Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Síða 26
Helgarblað 21.–24. ágúst 2015 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 26 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Á köldum klaka Framsóknar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis- ráðherra hefur staðið fastur fyr- ir í Rússadeilunni og uppskorið fyrir vikið bæði lof og gagnrýni. Báðir stjórnarflokkarnir eru klofnir í málinu, en athygli vek- ur að þeir sem helst hafa kom- ið utanríkisráðherra til varnar koma úr herbúðum Sjálfstæð- isflokksins. Ef undan eru skil- in Karl Garðarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir, þá er þögn sam- flokksmanna Gunnars Braga allt að því ærandi, jafnt ráð- herra sem þingmanna. Það vakti svo sérstaka eftirtekt að Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár- laganefndar, sagðist í útvarps- viðtali ekki vilja svara því hvort Gunnar Bragi ætti að segja af sér. Er von að spurt sé, hver þarf óvini þegar hann á svona vini? Ísland í dag fer undir hatt Jóns Gnarr Tilkynnt var um umfangsmiklar skipulagsbreytingar innan 365 miðla fyrir skemmstu. Þannig mun Andri Ólafsson, sem ver- ið hefur fréttastjóri á Frétta- blaðinu, taka við sem ritstjóri Íslands í dag af Sindra Sindra- syni. Heyrst hefur að enn frek- ari breytingar séu hins vegar í farvatninu og að þátturinn muni senn ekki lengur heyra undir fréttastofu 365, sem er ritstýrt af Kristínu Þorsteinsdóttur, heldur undir innlenda dagskrárgerð. Þar ræður ríkjum Jón Gnarr, fyrr- verandi borgarstjóri, sem var ráðinn ritstjóri innlendrar dag- skrár í júlí síðastliðnum. Ekki er endanlega ljóst hvernig hið „nýja“ Ísland í dag mun líta út – sú vinna er núna í höndum Jóns Gnarr og Andra – en líklegt þykir að verulega verði dregið úr fréttatengdri umfjöllun í þættinum frá því sem áður var. Áhorf á Ísland í dag hrundi eftir breytingar sem voru gerðar á þættinum á síð- asta ári þar sem lögð var áhersla á meiri samvinnu við fréttastofu 365, meðal annars með þáttum um stjórnmál og viðskipti. Þær breytingar féllu ekki vel í kramið hjá áhorfendum Stöðvar 2. Ó líkt höfðust þeir að síðast- liðinn miðvikudag, Már Guð- mundsson seðlabankastjóri og Þórarinn Ævarsson, fram- kvæmdastjóri IKEA. Seðla- bankastjórinn tilkynnti um hækk- un stýrivaxta og spáði aukinni verðbólgu og hækkun verðlags. Fram- kvæmdastjórinn boðaði um þriggja prósenta lækkun vöruverðs hjá fyr- irtæki sínu og hvatti önnur fyrir- tæki til að fara eins að. Skilaboð þessara tveggja manna voru alls ólík og framganga þeirra í fréttaviðtölum sömuleiðis. Seðlabankastjórinn sagði að ný- gerðir kjarasamningar myndu auka verðbólgu og bætti við: „Síðan höf- um við sjálf, eins og alltaf, farið aðeins fram úr okkur. Við erum að taka út gleðina aðeins of fljótt í formi launa- hækkana og annarra aðgerða.“ Lands- menn þekkja þessa hræðsluþulu seðlabankastjórans mætavel og eru örugglega ansi margir orðnir þreytt- ir á henni. Í hvert sinn sem laun hins venjulega launamanns eru hækkuð heyrast þung andvörp frá mönnum sem eru á forstjóralaunum hjá fyrir- tækjum og stofnunum. Þeir telja sín eigin laun og hækkun á þeim koma stöðugleika ekkert við, enda hafa sumir þeirra leitað til dómstóla til að fá laun sín hækkuð enn meir. Framkvæmdastjóri IKEA talaði sannarlega ekki á sömu nótum og seðlabankastjóri. Hann sér ekki það illa sem nýgerðir kjarasamningar ættu að framkalla samkvæmt boðskap seðlabankastjóra. Hann boðaði verð- lækkun og sagði kjarasamningana hafa verið þess eðlis að flest fyrirtæki ættu að geta tekið þeim með myndar- brag. Hann sagði einnig að fleiri fyr- irtæki gætu lækkað verð og dregið þannig úr verðbólguþrýstingi. Framkvæmdastjóri IKEA ætti ekki að þurfa að missa vinnuna næstu árin, svo kröftugur fulltrúi fyrirtæk- isins er hann. Landsmenn hljóta að bíða eftir því að fleiri forsvarsmenn fyrirtækja stígi fram og tilkynni um lækkun á vöruverði. Reynar er snúð- ur á einhverjum þeirra, sem sögðu við fréttamann Stöðvar 2 að verðlækk- un IKEA væri auglýsingabrella! Sam- kvæmt þeirra kokkabókum er ekki allt með felldu þegar fyrirtæki gerir vel við viðskiptavini sína. Þessir sömu menn hafa örugglega sopið hveljur þegar þeir heyrðu þennan sama fram- kvæmdastjóra nefna það í viðtali að hagnaður IKEA hefði að undanförnu verið of mikill. Seðlabankastjóri er á einkennilegu róli og peningastefnunefnd Seðla- bankans er sérstakt fyrirbæri. Fjár- málaráðherra landsins hafði varað við hækkun stýrivaxta, en ekki var á það hlustað. Seðlabankastjóranum, sem er margt betur gefið en hógværð, sagði yfirlætislega í viðtali: „Við getum ekki byggt stefnu okkar á kraftaverkum.