Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Side 16
Helgarblað 21.–24. ágúst 201516 Fréttir MilljónasaMningar til eigin verkefna Meðlimir faghóps rammaáætlunar mátu hvort þeirra eigin stofnanir fengju verksamninga M eðlimir faghópa rammaá- ætlunar mátu hvort þeirra eigin fyrirtæki eða stofn- anir fengju verksamninga að verðmæti tugmilljóna. Formaður verkefnisstjórnar segir að þeir hafi ekki skarað eld að eigin köku. Hann segir að vegna fámenn- is í fræðimannageiranum hafi ekki verið hægt að koma í veg fyrir tengsl á milli faghópanna og verksamning- anna sem þeir lögðu til að yrðu gerðir. Umhverfis- og auðlindaráðu- neytið hefur gert tólf verksamninga um rannsóknarverkefni að beiðni tveggja faghópa vegna vinnu þeirra við verndar- og orkunýtingaráætl- un. Vinna við verkefnin hófst í sum- ar á vegum rammaáætlunar og munu bráðabirgðaniðurstöður úr þeim verða tilbúnar í vetrarbyrjun. Faghóparnir voru fengnir til að af- marka áhrifasvæði fyrirhugaðra virkj- unarframkvæmda og meta verðmæti fjölmargra þátta innan þeirra svæða með einkunnagjöf miðað við ástand þeirra fyrir virkjun. Verkefnisstjórn rammaáætlunar, sem sá um að velja í faghópana, var skipuð af Svandísi Svavarsdóttur, þá- verandi umhverfis- og auðlindaráð- herra, í mars 2013 til fjögurra ára. Í henni eru Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, Helga Barðadóttir, sérfræðingur hjá atvinu- vega- og nýsköpunarráðuneytinu, Hildur Jónsdóttir sérfræðingur hjá forsætisráðuneytinu, Elín R. Líndal, sveitarstjórnarfulltrúi og Stefán Gísla- son, formaður verkefnisstjórnar. Pirrandi að missa tvö ár Það var ekki fyrr en í sumar, um tveimur árum síðar, sem rannsókn- irnar hófust og segir Stefán það hafa verið „mjög pirrandi“ að hafa ekki getað nýtt þessi tvö ár sem fóru til spillis. Hægt hefði verið að gera meira og ígrunda hlutina betur ef meiri tími hefði verið fyrir stafni. Ein ástæða fyr- ir því var hægagangur í kerfinu. Verksamningar voru gerðir við Matís, Náttúruminjasafn Íslands, Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands og Háskóla Íslands - Land- og ferðamálafræðistofu, en heildar- samningsfjárhæðin nemur 102,3 milljónum króna. Tugir milljóna í eigin stofnanir Mestur peningurinn, eða rúmar 60 milljónir króna, fór í sex verkefni á veg- um Háskóla Íslands - Land og ferða- málafræðistofu. Formaður faghópsins sem lagði til að verksamningar yrðu gerðir við háskólann er Anna Dóra Sæ- þórsdóttir, dósent við Háskóla Íslands. Næsthæsta upphæðin, tæpar 19 milljónir króna, fór í þrjú verkefni á vegum stofnunar Rannsóknarsetra Há- skóla Íslands. Í faghópnum sem lagði til að verkefnin yrðu styrkt eru m.a. Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðu- maður Rannsóknarseturs Háskóla Ís- lands á Suðurlandi, og Þorvarður Árna- son, forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Fyrirtækið Matís fékk 10,2 milljóna styrk til rannsóknar á hitakærum ör- verum á háhitasvæðum á Reykjanesi, Hengilssvæðinu og Fremrinámum. Í faghópnum sem lagði til að verkefnið yrði styrkt er Sólveig Pétursdóttir, ver- kefnastjóri Matís. Beggja megin borðsins Það lítur því út fyrir að sumir sér- fræðingarnir úr faghópunum sem veittu álitsgjöf hafi þurft að meta vinnuna við verkefni síns eigin fyrir- tækis eða stofnunar og ákvarða út frá því hvort þau fengju verksamninginn eða ekki. Þeir hafi því setið beggja vegna borðsins. Stefán Gíslason, formaður verk- efnisstjórnar, segir að það hafi ekki verið raunin. Faghóparnir hafi verið meðvitaðir um að þeir gætu þurft að svara fyrir þetta. Þess vegna hafi þeir