Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Qupperneq 27
Helgarblað 21.–24. ágúst 2015 Umræða 27 Myndin Viðrar hundana Þessi maður skellti sér í göngutúr með hundana sína í góða veðrinu í höfuðborginni á fimmtudaginn. mynd þormar Vignir gunnarsson Vestnorrænar vinaþjóðir Á rsfundur Vestnorræna ráðsins var haldinn í Fær- eyjum nú á dögunum. Þar var einnig haldið sérstaklega upp á 30 ára afmæli Vestnor- ræna ráðsins með pomp og prakt, enda fullt tilefni til að treysta vina- bönd þessara þriggja grannríkja á Norðurslóðum. Sameiginlegir hagsmunir þessara þriggja nágranna, þ.e. Íslands, Fær- eyja og Grænlands, eru miklir og sér- staklega nú um stundir hvað varðar málefni Norðurslóða. Lögð er mikil áhersla á að hámarka áhrif þeirra á gang mála á Norðurslóðum en þang- að horfa nú helstu stórveldi heims og brýnt er að vernda hagsmuni þjóð- anna á svæðinu til framtíðar. Þjóðirnar eiga í dag fjölbreytt samstarf í sjávarútvegi, mennta-, menningar- og heilbrigðismálum. Ársfundurinn ályktaði að auka enn frekar þetta samstarf og kortleggja hvernig löndin geti aukið samstarf- ið á sviði sjávarútvegs, fríverslunar, samgangna og við uppbyggingu inn- viða þessara samfélaga. Landfræðileg lega Vestnorræna svæðisins í miðju Norður-Atlants- hafi á milli meginlands Evrópu og Norður-Ameríku og með auknum möguleikum á tengslum við Asíu gerir það að verkum að flutningar þar eiga eftir að aukast mikið og öll umsvif á svæðinu að sama skapi. Það er mikið talað um þau tæki- færi sem skapast þegar siglingar um Norðurslóðir aukast en minna er talað um ógnanir sem þeim fylgja þar sem lifibrauð þjóðanna er und- ir ef mengunarslys verða. Málefni Norðurslóða eru til umræðu hjá Norðurskautsráðinu og á enn fleiri stöðum og vissulega er hætta á að stórþjóðirnar, sem líka eiga mikla hagsmuni undir, ráði ferðinni. Mjög mikilvægt er að rödd vestnorrænu ríkjanna heyrist og hafi vægi. Það eru gífurlegir langtímahagsmunir tengd- ir því að mótuð verði ábyrg og sjálf- bær stefna á Norðurslóðum. Aukin skipaumferð um Norður- slóðir gerir Ísland að kjörstað fyrir alþjóðlega leitar- og björgunarmið- stöð. Vestnorræna ráðið samþykkti með ályktun árið 2013 að láta kanna hverjar væru orsakir fyrir fækkun kvenna á Vestur-Norðurlöndum. Ályktunin hefur ekki verið uppfyllt að fullu en haldin var ráðstefna sl .júní í Nuuk þar sem fulltrúar land- anna ræddu þennan vanda og í Fær- eyjum hafa ástæður fólksflutninga frá jaðarsvæðum verið kortlagðar. Ég tel þetta vera brýnt verkefni og greina þarf ástæðurnar sem best og bregðast við ef ekki á illa að fara. Mikil aukning er í ferðaþjónustu þessara þriggja landa þótt ekkert jafnist á við þá sprengingu sem er í fjölda ferðamanna á Íslandi. Það er mikilvægt að auka samstarf í ferða- þjónustu á milli landanna og vinna að sameiginlegri markaðssetningu fyrir Norðurslóðir með sjálfbærni og hreinleika náttúrunnar að leiðar- ljósi. Við skulum minnast þessi að það er fyrst og fremst vegna nátt- úrunnar sem ferðamenn sækja til þessara landa. Spennandi verkefni er líka fram undan á sviði námskeiða fyrir vest- norræna rithöfunda. Menntamála- ráðuneytið á Íslandi er að skoða hvort hægt verði að koma slíkum námskeiðum fyrir í samstarfssamn- ingi um menntun, menningu og rannsóknir sem nú er unnið að á milli landanna og verður til umræðu á Norðurlandaráðsþinginu í Reykja- vík í haust. Mikil ásókn stórþjóða og auð- hringja er í