“ Framkvæmdastjórn IKEA sér engin kraftaverk í því að lækka verðlag, held- ur telur það vera skynsamlega og raunhæfa aðgerð. Það er ekki undar- legt þótt einhverjir hafi velt því fyr- ir sér hvort ekki væri rétt að skipta út peningastefnunefnd Seðlabankans og setja þar í staðinn framkvæmdastjórn IKEA. n IKEA og seðlabankastjórinn Ég held að allir geti lent á glapstigum Brynhildur Pétursdóttir í pistli sínum um málefni fanga. - DV Ég komst þess vegna bara að þessu fyrir slysni Sylvía Magnúsdóttir sem var ættleidd ung en fann óvænt fimm systkini í Þýskalandi. - DV Ætli þetta sé ekki svolítið eins og að vera sjómaður Stebbi Jak, söngvari Dimmu, um líf rokkarans. - DV Látum hendur standa fram úr ermum H austið nálgast óðfluga og rútínan sem margir bíða eft- ir er rétt handan við hornið. Þessa dagana eru skólarnir í startholunum og margir hafa snúið til baka til vinnu eftir sumarfrí. Þar á meðal þingmenn sem undirbúa nú komandi þingvetur, með því að út- búa ýmis þingmál sem stefnt er að því að klára á næsta þingi. Jafnframt eru margir þingmenn á ferðalagi um landið, láta sjá sig og heyra hvað brennur á landsmönnum. Á þess- um ferðalögum um landið má heyra að það eru mörg mikilvæg mál sem landsmenn vilja sjá fyrir endann á. Þar má m.a. nefna húsnæðisfrum- vörp félags- og húsnæðismálaráð- herra, verðtryggingarfrumvörpin og mörg önnur mikilvæg þingmál sem bíða afgreiðslu. Þessi þingmál, sem og mörg önnur er stefnt að því að klára á næsta þingi, sem hefst þann 8. september. Höfum val og aukum öryggi Óhætt er að segja að mikil og góð vinna hefur farið fram í ráðuneyti félags- og húsnæðismálaráðherra í allt sumar. Þar hafa allir lagst á eitt við að undirbúa frumvörp sem hafa það að markmiði að efla hér hús- næðismarkaðinn. Frumvörp sem taka á húsnæðissamvinnufélög- um, húsaleigulögum, húsnæðisbót- um og stofnstyrkjum til leigufélaga. Þessi frumvörp verða lögð fram á fyrstu vikum þingsins og kláruð á haustþingi. Afar mikilvægt er að þessi frumvörp fái skjóta afgreiðslu í meðferð þingsins og að samstaða ríki um þau. Þessi frumvörp tengj- ast samkomulagi um kjarasamn- inga á almennum vinnumarkaði. Auk þessa er mikil vinna í gangi sem snýr að stuðningi við þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Unnið er að útfærslu varðandi skattaívilnan- ir fyrir þá sem leigja íbúðir til lang- tímaleigu og auk þessa er unnið að endurbótum á lánaumhverfi íbúðarlána, þar sem hagur neytand- ans er hafður í forgrunni. Öll þessi vinna hefur það að markmiði að auka húsnæðisöryggi landsmanna og vera með raunhæft val á hús- næðismarkaði. Það er val um hvort fólk vilji kaupa húsnæði, leigja eða fara millileiðina og búa í búsetu- íbúðum. Burt með verðtryggingu Mikilvægt er að afnema verð- tryggingu af húsnæðislánum til að minnka vægi verðtryggingar á lána- markaði. Það er nauðsynlegt til að stöðva þá eignatilfærslu sem verður frá íslenskum heimilum til fjármála- stofnana, þegar verðbólgan hækkar. Það verður að ganga til þessara verka, um er að ræða mikið hagsmuna- og réttlætismál, fyrir heimili landsins. Það er nú svo að skýrsla sérfræði- hóps um afnáms verðtryggingar af neytendalánum var birt í lok janú- ar 2014. Meirihluti sérfræðihóps- ins lagði til að frá og með 1. janúar 2015 yrðu stigin veigamikil skref í átt að fullu afnámi verðtryggingar nýrra neytendalána, en vinna við áætlun um fullt afnám yrði hafin eigi síðar en á árinu 2016. Mikil vinna hefur farið fram í ráðuneytunum þar sem tillög- ur minni- og meirihluta séfræðinga- hópsins eru hafðar til grundvallar. Unnið er að frumvörpum sem hafa það að markmiði að óheimilt verði að bjóða verðtryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára, að lágmarkstími nýrra verðtryggðra neytendalána verði lengdur í allt að 10 ár og að takmarkanir verði gerð- ar á veðsetningu vegna verðtryggðra íbúðalána. Fjármálaráðherra hefur umsjón með þessum hluta verkefn- isins. Vegna umfangs aðgerðarinnar þá hefur verkefnið tekið lengri tíma en áætlað var. Það þýðir aðeins eitt að núna er enn mikilvægara að láta hendur standa fram úr ermum og klára þetta stóra verkefni. n Elsa Lára Arnardóttir Þingmaður Framsóknarflokksins Kjallari MynD SiGtryGGur Ari „Fram- kvæmdastjórn IKEA sér engin krafta- verk í því að lækka verð- lag, heldur telur það vera skynsamlega og raun- hæfa aðgerð. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.