Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Qupperneq 21
Helgarblað 7.–10. ágúst 2015 Fólk Viðtal 21 fyrir utan er kyrrðin algjör. Pallinn smíðaði Heiða sjálf, en hún hefur unun af því að vinna með höndun- um. „Ég hef lært mikið af gömlum fjölskylduvini, þúsundþjalasmið sem hefur haldið tryggð við okkur. Ég ætlaði mér alltaf að verða smið- ur. Sagði það alltaf þegar ég var lítil,“ segir hún sposk. „Ég get fúsk- að í ansi mörgu,“ bætir hún við. En blaðamaður getur staðfest, með góðri samvisku, að umræddur pall- ur er ekkert fúsk. Hann ber merki um gott handbragð og fagmennsku, hver nagli og spýta á sínum stað. „Það helgast af því að búa svona að ef það þarf að gera eitthvað, þá verð ég að gera það sjálf. Ef það fer í sundur vatnsrör þá er ég pípari og ef ég kaupi nýtt ljós þá gerist ég raf- virki og set það upp. Það er enginn annar í því.“ Systirin hrapaði í Hjörleifshöfða Ljótarstaðir hafa nokkrum sinnum lagst í eyði í gegnum tíðina í kjölfar Kötlugoss, en samfelld búseta hef- ur verið á bænum frá því í kringum 1950. Hér eru það náttúruöflin sem ráða, en maðurinn þrjóskast við. Það vofir alltaf yfir að Katla fari að gjósa og þá gæti orðið óíbúðarhæft á svæðinu um tíma vegna öskufalls. Faðir Heiðu var fæddur og upp- alinn í sveitinni en móðir hennar er úr Reykjavík. „Mamma gerð- ist kaupakona hérna í sveitinni rétt tæplega tvítug. Hún giftist bænda- syni sem var bróðir pabba míns og þau eignuðustu þrjár dætur. Svo fórst hann í fjöllunum hérna fyrir innan og mamma varð ekkja 26 ára. Þá kom pabbi minn heim og gerð- ist ráðsmaður hjá henni til að hún gæti haldið búinu, en hann hafði verið sjómaður. Svo tóku þau saman þegar fram leið og eignuðust mig og systur mína sem er næst mér í aldri. Þannig við systurnar erum hálf- systur, en samt í raun miklu meira en hálfsystur. Þetta er allt sama fjöl- skyldan. Svolítið spes saga,“ segir Heiða og brosir. Hún er hálfgert örverpi, en þær systur eru fjórar í dag. Miðjusystir- in fórst í hörmulegu slysi á ung- lingsaldri. „Hún hrapaði í Hjörleifs- höfða 17 ára gömul. Hún var með vinahópnum sínum og þau voru eitthvað að fíflast. Hún var hreysti- manneskja og mikill klifurköttur. Hún var að klifra, missti fótanna og hrapaði.“ Heiða var þriggja ára þegar slysið átti sér stað en hún á engu að síður ómetanlegar minn- ingar um systur sína. „Hún dó ekki við fallið og lá í marga mánuði í dái á spítala eftir slysið. Allir svona harmleikir hafa áhrif á fólkið í kring. Þetta hafði töluverð áhrif á okkur á heimilinu. Og það voru auðvitað eðlileg viðbrögð að banna okkur að klifra. En ég var lítil og vitlaus þegar þetta gerðist þannig að þetta hafði kannski ekki jafn mikil áhrif á mig og eldri systur mínar,“ útskýrir hún. Fyrirsæta í New York Þótt Heiða hafi ung tekið við búi for- eldra sinna tókst henni að afreka ým- islegt áður en það gerðist. Hún þótti til að mynda efnileg fyrirsæta um tíma, eða á meðan hún sjálf gaf kost á því. Hún tók sér frí frá námi í eitt ár, þegar hún var 18 ára, og bjó þá í Reykjavík. Þar datt hún inn á námskeið í fyrir- sætuskóla John Casablancas og tók að sér nokkur fyrirsætuverkefni í kjöl- farið. „Ég fór allavega tvisvar upp á jökul og hingað og þangað innan- lands í tökur. Meðal annars fyrir eitt- hvert ítalskt blað og svo lék ég í sjón- varpsauglýsingu. Ég er eiginlega bara búin að gleyma þessu,“ segir Heiða kímin þegar hún reynir að rifja upp fyrirsætuferilinn. „En svo fór ég með 20 eða 30 manna hópi á vegum John Casablancas til New York að taka þátt í fyrirsætukeppni. Þetta var mikið æv- intýri. Keppnin var haldin á Waldorf Astoria-hótelinu og þar var líka gist.“ En fyrir þá sem ekki vita þá þykir um- rætt hótel með þeim fínni í borginni. Það var keppt í ýmsum flokkum í keppninni og Heiða vann til verð- launa í einum þeirra. Hana minn- ir að verðlaunin hafi verið fyrir einstaklega góða pósu á mynd. „Við áttum að labba eitthvað aðeins og taka pósur og það var ljósmyndari sem myndaði okkur á meðan. Ég varð í öðru sæti fyrir þetta. En ég var reyndar aldrei neitt sérstaklega góð í göngunni. Ég strunsaði bara áfram og það var alltaf verið að skamma mig fyrir það. Segja mér að sveifla mjöðmunum meira.