til Massachusetts í Bandaríkjunum,
eignaðist vini, varð virkur í félagslíf-
inu og stundaði íþróttir auk þess sem
hann vann hlutastörf þegar færi gafst.
Breytingar á högum og fleiru
Þegar Gregory var sextán ára eða
þar um bil varð móðir hans vör við
breytingar í hegðun hans, en túlkaði
þær sem uppreisn unglingsáranna.
Sautján ára tók Gregory sig til og flutti
til föður síns í Minto og í hartnær tvö
ár hafði hann ekkert samband við
móður sína. Á því varð engin breyting
fyrr en móðir hans flutti sjálf til Minto
og settist þar að að nýju.
Þegar þar var komið sögu hafði
Gregory að mestu leyti einangrað
sig frá samfélaginu, dvaldi löngum
á heimili sínu og sást vart utan dyra.
Eðli málsins samkvæmt olli þetta
móður hans áhyggjum og óttað-
ist hún að hann væri í viðjum fíkni-
efnaneyslu. Gregory sagði svo ekki
vera en engu að síður fór ástand hans
sífellt versnandi.
Dregur til tíðinda
Víkur nú sögunni til 23. apríl 2005.
Að kvöldi þess dags yfirgaf Gregory
hjólhýsið sem var heimili hans. Hann
fór fótgangandi að heimili Freds
Fulton og Veronicu Decarie, en ekki
var um langan veg að fara. Gregory
komst inn á heimili þeirra með því
að skera net í einni hurð. Hann fór
rakleiðis inn í svefnherbergi Freds
og Veronicu og stakk Veronicu til
bana. Fred reyndi að flýja en Gregory
yfirbugaði hann á veröndinni og
dró hann inn í eldhús og afhöfðaði
hann. Höfuð Freds fannst síðar vafið
í koddaver undir eldhúsborðinu.
Gumaði af 700 morðum
Skömmu síðar setti Gregory hafurtask
sitt, þar á meðal morðvopnin, í bíl og
ók svo sem leið lá til Bandaríkjanna.
Bíllinn, sem hafði verið í eigu Freds,
fannst síðar í malargryfju skammt
frá landamærum Kanada og Banda-
ríkjanna. Hvað sem því líður þá kom
Gregory til landamærastöðvar í Cala-
is í Maine 25. apríl, degi áður en lík
Freds og Veronicu fundust. Hann
hafði ekkert fyrir því að fela vopnin;
heimagert sverð, sveðju, hnúajárn
og keðjusög. Gregory bætti um betur
og sagðist vera leigumorðingi á veg-
um Bandaríkjastjórnar og gumaði af
700 morðum sem hann sagðist hafa á
samviskunni.
Sleppur í gegn
Vopnin voru haldlögð og fingraför
tekin af Gregory en þar sem hann
var með bandarískan ríkisborgara-
rétt var ekki hægt að snúa honum til
baka og kom hann því með lögleg-
um hætti inn í Bandaríkin. Reyndar
var það mat sérfræðings í refsirétti
að hægt hefði verið að handtaka
Gregory á landamærunum vegna
gruns um að þar færi ekki maður
með fulla fimm, eins og sagt er, en
samkvæmt lögum í Maine er slíkt
heimilt. Að auki benti sérfræðingur-
inn á að með því að hreykja sér af
700 leigumorðum hefði Gregory
greinilega logið sem ku ekki vera
góð latína í samskiptum við laganna
verði.
Handtaka og framsal
Gregory ferðaðist á puttanum áleið-
is til Massachusetts og 27. apríl ók
vegalögreglan fram á hann þar sem
hann ráfaði í vegkantinum. Fyrir-
grennslan leiddi í ljós að Gregory
átti að vera í réttarsal í Fredericton
í New Brunswick þennan dag vegna
líkamsárásar á son Freds Fulton í
ágúst 2004. Gregory var því færð-
ur í varðhald. Daginn áður hafði
dóttir Freds fundið líkin af honum
og Veronicu og grunur kanadísku
riddaralögreglunnar beindist fljót-
lega að Gregory og komst hún að
því að hann væri í haldi lögreglunn-
ar í Boston. Þann 15. september var
Gregory framseldur til Kanada.
Réttarhöld á réttarhöld ofan
Réttarhöld í málinu áttu að hefjast 5.
september 2006 en þeim var frestað
til 8. janúar 2007 eftir að Gregory
gaf verjanda sínum reisupassann.
Ákæruvaldið lagði áherslu á hin mý-
mörgu sönnunargögn sem bentu til
sektar Gregorys og deilna sem hann
og Fred höfðu átt í.
Gregory virtist
hins vegar ekki með hýrri há því 1.
febrúar hellti hann sér yfir verjanda
sinn, sakaði hann um að vera hand-
bendi al-Kaída og Saddams Hussein
og krafðist þess að hann yrði rekinn
– kröfu hans var hafnað. Verjandi
hans fór fram á það í kjölfarið að
Gregory yrði gert að sæta geðrann-
sókn og var það samþykkt og endir
bundinn á réttarhaldið.
Vitnaleiðslur fóru fram 24., 25.
og 26. apríl 2007, og fullyrti einn
geðlæknir að ofsóknargeðklofi
hrjáði Gregory og því ætti ekki að
rétta yfir honum. Dómarinn var
þessu sammála og kvað upp þann
úrskurð 26. apríl.
Ný réttarhöld
Þann 11. júlí var Gregory kallaður
fyrir nefnd geðlækna sem komust
að allt annarri niðurstöðu; ekkert
væri því til fyrirstöðu að rétta yfir
Gregory og nýrra réttarhalda krafist.
Þau hófust 5. nóvember og 16. nóv-
ember var gert hlé á þeim til að gefa
lögmönnum færi á að undirbúa sér-
fræðivitni sín.
Réttarhöld hófust að nýju 28.
janúar 2008 og enn var tekist á um
sakhæfi Gregorys. Verjandi og sak-
sóknari fluttu lokaræður sínar 30.
janúar og dómarinn, William Grant,
áskildi sér frest til 5. mars til að
kveða upp úrskurð sinn. Það gerði
dómarinn svikalaust og kvað upp
þann úrskurð að Gregory væri sek-
ur um að hafa banað Fred og Ver-
onicu. En William Grant var einnig
sammála verjanda Gregorys um að
hann hefði ekki verið ábyrgur gerða
sinna á þeim tíma.
Fyrir vikið dvelur Gregory Allan
Despres nú á stofnun fyrir andlega
vanheila, eða hvað pólitískt rétta
hugtakið er nú um stundir. Þannig
er nú það. n
Fred og
Veronica
Parinu var
ráðinn bani
á heimili
sínu.
Gregory Allan Despres
Var ekki með fulla fimm.
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR