Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Qupperneq 26
Helgarblað 7.–10. ágúst 201526 Sport Trúlofunarhringar - okkar hönnun og smíði jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind Sölumaður sumarsins er Daniel Levy Einn besti stjórnarformaðurinn í enskum fótbolta er Daniel Levy hjá Tottenham, maðurinn sem seldi Gareth Bale til Real Madrid fyrir 100 milljón- ir evra. Í sum- ar hefur hann verið í fullri vinnu við að losa Maurichio Pochetino, knattspyrnustjóra Tottenham, við ruslið en ekki nóg með að losa sig við þá leikmenn sem Pochetino hefur viljað losna við þá hefur honum tekist að búa til peninga í leiðinni. Daniel Levy, þú ert sölumaður sumarsins. Hins vegar bíða stuðn- ingsmenn Tottenham spennt- ir eftir því að sjá hvaða stjörnur komi í klúbbinn. Það sem af er þess- um glugga þá eru aðeins þeir Toby Alderveireld, mið- vörður og djúpur miðjumaður, Kevin Trippier, hægri bakvörður, og varnarmaðurinn Kevin Wimmer, komnir til félagsins. Frábærar sölur Levy í sumar: n Paulinho til Guangzhou Evergrande (Kína) 10 m punda n Lewis Holtby til Hamburg (Þýs) 4,6 m punda n Étienne Capoue til Watford 6,3 m punda n Younes Kaboul til Sunderland 3 m punda n Benjamin Stambouli til PSG(Fra) 6 m punda n Vlad Chiriches til Napoli (Íta) 4,5 m punda CheLSea verður að verSLa meira n verða ekki meistarar að óbreyttu n erfitt að treysta á Falcao og Loic remy Í vikunni birti BBC spá 28 spark- spekinga um lokastöðuna í ensku úrvalsdeildinni. Tutt- ugu af þessum 28 spáðu Eng- landsmeisturum Chelsea titlin- um sem er óhemju há prósenta og því gætu einhverjir talið bláliða í Lundúnum eiga titilinn vísan. Ég er ósammála því. Ég held að Chelsea verði ekki meistari. Chelsea vann Englandsmeist- aratitilinn í fyrra á góðri byrjun þar sem nýju mennirnir, þá Cesc Fabre- gas og Diego Costa sérstaklega, fóru hamförum. En undir lok leiktíðar- innar fóru meiðsli að plaga Costa og á síðustu þremur mánuðum leik- tíðarinnar skoraði hann aðeins þrjú mörk. Nú liggur það fyrir að hann missir af fyrstu leikjum Chelsea og sumir segja að enginn viti hvað sé að honum en aftan-í-læris-tognan- ir hafa gert honum lífið leitt á síð- ustu leiktíðum. Varamennirnir fyrir Costa eru Loic Remy, sem hefur mikið verið meiddur, og Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao. Miðað við það sem ég hef séð til Falcao í undirbúningi og á Copa America þá munum við sjá hann í svipuðu standi og hjá Manchester United á síðustu leik- tíð. Krossbandsslitin hafa tekið mikið frá honum. Á Loic Remy er erfitt að treysta. Þrálát vöðvameisli hafa þýtt að hann hefur aldrei dottið almennilega í gírinn. Komi í ljós að meiðsli Diego Costa séu alvarleg er ég hræddur um að Mourinho þurfi að kaupa nýjan sóknarmann. Þá gaf Branislav Ivanovic verulega eft- ir þegar á leið á síðustu leiktíð. Cor- touis hefur ekki einn besta mark- mann heims til að anda í hálsmálið á sér og svo ég leyfi mér að setja spurningarmerki við Brasilíumenn- ina Ramires, Willian og Oscar. Lykilmenn Chelsea, sem ekki vann einn leik á undirbúnings- tímabilinu verða þeir John Terry, Eden Hazard, Cesc Fabregas og auðvitað þjálfarinn Jose Mourin- ho. Með Mourinho við stjórnvöl- inn er allt hægt. Ég ætla að spá Arsenal titlinum. Það er hungur í Norður-Lundúnum og koma Petr Cech markvarðar gjörbreytir öllu hjá þeim. Ég tala nú ekki um ef Karim Benzema mætir fyrir lok fé- lagaskipta gluggans. Wenger, nú er pressa á þér. n Hjörvars Hafliðasonar Hápressa Ekki sami maður Eftir erfið meiðsli hefur Falcao gengið illa að finna sitt gamla form. Mikilvægur Diego Costa missir af byrjun tímabils. Það eru slæmar fréttir fyrir Chelsea. Aron nýtur þess að vera „Kani“ a ron Jóhannsson var fyrr í vikunni keyptur frá AZ Alk- maar í Hollandi til þýska liðsins Werder Bremen og er þar ætlað að fylla skarð Argent- ínumannsins Franco Di Santo sem fór til Schalke. Það er alveg ljóst að Aron hefði aldrei fengið Werder Bremen ef hann væri íslenskur. Werder hefði aldrei tekið íslenskan strák sem skoraði ekki einu sinni tíu deildar- mörk í Hollandi á síðustu leik- tíð. Heldur snýst þetta um Andr- eas Herzog, aðstoðarþjálfara Bandaríkjanna, en hann er goð- sögn í Bremen og líklegt að hann hafi gert Werder Bremen viðvart. Það er næsta víst að Aron tók hár- rétta ákvörðun fyrir sinn eigin feril þegar hann valdi Bandaríkin fram yfir Ísland. n Rétt skref Ef Aron hefði valið íslenska landsliðið hefði hann líklega aldrei farið til Werder Bremen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.