Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Blaðsíða 4
Helgarblað 21.–24. ágúst 20154 Fréttir
E
ngin ríkisstjórn síðastliðinn
áratug hið minnsta hefur tek
ið sér jafnlangt hlé milli ríkis
stjórnarfunda yfir sumartím
ann og núverandi ríkisstjórn
gerði í sumar. Þá liðu rúmar fimm
vikur milli funda. Formaður Sam
fylkingarinnar hefur kallað þetta
lengsta sumarfrí ríkisstjórnar í Ís
landssögunni. Aðstoðarmaður for
sætisráðherra segir helstu skýringuna
þá að ráðherrar hafi ekki óskað eftir
fundum, en að mikil samskipti hafi
engu að síður átt sér stað milli ráð
herra á tímabilinu.
Árni Páll Árnason, formaður Sam
fylkingarinnar, sagði í viðtali vegna
innflutningsbanns Rússa á íslensk
matvæli í fréttum Stöðvar 2 á sunnu
dag að það kæmi honum ekki á óvart
að íslensk stjórnvöld virtust óviðbú
in gagnaðgerðum Rússa. „Kemur ekki
á óvart þegar þessi ríkisstjórn er ný
komin úr lengsta sumarfríi sem nokk
ur ríkisstjórn hefur farið í fyrr og síðar
í Íslandssögunni.“ Vildi hann þar með
meina að ríkisstjórnin hefði getað nýtt
þann vettvang, sem ríkisstjórnarfund
ir eru, til að undirbúa viðbrögð við
innflutningsbanni Rússa. Aðstoðar
maður forsætisráðherra segir að mikil
vinna hafi verið í gangi þrátt fyrir þetta.
Lengsta frí fyrr og síðar?
Í samtali við DV kveðst Árni Páll
standa við ummælin, þótt hann
viðurkenni að hann byggi þau að
mestu á minni. „Ég hef fylgst með
pólitík í 30 ár og man ekki eftir öðru
eins.“
Árni segir þetta alvarlegt mál og við
blasi, eftir ummæli Bjarna Benedikts
sonar í Morgunblaðinu á fimmtudag,
að engin greining hafi verið lögð fram
í ríkisstjórn á afleiðingum ákvarðana
um þátttöku í viðskiptaþvingunum.
„Þannig að menn hafa aldrei verið að
vinna heimavinnuna. Það er nú vert
að minna á það líka að það var ákært í
Landsdómsmálinu fyrir að ekki væru
haldnir ríkisstjórnarfundir um mik
ilsverð málefni. Það verður að segjast
að ef menn telja þetta svo mikilsvert
málefni að það þurfi að breyta utan
ríkisstefnunni út af afleiðingum gagn
aðgerða Rússa þá blasir við að mönn
um hefði borið að halda um það að
minnsta kosti einn ríkisstjórnarfund.“
Árni segir það sýna alvarlega van
rækslu að hafa ekki greint þjóðar
hagsmuni í málinu og að ríkisstjórn
arfundir hefðu verið vettvangur fyrir
slíkt. „Og að menn geti síðan á sama
tíma verið í lengsta sumarfríi sögunn
ar, er saga til næsta bæjar.“
Fjarvera og frí í fréttum
Dularfull fjarvera, frí og utanlands
ferðir forsætisráðherra í einkaer
indum hefur verið fréttamatur oft
ar en einu sinni á kjörtímabilinu þar
sem tímasetningar ferðalaga hans
hafa verið gagnrýndar. Meðal annars
við umræðu um fjárlög. DV lék því
forvitni á að vita hvort eitthvað væri
hæft í yfirlýsingum Árna Páls, í það
minnsta eins langt aftur í tímann og
raunhæft getur talist að fá upplýsingar
um sumarhlé á ríkisstjórnarfundum.
Lengra hlé en hjá síðustu
ríkisstjórn
Á vef forsætisráðuneytisins má finna
yfirlit yfir dagskrá ríkisstjórnarfunda
aftur til byrjun febrúar 2009. DV
skoðaði sérstaklega mánuðina júlí
og ágúst. Eins og sjá má í meðfylgj
andi töflu þá fundaði ríkisstjórnin
reglulega yfir sumartímann á síðasta
kjörtímabili. Ríkisstjórn Framsóknar
flokks og Sjálfstæðisflokks tók síð
an við völdum í maí 2013. Það sum
ar liðu rúmar tvær vikur milli funda. Í
fyrra varð sumarfríið helmingi lengra,
eða rúmar fjórar vikur, en aldrei
lengra en í sumar þegar 37 dagar liðu
milli funda.