auðlindir lands og sjáv- ar í vestnorrænu ríkjunum. Mikil- vægt er að samhæfa krafta þessara grannþjóða til þess að auðlindanýt- ing þeirra verði sjálfbær og til að af- raksturinn auðlindanna nýtist til uppbyggingar heima fyrir og eflingu samfélaganna og þjóðirnar verða að halda yfirráðarétti sínum yfir eigin auðlindum. Fram undan er þátttaka Vestnor- ræna ráðsins í Arctic Circle-ráðstefn- unni þar sem verður m.a. til umræðu lýðræði á Norðurslóðum og aðkoma þjóðþinganna að ákvarðanatöku í málefnum Norðurslóða. Forsætisráðherra Grænlands komst vel að orði þegar hann sagði í afmælisræðu sinni á ársfundinum: „Við sjáum ekki alltaf stjörnurnar en við vitum að þær eru þarna, eins er með vináttu þessara þriggja landa, hún er alltaf til staðar þótt höf skilji að.“n Lilja Rafney Magnúsdóttir al- þingismaður situr í Íslandsdeild Vest- norræna ráðsins. „Aukin skipaumferð um Norðurslóðir gerir Ísland að kjörstað fyrir alþjóðlega leitar- og björgunarmiðstöð. Lilja rafney magnúsdóttir Kjallari Hann virðist vera með einbeittan brotavilja gestur a. grjetarsson tapaði 10 þúsund krónum á viðskiptum við svikahrapp. - DV Þeir brutu í honum hjartað líka Hulda Hrönn Elíasdóttir um vin sinn sem lenti í líkamsárás og reyndi sjálfsvíg í kjölfarið. - DV Spurning hvort bankinn sé ekki of fljótur á sér þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, um síðustu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands. - DV 1 Kærði mótorhjólanornir og reyndi sjálfsvíg daginn eftir 47 ára maður liggur þungt haldinn á spítala eftir að hann reyndi að svipta sig lífi. Daginn áður kærði hann alvarlega líkamsárás, en samkvæmt heimildum DV halda aðstandendur því fram að á meðal þeirra sem tóku þátt í árásinni hafi verið tveir meðlimir í vélhjólaklúbbi sem kallast MC Nornir og er eingöngu skipaður konum. Lesið: 26.559 2 Gengilbeinan bauð upp á mat og fékk það margfalt endurborgað Þegar gengilbeinan Liz Woodrow bauð tveimur slökkviliðsmönn- um upp á morgunmat eftir erfiða vakt, hefur hún líklega ekki getað ímyndað sér að það myndi ekki aðeins breyta lífi henn- ar, heldur yrði hún í fréttum á heimsvísu. Lesið: 23.238 3 Leitaði ættingja og fann fimm systkini Sylvía Magnús- dóttir, bóndi á Hlíðarenda í Skagafirði, hóf vonlitla leit að blóðættingjum sínum fyrir nokkrum árum eftir að henni hafði verið tjáð að blóðforeldrar hennar hefðu látist í hörmulegu slysi þegar hún var aðeins nokkurra mánaða gömul. Það kom henni því í opna skjöldu þegar hún reyndist eiga fimm systkini á lífi í Þýskalandi. Lesið: 23.186 4 Fundu lík af ungum manni í Laxárdal í Nesjum Lík af ungum karlmanni fannst í Laxárdal í Nesjum á þriðjudag. Ekki hafa verið borin kennsl á líkið. Kennslanefnd hefur gefið út að líkið sé af ungum karlmanni, um það bil 186 sentimetrar á hæð með ljóst axlasítt hár, klætt í svarta strigaskó með hvítri stjörnu á hlið, dökkbláar íþróttabuxur og hettupeysu með áletrun að framan, „QUICKSILVER“. Lesið: 21.855 5 Yfir þrjátíu þúsund búnir að skrifa undir: Sagður hafa nauðgað íslenskri konu Rúmlega 32 þúsund hafa skrifað undir hvatningu til Amazon til þess að taka bækur eftir Daryush Valizadeh, eða Roosh V eins og hann er kallaður, úr sölu. Í bókinni lýsir hann hvernig hann færði unga konu, ofurölvi, heim til sín og segir að hún hafi ekki verið fær um að gefa samþykki sitt. Lesið: 19.166 Mest lesið á DV.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.