Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Síða 18
Helgarblað 21.–24. ágúst 201518 Fréttir Erlent
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Hágæða parketplankar
á góðu verði
Hér er best að búa
Ástralía og Kanada eiga bestu borgir í heimi
Þ
að er best að búa í Mel-
bourne í Ástralíu en verst
að búa í Damaskus í Sýr-
landi, samkvæmt lista
„The Economist Intelli-
gence Unit“, sem tekin er saman
af sérfræðingum tímaritsins, The
Economist.
Þar hafa verið teknir saman og
vegnir allir helstu kostir og ókostir
þess að búa í borgunum. Litið er til
þess hvaða borgir og staðir í heim-
inum hafa bestu og öruggustu að-
stæður til búsetu. Það vekur athygli
að það þykir einna best að búa í
borgum Ástralíu, en borgirnar Mel-
bourne, Adelaide, Perth og Sydney
skipa sér allar ofarlega á listann. Þá
eru borgir Kanada einnig hátt skrif-
aðar. Borgirnar Kænugarður í Úkra-
ínu, Damaskus í Sýrlandi og Trípólí í
Líbýu, eru verstu borgirnar. Ástandið
í þeim öllum hefur verið óstöðugt í
lengri tíma og þykja íbúar þeirra búa
við mikið óöryggi eðli málsins sam-
kvæmt. Ástandið í Sýrlandi fer versn-
andi dag frá degi og deila Rússa og
Úkraínu fer aðeins harðnandi. Ýmis-
legt hefur áhrif á valið. Til dæmis má
nefna að París féll niður listann og er
ástæðan rakin til hryðjuverkanna á
ritstjórnarskrifstofu Charlie Hebdo
í vetur. Þessar borgir skipuðu sér á
listann yfir tíu bestu. n
10 Helsinki (Finnland) og Zürich (Sviss)Helsinki er að endurheimta stöðu sína sem miðstöð
hönnunar og nýsköpunar og virðist hafa fengið aukið
sjálfstraust sem slík. Zürich er nokkur andstæða Helsinki, en
þar má segja að menn takist frekar á við fjármálageirann og
finni nýsköpun þar. Í báðum borgunum ættu menn þó að geta
fundið aðstæður við sitt hæfi.
9 Auckland (Nýja-Sjáland)
Hafnarborgin Auckland
hefur íbúum sínum margt að
bjóða. Auðvelt er að komast
hratt og örugglega út í nátt-
úruna en einnig drekka í sig
menningu borgarinnar.
8 Perth (Ástralía)
7 Sydney
5/6 Calgary (Kanada) og Adelaide (Ástralía)
4 Toronto (Kanada)Ferðasérfræðingur dagblaðsins The Telegraph segir einfald-
lega: „Toronto er skemmtileg.“ Þar höfum við það.
3 Vancouver (Kanada)Vancouver hefur setið hátt á listanum í áratug. Það þykir afar
gott að búa í borginni, vinalegt andrúmsloft og mikið öryggi. Menn-
ing, fjölbreytileiki og heimsborgarabragur þykir einkenna hana.
2 Vín (Austurríki)Vínarborg er ein af þremur borgum þessa lista sem ekki
tengist Ástralíu eða Kanada. Ferðablaðamenn segja hana heilla
strax, frá fyrstu mínútu. Þú getur ferðast ótal oft til Vínar, en alltaf
kynnst nýrri hlið á þessari fallegu borg. Borgarbúar og ferðamenn
eru umvafðir sögulegum slóðum og hámenningu.
1 Melbourne (Ástralía)Besta borgin, fimmta árið í röð. Hér er best að búa, skemmtilegast og hvað öruggast.
Iðandi menningarlíf, matarmenning á miklu flugi. Ferðablaðamaður Telegraph segir að
borgin sé „töffarinn“ í hópnum.