Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Page 18
Helgarblað 7.–10. ágúst 2015 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 18 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Ég tilkynni hér með að ég er á móti kynjakvóta í styrkveitingu Dagur Kári kvikmyndaleikstjóri, sem blandaði sér í umræðu um styrkveitingar kynjanna nýverið. - DV D V er í sparifötunum í dag. Það þarf mikið að ganga á svo að DV hrófli við „lógóinu“ sem er andlit fjölmiðilsins okkar. En nú gengur einmitt mikið á. Nú eru Hinsegin dagar og þá fer DV í spari- fötin eins og flest allir Íslendingar. Meira að segja Loki snýr upp á sig í dag. Hinsegin dagar eru orðin viðtekin íslensk hátíð. Upphaflega var um að ræða baráttudaga þar sem homm- ar og lesbíur lögðu áherslu á kröfur sínar um aukin réttindi. Þessir dagar eru ekki lengur einkaeign samkyn- hneigðra. Þeir eru orðnir miklu stærri. Hinsegin dagar eru að verða þjóðareign, eins konar sambland af 17. júní, 1. maí og degi íslenskrar tungu. Eins konar jafnréttisdagar eða jafnvel mannréttindadagar. Allir sem taka þátt í Hinsegin dög- um með einhverjum hætti eru í raun að segja; það eru engir hópar á Ís- landi. Það eru engir hommar á Ís- landi. Það eru engar lesbíur á Íslandi. Á Íslandi eru bara Íslendingar og það í öllum regnbogans litum. Það er ánægjuefni að sjá opinbera aðila taka svo eindregna afstöðu á þessum dögum. Skólavörðustígurinn hefur aldrei verið flottari. Regnbog- inn sem rennur frá kirkju Hallgríms niður að hjarta borgarinnar er falleg og afgerandi stuðningsyfirlýsing. Hvað vantar upp á að Íslendingar geti verið einn hópur – ein þjóð í einu landi í þessu samhengi? Eru það ekki einhverjar sára einfaldar laga- breytingar sem þarf að gera? Má ekki bara drífa í því á næsta þingi? Það er verðugt fyrir stjórnmálamenn að hafa í huga að allir sem taka þátt í þessum dögum eru kjósendur að biðja um jafnrétti. Ef menn vilja vera alvöru popúlistar þá er þetta kjörið mál. Umburðarlyndi fæst ekki úti í búð enda er það ókeypis. Nú er rétti tím- inn að deila því með náunganum, hvort sem hann er svona eða hinseg- in. Kannski bara af því að hann er Íslendingur og það undir regnbog- anum. Það er hátíð í bæ. Njótum hennar og gerum hana að okkar há- tíð. Til hamingju með hinsegin! n Hátíð í bæVill Össur forsetastólinn?Það heyrist nú hvíslað að hópur í kringum Össur Skarphéðinsson þrýsti á um að hann taki slaginn í forsetakjöri á næsta ári og verið sé að kanna jarð- veginn fyrir því. Athygli vakti að Andrés Jónsson, almannateng- ill og fyrrverandi formaður Ungra jafnaðarmanna, birti í fyrradag mikla lofræðu um Össur á Facebook-síðu sinni. Andrés segir að Össur elski fólk og tali við alla, hann sé dálítill refur, hann hafi verið fljótur að tileinka sér Facebook, hann hafi farið frá því að vera umdeildur í að vera feikivinsæll og að hann hafi þrosk- ast. Andrés lýkur svo skrifum sín- um á því að segja að hann sé ekki að hvetja Össur til framboðs í neitt embætti. Ýmsir telja þó að hann sé einmitt að því. Þjóðviljinn endurvakinn? Frá því að fjölmiðillinn Stundin hóf starfsemi sína fyrir fáeinum mánuðum hefur miðlinum tek- ist að marka sér algjöra sérstöðu þegar kemur að pólitískri slag- síðu í efnistökum sínum. Andr- és Magnússon, blaðamaður og fjölmiðlarýnir á Viðskiptablað- inu, bendir þannig á í vikulegum pistli sínum að „enginn miðill á Íslandi [reki] jafngrimma pólitík á fréttasíðum sínum og Stundin og sennilegast þarf að leita aftur til Þjóðviljans til þess að finna ann- að eins“. Þá skrifar Andrés: „Pólitíkin er þó bara eins og hún er, en hitt er verra hvað Stundin getur verið skrýtin, beisk og beinlínis biluð í sumum málum. Eins og varðandi DV,“ og vísar þar til fréttaflutn- ings Stundarinnar um að Jón Ótt- ar Ragnarsson skuldi blómabúð peninga á sama tíma og hann hafi fjárfest í DV fyrr á árinu. VÍKURVERK EHF • VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS Hafið samband og fáið verðtilboð. Dráttarbeisli á flestar gerðir bíla. Saltfiskur og Geysir É g hef oft velt því fyrir mér hvað það er heppilegt hversu vel okkur Íslendingum er við útlendinga. Ég man t.d. eftir að hafa heyrt fólk, sem var tengt sjávarútvegi, tala svo afskaplega fallega um Afríkufólk sem keypti af okkur skreið og hausa, eða Spán- verja sem keyptu af okkur saltfisk og svo má lengi telja. Meira að segja þegar bræðslulyktina lagði yfir bæi og sveitir urðu menn sposkir á svip og töluðu um peningalykt því að þetta væri nú lyktin af úrgangsfiski og afurðina keyptu útlendingar og legðu okkur þannig til gjaldeyri. Mér fannst peningalykt vond og ég fann aldrei viðlíka vonda lykt fyrr en ég fann lykt af skúnki. Það var í Kanada. Þegar ég var barn lögðu útlendingar okkur til gjaldeyri með því að kaupa fisk í hvaða formi sem var. Núna hugsum við hlýlega til útlendinga því þeir eru hér á landi og strauja kortin sín svo hressilega að Seðlabankinn gleðst. Þeir eyða milljörðum líklega í uppstoppaða lunda og lopapeysur og Iceland Airwaves. Þá er ekki verra að hafa vaxandi atvinnuveg, nú þegar störf- um fækkar til sjós og lands. Loks er ferðamannaiðnaðurinn kröfuharð- ur um menntun. Menn þurfa t.d. að kunna útlensku. Og jafnvel fleira. Þegar ég var orðinn sigldur og uppgötvaði að hinn stóri heimur umlyki Ísland en ekki öfugt þá játa ég að mér fannst þessi fiskigjaldeyr- isviðhorf heldur heimóttarleg. Mér líður satt að segja svolítið eins og heimóttarlegheitin séu að leggjast á okkur aftur. Núna eru fjöl- miðlar fullir af fréttum um túrista. Þeir flæða svo um allt að við erum farin að óttast að þeir þvælist hver fyrir öðrum og hitti enga Íslendinga. En þó tók steininn úr og loks var fréttin af John Travolta topp- uð. Fréttin þar sem hann var spurð- ur hvernig honum líkaði landið á sama augnabliki og hann steig út úr flugvélinni. Það var þegar ágætur fréttamað- ur ágætrar fréttastofu, stillti sér upp við horn Pósthússtrætis og Austur- strætis og spurði fólk hvort það væri útlenskt eða íslenskt. Eins og lítil frænka mín sagði um daginn: Oh my god ... n Magnús Þorkelsson skólameistari Flensborgarskóla Kjallari „Mér líður satt að segja svolítið eins og heimóttarleg- heitin séu að leggjast á okkur aftur. „Hinsegin dagar eru að verða þjóðar- eign, eins konar sambland af 17. júní, 1. maí og degi ís- lenskrar tungu. Eins konar jafnréttisdagar eða jafn- vel mannréttindadagar. MynD MAgnúS HelgASon Leiðari eggert Skúlason eggert@dv.is Ísland varð hluti af alþjóðasamfélaginu Sigga Kling í stjörnuspá vatnsberans fyrir ágústmánuð. - visir.is Bíddu, hvaða rugl er þetta? Helgi Seljan um umfjöllun Eyjafrétta um umfjöllun Vikuloka um ummæli Páleyjar í Eyjum. - visir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.