Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Blaðsíða 15
Helgarblað 7.–10. ágúst 2015 Fréttir Erlent 15 Dæmdur fyrir meinsæri Þegar bresk dagblöð héldu því fram að lávarðurinn Jeffrey Archer hefði sængað hjá vændiskonu árið 1987 höfðaði Archer snarlega meiðyrðamál – og vann. News of the World hélt því fram að Archer hefði reynt að fá konuna til að flýja land (og þannig koma þeim báðum í skjól frá breskum fjölmiðlum) með því að greiða henni stórfé en Daily Star sagði hann hafa greitt fyrir kynlíf með henni. Archer höfðaði mál gegn Daily Star, en hann hafði þá neyðst til að segja af sér. Það var svo árið 1999 sem í ljós kom að fjarvistarsönnun hans, fyrir kvöldið sem hann hafði átt að hafa verið með konunni, var upplogin. Í kjölfarið var Archer dæmdur fyrir meinsæri og var fangelsaður í fjögur ár. Bréfin komu upp um allt Árið 1964 birti The Sunday Mirror frétt þar sem greint var frá því að lögreglan væri að rannsaka ástarsam- band þingmanns og manns sem var sagður vera stór- tækur í undirheimunum. Fljótlega féll grunur á tvo menn, íhaldsþingmanninn Robert „Bob“ Boothby og Ronald Kray, sem var þá vel þekktur krimmi í Lund- únum. Boothby lét til sín taka, lögsótti The Sunday Mirror og á endanum báðust forsvarsmenn blaðsins afsökunar, ráku ritstjórann og greiddu miskabætur. Hann sagðist þekkja Kray og að þeir hefðu hist þrisvar en að þeir ættu ekki í ástarsambandi. Samkynhneigð var bæði litin hornauga og bönnuð með lögum í Bretlandi á þessum tíma. Það var svo árið 2009 sem í ljós kom að Boothby og Kray voru vissulega meira en bara félagar þegar bréf sem fóru á milli þeirra fundust. Boothby, sem var tvíkynhneigður, átti einnig í löngu ástarsambandi við eiginkonu forsætisráðherra Bretlands á þessum tíma, Dorothy Macmillan. Göldrótt súpa og gómsætur humar Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550 info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is Fæst í FK, Byko, Apótekum og öllum helstu leikfangaverslunum um land allt Safnaðu þeim öllum! Profumo-ástarævintýrið Á hátindi kalda stríðsins varð John Profumo frægur fyrir kvensemi sína, en ekki klókindi sem hernaðar- málaráðherra. Profumo var íhaldsmað- ur sem átti sæti í ríkisstjórn Harold Macmill- ann. Profumo kynntist Christine Keeler, 19 ára gamalli fyrirsætu, í samkvæmi árið 1961. Sambandi þeirra lauk eft- ir aðeins nokkrar vikur, en sögusagnir af því komust í hámæli fljótlega og þrátt fyrir sambandsslitin var enn rætt um ástarsamband hans við ungu konuna enda var Profumo harðgiftur. Málin flæktust svo enn meira þegar í ljós kom að Keeler hafði einnig átt í ástarsambandi við sovéskan sendiráðsritara, eða óvininn. Bresk- ir blaðamenn komust á snoðir um ástarmál Profumo árið 1962 og fékk hneykslismálið viðurnefnið: Profumo-ástarævintýrið. Ráðherrann lét öll- um illum látum og hótaði að lögsækja hvern þann sem tengdi nafn sitt við Keeler í dagblöðum. Hann laug svo að þingheimi og kvaðst ekki eiga í ástarsambandi við Keeler þótt hann þekkti hana vissulega lítillega. Hann neyddist á endanum til þess að segja af sér árið 1963, biðjast afsökun- ar og viðurkenna að hann hefði sagt ósatt. Aldrei tókst að sanna það að samband Keeler við sendiráðsritarann hefði verið öryggisógn fyrir Breta eða vinaþjóðir þeirra en málið rataði engu að síður í sögubækurnar og dró dilk á eftir sér. Fyrir það fyrsta þótti það marka breytingu fyrir bresk- an þingheim, en stjórnmálamenn höfðu almennt ekki þurft að óttast að einkalíf þeirra væri rætt í breskum fjölmiðlum án þeirra samþykkis. Þá hefur slæmt gengi breska íhaldsflokksins í kosningum árið 1964 verið rakið til hneykslisins, þótt margt annað hafi vissulega spilað inn í. Eldheitt ástarsamband Það varð uppi fótur og fit þegar að dagbækur Edwinu Currie voru gefnar út á prenti. Í ljós kom að hún hafði átt í fjögurra ára ástarsambandi við John Major, leiðtoga Íhaldsflokksins og forsætisráðherra. Sjálf var Currie þingmaður og ráðherra og höfðu þau unnið náið saman. Tuttugu dagar – ekki heilt ár Í desember árið 2004 sagði breski innan- ríkisráðherrann, David Blunkett, af sér eftir mikið fjölmiðlafár. Blunkett var ráðherra í ríkisstjórn Tony Blair og þótti hafa skaðað ríkisstjórnina og Blair sjálfan nóg. Ástæða uppþotsins var sú að í ljós kom að Blunkett hafði flýtt fyrir dvalarleyfi fyrir filippeyska barnfóstru fyrrverandi ástkonu hans. Raun- ar hafði fjölmiðlafárið hafist nokkrum mánuðum fyrr, þegar greint var frá því að Blunkett hefði átt í ástarsambandi við útgefanda vikuritsins the Spect- or, Kimberly Quinn, sem þá var harðgift. Quinn var barnshafandi og taldi Blunkett að hann væri faðir barnsins. Þau höfðu slitið sambandi sínu með látum nokkru fyrr. Í nóvember 2004 óskaði Blunkett svo eftir að fram færi faðernispróf og vildi einnig láta kanna faðerni eldri sonar Quinn. Krafðist hann þess að fá umgengnisrétt. Hann setti sjálfur af stað rann- sókn á því hvort hann hefði ýtt á eftir umsókninni fyrir barnfóstruna, en kvaðst vera saklaus. Í ljós kom að hann hafði spurt hvað afgreiðsla um- sókna tæki langan tíma og fékk þau svör að almennt væri árs bið. Hann kvað það ótækt og sagði að slíkt þyrfti að bæta. Rúmum tveimur vikum síðar var búið að afgreiða umsóknina. Starfsfólk hans virtist hafa tekið því sem svo að flýta þyrfti fyrir umsókninni og varð Blunkett fljótlega ljóst að hann yrði að segja af sér sem og hann gerði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.