Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Qupperneq 22
Helgarblað 21.–24. ágúst 201522 Umræða
U
m þessar mundir er þess
minnst að 70 ár eru liðin
frá því að atómsprengj-
um var varpað á japönsku
borgirnir Hiroshima og
Nagasaki. Þar með var kjarnorkuöld
gengin í garð og kalda stríðið skall
á skömmu síðar með kjarnorkuvíg-
búnaðarkapphlaupi stórveldanna.
Viðbrögð við kjarnorkuvá
Á árunum eftir síðari heimsstyrjöld
gripu stjórnvöld víðs vegar á Vest-
urlöndum til margvíslegra aðgerða
svo verja mætti almenna borgara
kæmi til kjarnorkustyrjaldar. Er-
lendis voru gerðar umfangsmikl-
ar áætlanir um brottflutning fólks
af þéttbýlustu svæðum og að sama
skapi var hvarvetna efnt til fræðslu
um það hvernig fólk skyldi haga sér
ef atómsprengja spryngi.
Svo virðist sem íslensk stjórn-
völd hafi gengið skemur í þessum
efnum en forystumenn nágranna-
þjóðanna, en þegar um mið-
bik sjötta áratugarins höfðu hinar
Norðurlandaþjóðirnar reist gríðar-
stór loftvarnarbyrgi í stærstu borg-
um og gerðar voru frekari áætlanir
um hvernig draga mætti úr mann-
tjóni kæmi til kjarnorkuárásar.
Stjórnvöld gagnrýnd
Herstöðvaandstæðingar voru mjög
gagnrýnir á íslensk stjórnvöld fyrir
sinnuleysi í þessum málaflokki. Ein
helsta röksemd þeirra gegn veru
varnarliðsins var sú árásarhætta
sem það skapaði kæmi til styrjald-
ar. Keflavíkurflugvöllur væri aukin-
heldur í næsta nágrenni við mestu
byggð landsins. Hér á landi væri því
jafnvel enn ríkari ástæða til að efla
varnir gegn kjarnorkuvá en á hinum
Norðurlöndunum.
Í tímariti þjóðvarnarmanna,
Frjálsri þjóð, var því haldið fram árið
1955 að ástæða sinnuleysis stjórn-
valda væri sú að hún þyrði ekki „að
láta þjóðina finna það áþreifanlega,
í hvaða hættu henni var stefnt með
herstöðvunum“. Í Frjálsri þjóð sagði
svo: „Hér hafa engin loftvarnarbyrgi
verið gerð. Hér hefur enginn undir-
búningur verið gerður að skyndi-
flutningi fólks frá Faxaflóa, ef til
þyrfti að taka. Hér er ekki kunnugt
um, að læknum hafi verið kynnt
sérstaklega, hvaða ráðum skuli
beita við sjúklinga er orðið hafa fyr-
ir skaðlegum geislaáhrifum. Engar
leiðbeiningar hafa verið birtar al-
menningi um það, hvernig mönn-
um beri að haga sér, ef kjarnorku-
árás yrði gerð á Keflavíkurflugvöll.“
Loftvarnarbyrgi undir Arnarhóli
Þrátt fyrir gagnrýni þjóðvarnar-
manna og sósíalista var starfandi
loftvarnarnefnd á þessum árum,
en henni var komið á laggirn-
ar 1951, sama ár og undirritaður
var varnarsamningur við Banda-
ríkin. Nefndinni stýrði Sigurjón
Sigurðsson lögreglustjóri og hún
hafði framan af yfir allnokkrum
fjárheimildum að ráða sem not-
aðar voru til eldvarna, hjúkrunar-
og líknarmála og til að koma upp
stjórnstöðvum, aðvörunarkerfi,
fjarskiptakerfi, birgðageymslum,
hjálparsveitum og ýmsu öðru.
Nefndin lét enn fremur rann-
saka þörf á loftvarnarbyrgjum og
var niðurstaða þeirra athugana
að hús hér á landi væru almennt
traustbyggðari en í öðrum lönd-
um og því rétt að skipuleggja loft-
varnarbyrgi sem víðast í kjöllur-
um húsa. Ef til loftárása kæmi yrði
vandasamast að koma fólki fyrir
í skýlum í miðbænum og var því
áformað að við endurbyggingu
miðbæjarins yrði gert ráð fyr-
ir loftvarnarbyrgjum í kjöllur-
um. Nefndin lagði að auki til að
útbúið yrði stórt loftvarnarbyrgi
undir Arnarhóli. Þá voru keypt-
ar rafknúnar loftvarnarflautur frá
Danmörku.
Geislavirkt ryk
Þessum málum var komið í fastara
form með almannavarnarlögum
árið 1962. Það sama ár reis Kúbu-
deilan og líklega var aldrei jafn-
mikil hætta á að kjarnorkustyrjöld
brytist út og einmitt þá.
Árið 1967 gáfu Almannavarnir
ríkisins út fræðslurit þar sem fjall-
að var um varnir og viðbúnað við
„Forsetasetrið á
Bessastöðum
var tekið út með tilliti til
þess að eins megatonns
atómsprengja yrði
sprengd nálægt jörðu á
Keflavíkursvæðinu og að
geislavirkt úrfall bærist
frá henni til Bessastaða.
n Viðbúnaður við kjarnorkuvopnaárás á Ísland n Kjarnorkubyrgi á Bessastöðum
Reykjavík Til að vernda
stjórnvöld landsins var
kannaður möguleiki á að
flytja æðstu embættis-
menn út fyrir Reykjavík,
en ekki hefur verið gefið
upp hvaða staður var
hafður í huga í því efni.
Björn Jón Bragason
bjornjon@dv.is
Fréttir úr fortíð
„HORFIÐ EKKI Í LJÓSIГ
Hlaðin búnaði: Bakkskynjarar - Loftkæling - Cruise
Control - Skilrúm - 250° opnun á afturhurðum - Spólvörn
Stöðugleikakerfi - Handfrjáls búnaður fyrir síma - USB tengi ofl.
Okkar verð :
3.900 þús án vsk.
(4.836. þús með vsk.)
Nýr 2015 Renault Master L2H2 ←