Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Page 31
Helgarblað 7.–10. ágúst 2015 Lífsstíll 31
Dalshrauni 13
220 Hafnarfirði
Sími 565 2292
Settu fókusinn á
Þýsk gæði í gegn
Sumarútsalan
hafin í Hjólaspretti
20 - 50% afsláttur af völdum hjólum
M
argir ganga með hug-
mynd að veitingastað í
kollinum þó ekki komi
alltaf til framkvæmda.
Hvers vegna er ekki til veitinga-
staður sem selur lasagnað henn-
ar ömmu? Nú, eða fiskibollurnar
hans pabba?
Veitingarekstur í vögnum
býður upp á einfaldan og sér-
hæfðan rekstur þar sem slíkar
hugmyndir gætu átt heima. Ef
þig vantar innblástur gæti kvik-
myndin The Chef mögulega skil-
ið eftir sig örlagaríkar hugmyndir
í kollinum þínum. The Chef fjallar
um kokk sem missir vinnuna en deyr
ekki ráðalaus heldur opnar matar-
trukk í viðleitni sinni til að uppfylla
áður efnd loforð og um leið tjasla
saman tvístraðri fjölskyldu sinni.
Myndin hefur fengið frábærar við-
tökur og góða dóma! n
Áttu þér draum um að
opna veitingastað?
Kannski myndi matartrukkur henta
Hvatvís og ævintýragjörn
P
arið Hulda Björg Jónsdóttir
og Arnþór Stefánsson tóku
nýlega u-beygju í daglegu
lífi sínu. Arnþór sagði upp
sínu fasta starfi og settu þau
krafta sína í að byggja upp fyrirtæki
sem nú hefur hafið veitingarekstur í
litlum vagni við Lækjargötu.
Það þarf hugrekki, og er sannar-
lega stórt skref fyrir ungt barna-
fólk í föstum störfum, að henda sér
út í djúpu laugina og ráðast í áður
óþekktan rekstur.
„Já, ætli ég myndi ekki telja okk-
ur frekar hvatvís og ævintýragjörn.
Við sáum einfaldlega ákveðinn
möguleika sem við ákváðum að
grípa, það er, að bjóða fólki upp á
ferskt handgert sushi á lægra verði
en þekkist annars staðar. Arn-
þór hefur starfað lengi við sushi-
gerð og er þaulreyndur í því en ég
er sjálf menntuð sem lögfræðingur
og fannst okkur því tilvalið að sam-
eina þetta tvennt í góðum rekstri, þar
sem ég sæi þá aðallega um rekstrar-
hliðina og hann sushiið.“
Vilja auka fiskneyslu þjóðarinnar
Shirokuma sushi heitir veitinga-
staðurinn sem parið rekur á tæpum
tveimur fermetrum í fallegum vagni
við Lækjargötu. Lögð er áhersla
á ferskt og íslenskt hráefni en eitt
helsta markmið þeirra er að auka
fiskneyslu þjóðarinnar.
„Samkvæmt könnunum borða Ís-
lendingar ekki mikinn fisk og ef þeir
gera það þá er það einna helst fisk-
ur í sushi. Yfirleitt fær fólk sér bara
sushi til hátíðabrigða og því langaði
okkur að breyta. Við viljum stuðla
að frekari fiskneyslu þjóðarinnar og
skapa aðstæður þannig að fólk borði
sushi oftar og dagsdaglega. Sem
dæmi má nefna að hægt er að grípa
með sér sushibakka í hádeginu eða
eftir vinnu. Mikilvægur liður í þess-
um pælingum er að lækka verðið.
Þannig fengum við hugmyndina að
vagninum. Hann býður upp á lágan
húsnæðiskostnað og hagræðingu og
þannig náum við að lækka verðið á
sushi fyrir viðskiptavini okkar,“ seg-
ir Hulda Björg sem stendur vaktina
með manninum sínum í vagninum á
álagstímum.
Parið neitar því ekki að upp-
bygging fyrirtækisins hafi verið
þrautaganga enda alls konar leyfi og
þættir tengdir rekstrinum sem erfitt
var að sjá fyrirfram.
„Við höfum fengið mikla hjálp frá
vinum og fjölskyldu við að koma á
fót Shirokuma sushi. Arnþór hætti
að vinna og lagði allt í þetta. Því er
þó ekki að neita að þetta hefur ver-
ið smá basl. Við ætluðum upphaf-
lega að opna í júní en það dróst með-
al annars vegna þeirra leyfa sem
nauðsynleg eru fyrir svona rekstur.
Við sölu á sushi og hráum fisk eru
settar sérstaklega stífar reglur en það
er auðvitað bara gott og gerir okkur
ennþá stoltari af því að vagninn sé
opinn í dag enda merkir það að við
uppfyllum allar ströngustu kröfur
um gæði og hreinlæti.“
Smáauglýsing á sænsku
Blaðamanni leikur forvitni á að vita
hvar fólk kaupir vagna til veitinga-
reksturs og hvort þeir séu auðfengn-
ir þar sem hérlendis hefur ekki verið
mikil hefð fyrir slíkum rekstri hing-
að til.
„Vagninn keyptum við glænýjan
í Svíþjóð eftir langa leit og tilraun-
ir til að kaupa notaða vagna annars
staðar, eins og til dæmis í Danmörku.
Sem betur fer gekk það þó ekki eft-
ir og við duttum inn á sænska síðu
þar sem við rákumst á smáauglýs-
ingu á sænsku þar sem svona vagn-
ar voru boðnir til sölu; glænýir. Við
prófuðum bara að hringja og þá kom
í ljós sú fyndna staðreynd að annar
Íslendingur var nýbúinn að kaupa
svona vagn hjá honum tveimur vik-
um áður, en hann hafði aldrei selt
slíka vagna til Íslands fyrr.“
Það er því greinilegt að vagna-
veitingastaðabisnessinn fer ört
stækkandi á Íslandi en rík hefð er
fyrir slíkum veitingahúsum til dæmis
á meginlandi Evrópu og í Bandaríkj-
unum. Spennandi verður að fylgj-
ast með rekstri hjónanna sem og
annarra frumkvöðla á þessu sviði á
komandi misserum. n
n Opnuðu fyrsta sushi-vagninn á Íslandi n Tóku hvatvísa ákvörðun saman
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
„Yfirleitt
fær fólk
sér bara sushi til
hátíðabrigða og
því langaði okkur
að breyta.
Shirokuma sushi Sushivagninn í sumrinu.
Shirokuma-parið
Hulda Björg og Arnþór
eru komin á fullt í
sushiið. mynd SigTryggur ari