Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Page 24
Helgarblað 7.–10. ágúst 201524 Fólk Viðtal V ið ákváðum að kúp- la okkur út, kláruðum Druslugönguna og fórum svo bara út úr bænum. Þetta er fyrsta sumarfrí lífs okkar,“ segir María Rut Kristinsdóttir, mark- aðsstjóri GOmobile, varaformað- ur stjórnar Samtaka '78 og einn af skipuleggjendum Druslugöngunn- ar, en hún og Ingileif Friðriksdótt- ir blaðamaður eru á hringferð um landið og fallast á að hitta blaða- mann á Bláu könnunni á Akureyri. Sonur Maríu Rutar, Þorgeir Atli, sjö ára, er með í för en situr niðursokk- inn að spila tölvuleik á meðan við spjöllum. Harkar ekki allt af þér Ingileif er Reykvíkingur en María Rut ólst upp á Flateyri en þar dvöldu þær Ingileif um tíma á hringferð sinni. „Ég er Vestfirðingur í húð og hár og verð alltaf móðguð þegar fólk segist hafa farið hringinn en sleppt Vest- fjörðum. Ég elska Flateyri meira en allt enda staðurinn sem ég ólst upp á og þarna á ég bæði góðar og slæmar minningar. Ég var sex ára þegar snjó- flóðið féll og Flateyri var ein sárar- úst. Það var svo margt sem gerðist, mörg áföll og þú harkar ekki bara allt af þér. Það er ekki mannlegt. Það var enginn sálfræðingur á Flateyri og fólk leitaði að leiðum til að deyfa sig. Það var því mikið um fyllerí.“ Enginn eltingarleikur Margir muna eftir því þegar María Rut steig fram í viðtali í Fréttablað- inu árið 2013 þar sem hún sagði frá kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í æsku. Sama ár og hún kom fram með sína sögu fann hún ástina í fyrsta skiptið. „Ég var formaður Stúdenta- ráðs á þessum tíma og við höfðum unnið hið svokallaða LÍN-mál og það var því mikil gleði. Ég hitti Ingileif um kvöldið svo þetta var sannkall- að sigurkvöld hjá mér. Við vörðum öllum deginum saman og svo var hún á undan að senda mér skilaboð daginn eftir og við höfum ekki ver- ið í sundur síðan. Við deituðum því eiginlega aldrei, það var aldrei neinn aðdragandi né eltingarleikur,“ segir María Rut sem hafði áhyggjur af því að vera of mikill „pakki“ fyrir hina ungu Ingileif þar sem María var ein- stæð mamma. Rólegar og heimakærar „En svo kom í ljós að Ingileif er líka mikil fjölskyldumanneskja, heima- kær og róleg týpa. Þótt hún sé yngri hef ég aldrei fundið neinn mun. Ingileif er heilsteypt og ég hef alltaf upplifað hana á jafningjavelli. En kannski er það bara ég sem er svona óþroskuð,“ segir hún bros- andi. Ingileif bætir við að hún hafi alltaf verið týpan sem vilji frekar vera heima en úti á djamminu að athafn- ast eitthvað misjafnt. „María byrj- aði snemma að segja að þetta væri örugglega of mikill pakki; að ég ætti frekar að vera í heimsreisu og lifa líf- inu. En það er auðvitað lítið mál að lifa lífinu og eiga svona snáða líka. Enda erum við miklir félagar,“ segir hún og tekur utan um annars hugar strákinn sem situr við hlið henn- ar, sem brosir við þessi orð og lík- lega að fylgjast meira með spjallinu en hann gefur upp. „Fjölskylda mín elskar Maríu og Þorgeir og tók þeim strax opnum örmum. Þetta small bara allt einhvern veginn. Við erum með Þorgeir aðra hvora viku og þær vikur sem hann er hjá pabba sínum eru oftast hlaðnar verkefnum svo við getum gert eitthvað skemmtilegt þegar hann er hjá okkur.