Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Qupperneq 6
Helgarblað 21.–24. ágúst 20156 Fréttir
Dalshrauni 13
220 Hafnarfirði
Sími 565 2292
Settu fókusinn á
Þýsk gæði í gegn
Sumarútsalan
hafin í Hjólaspretti
20 - 50% afsláttur af völdum hjólum
S
tærsti einstaki eigandi
aflandskrónueigna um þess-
ar mundir er bandaríska
sjóðastýringarfyrirtækið
Loomis Sayles, sem er með
eignir í stýringu að jafnvirði fimmt-
ánfaldri landsframleiðslu Íslands,
samkvæmt öruggum heimildum
DV. Þannig áttu skuldabréfasjóðir í
stýringu Loonis Sayles íslensk rík-
isskuldabréf fyrir meira en þrjátíu
milljarða króna að nafnvirði um mitt
þetta ár. Raunveruleg aflandskrónu-
eign félagsins er hins vegar talin vera
nokkuð meiri, eða á bilinu 35 til 40
milljarðar. Það jafngildir nærri 15%
af öllum aflandskrónustabbanum.
Eignarhald á slíkum krónueign-
um – skuldabréf með ríkisábyrgð
og innlán erlendra aðila í íslensk-
um fjármálafyrirtækjum – hefur á
undanförnum misserum orðið mjög
samþjappað enda er eigendum
þessara eigna heimilt að selja þær
öðrum erlendum aðilum þrátt fyr-
ir fjármagnshöft. Fram kom í kynn-
ingu á áætlun stjórnvalda um los-
un hafta þann 8. júní síðastliðinn
að meirihluti aflandskrónanna, sem
nema um 300 milljörðum, væru í
eigu um tíu erlendra fagfjárfesta.
Í þeim hópi eru sjóðir í stýringu
Loomis Sayles fyrirferðarmestir.
Þrátt fyrir ýmsar getgátur á
undanförnum árum þá hefur það
aldrei verið upplýst hverjir séu
helstu eigendur aflandskróna enda
þótt Seðlabanki Íslands telji sig hafa
ágætis yfirsýn um hvaða fjárfestar
standi að baki þessum krónueign-
um. Þetta er því í fyrsta skipti sem
slíkar upplýsingar koma fram í fjöl-
miðlum hér á landi.
Aflandskrónueigandi frá hruni
Loomis Sayles hefur verið eigandi að
íslenskum ríkisverðbréfum frá því fyr-
ir fall bankakerfisins og setningu fjár-
magnshafta haustið 2008 en sjóðir fé-
lagsins voru á meðal þeirra erlendu
fjárfesta sem stunduðu vaxtamunar-
viðskipti með íslensku krónuna. Í lok
júní á þessu ári áttu fimm skulda-
bréfasjóðir í stýringu hjá Loomis Say-
les krónueignir í formi eignarhalds
á þremur óverðtryggðum íslensk-
um ríkisskuldabréfaflokkum, en þar
munaði mestu um ríflega 14 milljarða
króna í skuldabréfum á gjalddaga í
október árið 2016. Þá áttu sjóðir fé-
lagsins einnig íslensk ríkisskuldabréf
sem eru á gjalddaga 2019 og 2022.
Auk þess að vera stærsti einstaki
eigandi aflandskróna eru sjóðir
Loomis Sayles jafnframt eigendur að
tíu ára skuldabréfi sem íslenska rík-
ið gaf út í maímánuði 2012 og nem-
ur sú eign þeirra um 5,5 milljörð-
um. Það er um 5% af heildarútgáfu
skuldabréfanna en hún nam millj-
arði Bandaríkjadala á sínum tíma.
Í yfirlitum um eignasamsetn-
ingu skuldabréfasjóða Loomis Say-
les kemur fram að eign þeirra í ís-
lenskum ríkisskuldabréfum er sögð
vera 31 milljarður íslenskra króna að
nafnvirði. Það nemur um þriðjungi
allra aflandskrónueigna sem erlend-
ir aðilar eiga í óverðtryggðum ríkis-
skuldabréfum, en samkvæmt mark-
aðsupplýsingum frá Lánamálum
ríkisins nam sú eign samtals um 155
milljörðum króna í lok júlímánaðar.
Búast við miklum afföllum
Í bókum skuldabréfasjóða Loomis
er markaðsverðmæti þessara krónu-
eigna hins vegar talsvert lægra held-
ur en nafnverð þeirra segir til um.
Þannig er núverandi markaðsverð-
mæti eigna sjóðanna á íslenskum
ríkisskuldabréfum talið vera um 163
milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði
um 22 milljarðar króna. Sjóðirnir
gera því með öðrum orðum ráð fyr-
ir því að þeir þyrftu að taka á sig af-
föll sem nemur um þriðjungi af nafn-
virði krónueignanna ef þeir myndu
vilja koma þeim úr landi í skiptum
fyrir erlendan gjaldeyri.