“ „Þetta var eins og hrútasýning“ Þrátt fyrir að það hafi verið mikil upp- lifun að taka þátt í fyrirsætu keppni í New York og Heiða hafi skemmt sér vel, þá heillaði fyrirsætubransinn hana ekki. Hún hafði svo sannarlega rétta vöxtinn og útlitið, enda fékk hún nokkur tilboð í kjölfar keppn- innar. „Umboðsskrifstofurnar úti höfðu samband við umboðsmenn- ina okkar hérna heima og ég hefði getað komist út í nokkur verk efni. Ég hafði bara ótrúlega lítinn áhuga á þessu. Þetta var eins og hrútasýn- ing og ég var hrúturinn. Allir gláp- andi á mig,“ segir hún og skellir upp úr. „Mér fannst þetta eiginlega bara óþægilegt. Svo finnst mér líka vont að vera kalt og svöng og þetta snerist mikið um að vera að drepast úr kulda einhvers staðar uppi á jökli og ekkert að borða nema kálblöð. Ekki mjög heillandi heimur. En það var gaman að prófa þetta.“ Á sínum stutta fyrirsætuferli fékk hún líka hálfgerða uppreisn æru varðandi vaxtarlag sitt sem hún hafði ekki verið neitt sérstaklega ánægð með. „Ég var alltaf svo asnalega löng og mjó. Ég skagaði alls staðar upp úr og passaði ekki í nein föt, en allt í einu var það orðið eftirsóknarvert. Það var gott fyrir sjálfstraustið að því leytinu til. En ég hafði ekki það sjálfs- traust að geta sóst eftir vinnu af því ég liti svona út. Þetta starf er auðvit- að fínt fyrir þá sem hafa áhuga á því, en mér finnst það kjánaleg tilhugs- un að vinna fyrir sér með því að vera sætur. Svo fékk ég eiginlega alveg upp í kok af þessu þegar mér var sagt að ég mætti ekki verða vöðvastælt- ari, en ég var frekar fit og stælt. Þetta snerist bara um að vera nógu mjór.“ Að þeim orðum sögðum stingur móðir Heiðu höfðinu út um dyrnar og segir okkur að maturinn sé tilbú- inn. Við látum ekki segja okkur það tvisvar. Þegar við komum inn bíða okkar kjötbollur í brúnni sósu með öllu tilheyrandi. Ekki amalegt það. Löggan drap félagslífið Búið er á flestum bæjum í kring og þar er töluvert af ungu fólki með bú- skap. Góð vinkona Heiðu býr einmitt skammt frá. Hún segir þó ekki vera mikinn samgang á milli bæja. Það er ekki mikið vera að bjóða í mat eða pönnukökur á sunnudögum, eins og tíðkast sums staðar. Aðspurð hvort félagslífið sé þá lítið segir Heiða svo vera. Hún var miklu duglegri við að fara út að skemmta sér hér áður fyrr – fara á böll. En það dró úr því eftir að hún var um tíma í héraðslögreglunni. „Ég byrjaði sem héraðslögregla á Klaustri, fór á námskeið og fannst það rosa gaman. Svo þreytti ég inn- tökuprófin í lögregluskólann 2004 og komst inn. Foreldrar mínir ætluðu að reyna að sjá um búið fyrir mig á meðan, en fljótlega eftir að ég komst inn greindist pabbi með krabba- mein. Þannig ég fór aldrei í skólann en ég var í lögreglunni á Klaustri í nokkur ár. Var á ballvöktum, aðallega á leiðinda næturvöktum. Þá var ég komin hinum megin við borðið. Var orðin manneskjan sem þurfti að hafa afskipti af fólki. Þá hætti ég sjálf að fara á böll á svæðinu og hef lítið byrj- að á því aftur. Ég fer á þorrablótin og réttarböllin, en ekkert meira. Eftir á að hyggja var það ekki sterkur leikur fyrir félagslífið að fara í lögregluna,“ segir hún brosandi. Heiða sá fyrir sér að geta verið í lögreglunni með búskapnum og vera þá bara með færri kindur. En þegar faðir hennar veiktist og lést fjölgaði hún kindunum og stækkaði búið. „Það er ótrúlega slítandi að vera í mörgu. Áður en ég fór í lögguna var ég að kenna í grunnskólanum á Klaustri og þegar ég var að kenna var ég alltaf með samviskubit yfir því að vera ekki heima að gera eitthvað. Og þegar ég var heima var ég með samviskubit yfir því að vera ekki að undirbúa kennsluna.