“ Hættar í þykjustuleik Ingileif er fjórum árum yngri en Mar- ía og því aðeins 22 ára. „Ég heillað- ist strax af henni og fannst ótrúlegt að kona með alla þessa sögu væri komin svona langt en væri samt með fæturna svona vel niðri á jörðinni,“ segir Ingileif, sem hafði áttað sig á kynhneigð sinni stuttu áður en þær hittust. „Loksins meikuðu hlutirnir einhvern sens. Ég hafði lengi reynt að vera með strákum, því það var eitthvað sem samfélagið sagði mér að gera, en það var alltaf eitthvað sem stoppaði mig af. Mér hafði alltaf reynst svo erfitt að opna mig en svo sprungu allar þessar tilfinningar sem höfðu verið bældar niður og ég komst að því að ég var ekkert lokuð – ég bara kunni ekki að opna á til- finningarnar.“ María tekur undir og segist hafa ætlað sér að fá kærustuna til að opna sig. „Þú varst mjög lokuð en ég var ákveðin í að ná að opna þig. Og núna þegar það hefur tekist flæða tilfinningarnar um allt,“ segir hún brosandi en bætir svo alvarlegri við: „Í grunninn snýst þetta um lífsham- ingju. Við höfum báðar verið í þykju- stuleik í langan tíma, til að passa inn í þennan kassa, þetta gagnkyn- hneigða norm. Maður getur alveg feikað það en þannig upplifir mað- ur ekki lífshamingju. Ég vissi ekki að svona hamingja væri til.“ Átta ára í dag Aðspurð segist María Rut ekki hafa gert sér grein fyrir viðbrögðunum við viðtalinu á sínum tíma en þá hafði hún verið áberandi í háskólalífinu og meðal annars formaður Stúd- entaráðs. „Viðbragðanna vegna varð þetta allt þess virði. Ég hef kynnst ótrúlega mörgum og finnst ég eiga smá í þeim einstaklingum sem hafa komið til mín og sagt mér að þeir hafi sagt frá sinni reynslu eftir að hafa les- ið viðtalið. Þess vegna er ég tilbúin í að tala um þetta og vera berskjölduð og leggja hvern einasta júlí undir Druslugönguna. Ég er að þessu af hugsjón. Ég væri ekki hér ef ég hefði ekki sagt frá. Ég var gjörsamlega að bugast. Ég hef aldrei séð eftir því að hafa sagt frá. Það gaf mér líf. Í dag er ég átta ára, jafngömul syni mínum, sem er fá- ránlegt að segja. Líf mitt hófst þegar ég sagði frá,“ segir María, sem var tólf ára gömul þegar brotin hófust. „Í fyrsta skipti sem ég upplifði eitthvað kynferðislegt var þegar ég var mis- notuð. Öll mín unglingsár vakti ég til að reyna að koma í veg fyrir að hann gæti gert þetta við mig. Það er ekk- ert líf fyrir ungling að fá ekki að sofa. Ég vissi að þetta væri rangt og þess vegna fór ég að vaka. Ég reyndi samt lengi að réttlæta þetta, að hann hefði ruglast á mér og mömmu og hann hefði verið fullur. Fyrir mér var kynlíf lengi eitthvað ógeðslegt.“ Sonurinn bjargaði henni Eftir þessa ömurlegu lífsreynslu var kynlíf lengi vel eitthvað ógeðslegt í huga Maríu. Það er því kraftaverki líkast að hún varð ófrísk eftir fyrsta skiptið sem hún svaf hjá þáverandi kærastanum sínum. „Ég hafði enga trú á að ég gæti verið ófrísk enda kom það ekki í ljós fyrr en ég var komin 18 vikur á leið. Þá kom þetta kraftaverk í ljós. Þorgeir er algjör ljósberi og hans koma gerði það að verkum að mér tókst að halda mér uppi þrátt fyr- ir bullandi áfallastreituröskun fyrstu tvö árin í hans lífi. Ég hugsaði um hann og reyndi að vera góð mamma en átti lítið eftir fyrir sjálfa mig. Ég man lítið eftir þessum tíma og það er sárt því við fáum hann ekki aftur. Þorgeir hefur verið festan í lífi mínu. Það hefði verið auðvelt að flosna upp María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir eru ungar og ástfangnar. Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við þær um erfiða fortíðina, skömmina sem fylgir kynferðisbrotum, Druslugönguna, fyrirgefninguna, flóknar fjölskyldur og ástina sem þær fundu hjá hvor annarri. „Þetta var ást við fyrstu sýn“ Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.