vandað sig eins og þau gátu og settu sér ramma um ákveðin mál, til að ganga úr skugga um að ákvarðanirnar litu ekki tortryggilega út. Lögðu ekki mat á eigin niðurstöður Hann segir að hlutverk faghópanna hafi ekki verið að leggja mat á sínar eigin rannsóknarniðurstöður heldur hafi rannsóknirnar verið hluti af starfi þeirra í hópnum. „Í hvorum faghópi er um tíu manna hópur sem notar þess- ar niðurstöður til að vinna að matinu. Það er mjög erfitt að sjá hvernig sama fólkið sem hefur að einhverju leyti unnið að þessum rannsóknum geti skekkt niðurstöðurnar. Það getur ekki verið neitt í þessum niðurstöðum sem dregur taum einnar virkjanahugmynd- ar frekar en annarrar,“ segir Stefán. „Þetta er sérfræðingahópur sem leitar að bestu gögnum sem mögu- legt er til að geta komist að bestu niðurstöðu. Gögnin eru borin und- ir fagstofnanir og ef ástæða er til eru þau borin undir erlenda sérfræðinga vegna þess að á þessum sviðum er öðrum sérfræðingum varla til að dreifa hérlendis. Ef þessara hliða er gætt er ekki um að ræða að menn séu báðum megin borðsins. Þá eru gögn- in þau sem menn geta best aflað á hverjum tíma,“ segir Stefán. Fámennið á Íslandi vandamál Hann segir fámennið á Íslandi einmitt þess valdandi að sama fólk- ið er bæði í faghópunum og að vinna rannsóknarvinnuna. „Í stærra samfé- lagi, sem væri þroskaðra fræðasam- félag, myndi þetta sjálfkrafa dreifast meira. Þessi staða getur alveg vakið spurningar og það er ekkert hafið yfir gagnrýni sem mennirnir gera. En það er erfitt að fást við þetta í þeirri stöðu sem við erum í með öðrum hætti.“ Að sögn Stefáns eru ofangreind- ir verksamningar sem gerðir voru við Háskóla Íslands - Land og ferða- málafræðistofu, Matís og Rann- sóknarsetur Háskóla Íslands og tengsl þeirra við faghópana dæmi um „óskaplegt fámenni í þessum fræði- mannageira“. „Það er engin leið að setja fram rökstuddar grunsemd- ir um að þetta fólk hafi haft fjárhags- legan hag að þetta æxlist svona,“ segir hann og nefnir sem dæmi að enginn á Íslandi starfi í dag við rannsóknir á hitakærum örverum nema tveir til þrír sérfræðingar hjá Matís. Í faghópi og stýrir rannsóknum „Það er eins með Önnu Dóru [Sæþórs- dóttur, dósent við Háskóla Íslands]. Hún er afskaplega mikilvægur fulltrúi í faghópnum vegna þekkingar sinn- ar. Svo stýrir hún í raun og veru öll- um rannsóknum á þessu sviði sem eru unnar á Íslandi [rannsóknum á viðhorfum ferðamanna]. Það eru fleiri sérfræðingar í Háskóla Íslands sem vinna við þetta en hún er leiðandi í þeirri vinnu og hefur verið það í mörg ár. Við megum missa hana úr hvorugu,“ segir hann og tekur fram að engin leið sé að sýna fram á að hún hafi, frekar en aðrir, haft fjárhagslega hagsmuni af fyrirkomulaginu. „Hún er bara í vinnu hjá háskólanum og háskólinn fær greitt fyrir að vinna þessa rannsókn.“ Eina í boði miðað við aðstæður Stefán heldur áfram: „En það væri margt sem hægt væri að gera einfaldara ef við værum til dæmis í fimm milljóna samfélagi þar sem væri haugur af fólki að vinna á hverju sviði. Á Íslandi er hver einstaklingur með gríðarlega breitt svið,“ bætir hann við en sér samt ekki hættuna á hagsmunaárekstrum í ferlinu. „Ég sé ekki hvernig þetta fyrirkomulag, sem virðist vera það eina í boði miðað við aðstæður, getur skekkt niðurstöðurnar. Ég get ekki heldur séð hvernig neinn í þessu fyrirkomulagi er í aðstöðu til að skara eld að eigin köku.