“ Sveitungum att saman Þótt Heiða hafi ákveðið að helga sig landbúnaði er hún með puttana í ýmsu öðru, hún er til að mynda í sveitarstjórn fyrir Z-listann, eða Sól í Skaftárhreppi. Aðalbaráttu- mál hreyfingarinnar er að berjast gegn virkjanaáformum í Skaftá og Hólmsá. „Það eru virkjanaáform á landareigninni sem virkilega raska ró minni. Ég hef því verið í þeirri andspyrnubaráttu frá upphafi og hún hefur verið blóðug á tímum. Þetta er hrikaleg barátta að standa í og hún eyðileggur samfélögin. Ein- hverjir eru þessu fylgjandi og aðr- ir eru mótfallnir og baráttan verð- ur alltaf persónuleg. Fólk hættir að heilsast á vegum úti og svona. Það eru fyrirhugaðar tvær virkjanafram- kvæmdir í sveitinni, þar af önn- ur á landareigninni. Það yrðu bara fjórir kílómetrar í annað lónið,“ seg- ir Heiða og bendir inn í dalinn fyrir ofan. „Það var í raun ekki um annað að ræða fyrir mig en að komast inn í sveitarstjórnina til að hafa einhver áhrif. En það er auðvitað mikil vinna sem fylgir því. Það er annars ótrúlegt hvernig þetta gengur fyrir sig. Þegar farið var af stað með þessi áform þá kom framkvæmdastjóri Suðurorku hingað, ægilega almennilegur, og sat hérna í marga klukkutíma. Hann trúði því virkilega að hann væri bara að fara að gera samning og að all- ir myndu stökkva upp til handa og fóta og skrifa undir. En svo hörðnuðu átökin dag frá degi. Þeir gefast ekki upp og hafa meira að segja gengið svo langt að hóta eignarnámi, en það er langt og flókið ferli. Það eru alls konar áróðursbrögð í gangi. Einum er sagt eitthvað eitt og öðrum ann- að og fólki er þannig att saman gegn hvað öðru. Þetta er eitthvað sem fer aldrei úr hausnum á mér og hefur mjög mikil áhrif á það hvort ég fari einhvern tíma héðan. Sá sem tæki við búinu yrði allavega að vera tilbú- inn að taka slaginn eins og ég.“ Mikið náttúrubarn Heiðu er mikið niðri fyrir þegar hún ræðir virkjanaáformin. Það er henni mikið hjartans mál að koma í veg fyrir að þessar framkvæmdir verði að veruleika. Hún vill hafa náttúr- una ósnortna. „Ég er algjört náttúru- barn. Ég þekki alla fugla, blómin og grösin. Og að einhver ætli að drekkja landinu hérna, það tætir mig í sund- ur,“ segir hún áköf. Hún er ekki ein í baráttunni. Það er öflugur hópur umhverfissinna sem berst með kjafti og klóm gegn því að landinu verði drekkt í þágu virkjanaframkvæmda. Staðan er sú í dag að báðar virkj- anirnar eru í biðflokki í ramma- áætlun og því enn óvíst hvað verður. Heiða segir tímann þó alltaf vinna með náttúruverndarsinnum í svona málum. Því lengri sem biðin verð- ur, því minni líkur á því að komi til framkvæmda. „En það er mjög lýj- andi að standa í blaðaskrifum, deil- um við sveitunga sína og ójöfnum slag við þessi miklu peningaöfl þegar maður sjálfur veltir fyrir sér hverjum þúsundkalli. Ég vil skila þessu landi áfram. Ég á ekki landið á þann hátt að mér finnist ég hafa rétt á að taka við peningum, einhverjum bótum, svo hægt sé að eyðileggja jörðina,“ segir Heiða. Það er ljóst að hún hefur meira en nóg að gera þótt félagslífið sé ekki mikið. Hún viðurkennir reyndar að vera hálfgerður einfari og búsetufyr- irkomulagið í sveitinni hentar henni því vel. Á traktornum dag og nótt Aðspurð segir hún mismikið að gera á bænum eftir árstíma. „Jólin og jan- úar eru hvíldartími. Í janúar er eig- inlega bara verið að gefa kindun- um og aðstæður til þess hérna eru mjög góðar þannig að það tekur ekki langan tíma. Ég reyni bara að safna kröftum á þessum tíma, en svo tekur fósturtalningartímabilið við í febrú- ar og mars. Það er algjör sturlun, það er svo mikið að gera.“ Heiða sinnir sjálf öllum störfum á bænum og Fyrirsætan sem gerðist bóndi„Þetta var eins og hrútasýning og ég var hrúturinn „Ég þurfti alveg að herða mig upp í að segja fólki að mig langaði ekki að eiga börn. Náttúruverndarsinni Heiða kom sér í sveitarstjórn til að berj- ast gegn áformum um virkjanir. MYNd ÞorMar VigNir guNNarSSoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.