Lengsta hlé síðan 2006
Upplýsingar um fundi á vef ráðu
neytisins ná ekki lengra aftur en til
ársins 2009 og hafði DV því samband
við Ágúst Geir Ágústsson, skrifstofu
stjóra í forsætisráðuneytinu, með það
fyrir augum að fá upplýsingar lengra
aftur í tímann. Strax varð ljóst að lík
lega væri það ekki raunhæft, með til
liti til tíma og umfangs verkefnisins,
að finna umbeðnar upplýsingar allt
aftur til byrjunar sjöunda áratugarins
þegar byrjað var að rita fundargerðir
ríkisstjórnarfunda, sem geymdar eru
í skjalasafni á pappír. Rafræn skjala
skráning er tiltölulega ný af nálinni
í stjórnkerfinu. Þannig voru fundar
gerðir á árunum frá aldamótum til
ársins 2006 ritaðar á tölvu en einung
is varðveittar á pappír. Áratugina þar
á undan voru þær handskrifaðar. Af
augljósum ástæðum væri því mik
ið verk og tímafrekt að fletta því upp
eins langt aftur í tímann og mögu
legt er og sannreyna hvort hléið í
sumar væri bókstaflega það lengsta í
sögunni. Ágúst Geir athugaði því fyr
ir DV hvort dæmi væru um lengra hlé
yfir sumartímann aftur til ársins 2006.
„Ég kíkti á þetta og fann ekki dæmi
um lengra hlé á því tímabili.“
Ekki óskað eftir fundum
„Þetta er vissulega sumarleyfistími
en það er bara verið að vinna í ráðu
neytunum líka og það var ekki óskað
eftir fundi af hálfu ráðherranna á því
tímabili. Það er kannski helsta skýr
ingin,“ segir Jóhannes Þór Skúlason,
aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar forsætisráðherra,
aðspurður um skýringar á þessu
langa hléi á fundum. „Ríkisstjórnar
fundir eru gjarnan haldnir ef óskað er
eftir þeim. Ef ekki liggja fyrir mál þá er
ekki fundað.“
Aðspurður hvort ekki hefði verið
hægt að nýta þennan vettvang til að
undirbúa viðbrögð við gagnaðgerð
um Rússa og hvort það hefði breytt
einhverju, segir Jóhannes að hann
geti ekki svarað fyrir það sérstaklega.
Hins vegar bendir hann á að heil
mikil samskipti hafi verið í gangi þó
ekki hafi verið haldnir formlegir ríkis
stjórnarfundir.
„Það var í gangi hér heilmikil
vinna við að undirbúa viðbrögð við
gagnaðgerðum, eða hafa samskipti
við Rússland þegar fréttist af þessu.
Ég get ekki sagt hvort það hefði breytt
einhverju en vinnan var í gangi, þrátt
fyrir að ekki hafi farið fram formlegir
ráðherrafundir. Þessir ágætu ráðherr
ar tala saman oftar en bara á þess
um fundum. Það voru í gangi töluvert
mikil samskipti.“ n
HamraHlíð 17, 105 reykjavík / Hús Blindrafélagsins / sími 552-2002
Vönduð
lesgleraugu
frá 3.900 kr.
Lengsta sumarfrí
ríkisstjórnar í áratug
n Engir ríkisstjórnarfundir í rúmar fimm vikur n Lengsta sumarfrí í sögunni, segir Árni Páll
Ár Lengsta hlé á fundum yfir sumartímann Fjöldi daga milli funda Fjöldi vikna
2015 7. júlí–14. ágúst 37 dagar Rúmar 5 vikur
2014 11. júlí–12. ágúst 31 dagur Rúmar 4 vikur
2013 9. júlí–25. júlí 15 dagar Rúmar 2 vikur
2012 20. júlí–31. júlí 10 dagar Rúm vika
2011 26. júlí–9. ágúst 13 dagar Tvær vikur
2010 Fundað u.þ.b. vikulega yfir sumarið
2009 Fundað u.þ.b. vikulega yfir sumarið
Upplýsingar af vef forsætisráðuneytisins um dagskrá ríkisstjórnarfunda. Fundardagar undanskildir talningu á fjölda daga milli funda.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Þau fóru í fríið Ríkisstjórnarfundur fór fram þann 7. júlí í sumar en síðan ekki aftur fyrr en 14. ágúst. Engin ríkisstjórn hefur gert annað eins
hlé á fundum yfir sumartímann eins langt aftur og raunhæft þykir að athuga með skömmum fyrirvara. Mynd StJornarrad.iS
Lengsta frí í sögunni? Árni Páll Árna-
son, formaður Samfylkingarinnar, fullyrti að
um lengsta sumarfrí ríkisstjórnar í sögunni
væri að ræða. Mynd Sigtryggur ari