“ Tillögum skilað í febrúar 2016 Bráðabirgðaniðurstöður verkefnanna verða lagðar til grundvallar mati faghópa á verndar- og nýtingargildi þeirra virkjunarkosta sem þeir hafa nú til umfjöllunar. Faghóparnir munu síðan skila tillögum sínum til verkefnisstjórnar rammaáætlunar 17. febrúar 2016. Drög að endanlegum tillögum verkefnisstjórnar verða kynnt í apríl og þann 1. september 2016 mun verkefnisstjórn afhenda umhverfis- og auðlindaráðherra fullfrágengna tillögu að loknu 12 vikna opnu umsagnarferli. Tillaga ráðherra til þingsályktunar um nýja rammaáætlun verður svo væntanlega afgreidd á vorþingi 2017. n Samningsaðili: Rannsókn á: Faghópur: Samningsfjárhæð: Háskóli Íslands - Land og ferðamálastofa áhrifum fyrirhugaðra vatnsaflsvirkjana í Skaga- firði á ferðamennsku Faghópur 2 9.003.894 Háskóli Íslands - Land og ferðamálastofa áhrifum fyrirhugaðrar vatnsaflsvirkjana í Skjálf- andaflóa á ferðamennsku Faghópur 2 7.821.284 Háskóli Íslands - Land og ferðamálastofa áhrifum fyrirhugaðra jarðvarmavirkjunar við Hágöngur á ferðamennsku Faghópur 2 6.667.431 Háskóli Íslands - Land og ferðamálastofa áhrifum fyrirhugaðra jarðvarmavirkjunar á Reykjanesi á ferðamennsku Faghópur 2 11.138.726 Háskóli Íslands - Land og ferðamálastofa áhrifum fyrirhugaðra vatnsaflsvirkjana á Suðu- landi á ferðmennsku Faghópur 2 14.839.366 Háskóli Íslands - Land og ferðamálastofa viðhorfi til virkjunarhugmynda, víðerna og óbyggða og raflína Faghópur 2 11.376.467 Matís ohf. hitakærum örverum á háhitasvæðum á Reykjanesi, Hengilsvæðinu og Fremrinámum Faghópur 1 10.200.000 Náttúruminjastofnun íslands áhrifum virkjana á náttúru- og menningarminjar, landslag og víðerni Faghópur 1 4.500.000 Náttúruminjastofnun íslands fjölbreytni lífs, lands og menningarminja Faghópur 1 7.800.000 Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands víðerni Faghópur 1 4.920.000 Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands landslagsgreiningu Faghópur 1 6.600.000 Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands landslagsmati Faghópur 1 7.440.000 Samtals: 102.307.168 Áætlun um vernd og nýtingu landsvæða Fulltrúar faghópanna Faghópur 1 n Skúli Skúlason prófessor, Háskólanum á Hólum, formaður n Ása Lovísa Aradóttir prófessor, Landbúnað- arháskóla Íslands n Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur, Fornleifastofnun Íslands n Gísli Már Gíslason prófessor, Háskóla Íslands n Kristján Jónasson sviðsstjóri, Nátt- úrufræðistofnun n Sólborg Una Pálsdóttir verkefnastjóri, Minjastofnun, Sauðárkróki n Sólveig Pétursdóttir verkefnastjóri Matís n Tómas G. Gunnarsson, forstöðumaður Rann- sóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, n Þorvaldur Þórðarson prófessor, HÍ n Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rann- sóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Faghópur 2 n Anna Dóra Sæþórsdóttir dósent, HÍ, formaður n Anna G. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri AGMOS ehf., n Áki Karlsson þjóðfræðingur, Lands- bókasafni Íslands, n Einar Torfi Finnsson landmótunarfræðingur, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum ehf., n Guðni Guðbergsson sviðsstjóri, Veiðimálastofnun n Jóhannes Sveinbjörnsson dósent, Landbún- aðarháskóla Íslands (Jóhannes sagði sig frá starfinu í nóvember 2014 vegna anna), n Sigrún Valbergsdóttir, fararstjóri og leiðsögumaður n Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir líffræðingur, Náttúrustofu Norðausturlands, n Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Landgræðslu ríkisins Freyr Bjarnason freyr@dv.is Hellisheiðarvirkjun Tillögum til verkefnisstjórnar rammaá- ætlunar verður skilað í febrúar á næsta ári. Stefán Gíslason er formaður verkefnisstjórnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.