Ólíkt mörgum öðrum fjárfestum
sem eiga aflandskrónur eru sjóðir
Loomis Sayles, að sögn þeirra sem
þekkja vel til, ekki taldir í hópi óþol-
inmóðustu erlendu aðilanna sem
endurspeglast í því að eignarhald
þeirra hefur haldist nánast óbreytt
á undanförnum árum. Aðrir erlend-
ir aðilar, sem voru um tíma stærri
aflandskrónueigendur en Loom-
is Sayles, hafa hins vegar grynnkað
mikið á stöðu sinni, meðal annars
með því að taka þátt í gjaldeyrisút-
boðum Seðlabankans. n
Minnkað
um helming
Þegar mest var nam stærð aflandskrón
ustabbans um 600 milljarðar króna. Gjald
eyrisútboð Seðlabankans á undanförnum
árum hafa hins vegar dregið verulega úr
umfangi aflandskrónuvandans, sem hefur
minnkað niður í tæplega 300 milljarða.
Aflandskrónurnar voru engu að síður
einn af þeim þáttum sem þurfti að taka
á samhliða því að áætlun var kynnt um
losun fjármagnshafta enda er um að
ræða auðseljanlegar krónueignir í eigu
erlendra aðila sem gætu sett verulegan
þrýsting á gengi krónunnar ef þær yrðu
seldar fyrir gjaldeyri á skömmum tíma.
Þrátt fyrir fjármagnshöft þá var eigendum
aflandskróna lengst af heimilt að
fjárfesta í ýmsum verðbréfum og hafa um
70 milljarðar verið fluttar úr landi vegna
vaxtagreiðslna til aflandskrónueigenda.
Samkvæmt haftaáætlun stjórnvalda
á að leysa aflandskrónuvandann með
uppboði á gjaldeyri og annars vegar
sölu skuldabréfs til 20 ára í íslenskum
krónum og hins vegar skuldabréfs
í evrum til meðallangs tíma. Fallist
aflandskrónueigendur ekki á þessa
valkosti verða krónueignir þeirra settar
á vaxtalausa læsta reikninga. Eigendur
aflandskrónueignanna munu þurfa að
taka á sig umtalsverð afföll – líklega 40
til 50% – hvort sem þeira kjósa að fá
reiðufé í evrum í fyrirhuguðu gjaldeyris
útboði eða skipta á krónueignum sínum
fyrir skuldabréf með endurgreiðsluferli
sem er talið samrýmast greiðslujöfn
uði þjóðarbúsins. Til hefur staðið að
gjaldeyrisútboð Seðlabankans myndi
fara fram næstkomandi haust en
samkvæmt upplýsingum DV er alls óvíst
hvort sú tímasetning muni standa.
Sá stærsti á 30 milljarða
í aflandskrónueignum
Sjóðastýringafyrirtækið Loomis Sayles er stærsti einstaki eigandi aflandskrónueigna
Aflandskrónueignir
Loomis Sayles
14 milljarðar
ríkisskuldabréf á
gjalddaga 2016
12 milljarðar
ríkisskuldabréf á
gjalddaga 2019
5 milljarðar
ríkisskuldabréf á
gjalddaga 2022
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Aflands-
krónuvandi
Meðal annars
vegna gjald
eyrisútboða
Seðlabank
ans hefur
aflandskrónu
stabbinn
minnkað úr
600 millj
örðum í 300
milljarða á
síðustu árum.
31
milljarðurGakktu í bæinn
Menningarnótt verður haldin í
20. sinn á laugardag, þann 22.
ágúst. Yfirskriftin er sem fyrr
„Gakktu í bæinn!“ sem vísar til
þeirrar gömlu hefðar að bjóða
fólk velkomið og gera vel við
gesti. Flestir ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi þennan dag og
fram á kvöld, en stórtónleikar
verða bæði í Hljómskálagarðin-
um og við Arnarhól. Þá hlaupa
fjölmargir garpar í Reykjavíkur-
maraþoninu fyrr um daginn og
geta ungmenni spreytt sig í Lata-
bæjarhlaupinu. Hægt er að finna
dagskrána alla á vefnum menn-
ingarnott.is og skapa sína eigin
dagskrá fyrir daginn. Kvöldinu
lýkur svo með veglegri flugelda-
sýningu Sigríðar Soffíu Níels-
dóttur, Stjörnubrimi. Sigríður er
danshöfundur sem hefur síðast-
liðin tvö ár stýrt flugeldasýning-
um menningarnætur.
Mynd RAggi TH
Vinnuhópur á
að skoða vanda
Grímseyinga
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum á fimmtudag að settur verði
á laggirnar vinnuhópur þvert á
ráðuneyti sem skoði stöðu Gríms-
eyjar í samvinnu við aðgerðahóp á
vegum Akureyjarbæjar.
„Það er brýnt að bregðast við
þeirri erfiðu stöðu sem uppi hefur
verið í Grímsey síðustu ár. Heima-
menn óttast að ef ekkert verði að
gert þá leggist útgerð í Grímsey af
og jafnvel búseta í framhaldi þess.
Ég trúi því ekki að nokkur vilji
láta það gerast,“ sagði Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra.
Vinnuhópurinn skal ljúka störf-
um eigi síðar en 1. nóvember 2015.