Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Blaðsíða 32
Helgarblað 21.–24. ágúst 201532 Fólk Viðtal
H
éðinn hefur viljað stuðla
að umbótum og breyting
um á geðheilbrigðiskerf
inu og rammanum, oft á
tíðum þrönga, sem sam
félagið vill helst hafa okkur í. Ragn
heiður Eiríksdóttir blaðamaður sett
ist niður með Héðni á huggulegu
kaffihúsi í miðbænum og ræddi við
hann um ritverkið, geðheilbrigðis
mál og hvernig honum hefur tekist
að breyta sinueldi í huggulegan ar
ineld.
Gagnrýni á þjónustu
Héðinn segir bókina vera þríþætt
verk. „Í fyrsta lagi er þetta uppgjör
við kerfið og hugmyndafræðina. Þar
fylgi ég meðal annars eftir því prins
ippmáli að við sem íbúar þessa lands
getum gagnrýnt almannaþjónustu
án þess að vera „refsað“ fyrir það af
þjónunum. Ef þú ert til að mynda
óánægð með þjónustu Landhelgis
gæslunnar geturðu birt grein og sett
fram uppbyggilega gagnrýni á Land
helgisgæsluna. Svo ertu á trillunni
þinni 10 sjómílur vestur af Galtarvita.
Það kemur gat á bátinn og þú hringir
eftir hjálp, en færð svarið: „Nei, við
komum ekkert og hjálpum þér, þú
gagnrýndir okkur og skrifaðir grein
sem okkur líkaði ekki við. Þú verður
bara að hringja eitthvert annað eða
drukkna.“ Í mínu tilfelli snerist mál
ið um synjun á sjúkrahúsinnlögn á
grundvelli skoðana. Mér fannst ekki
annað hægt en að standa á þeirri
sannfæringu að slíkt bryti í bága við
bæði tjáningar og skoðanafrelsi eins
og það er varið í stjórnarskránni. Það
virtust mér bæði umboðsmaður Al
þingis og landlæknir staðfesta eftir
að málið varð opinbert.
Í öðru lagi er þetta saga með
myndrænum útlistingum á hugs
anaferlum og því hvernig hugur okk
ar getur virkað ef skyn og hraðasvið
hans er vítt. Hugsanir eru á stundum
í sögunni myndgerðar sem hestar
og lífsorka mannsins í kjarna hans
fær ásjónu úlfs. Sú grunnhugmynd
tengist tunglinu, „luna“ og „lunacy“,
varúlfum, hamskiptum og svo fram
vegis. Í raun er ég að leitast við að
lýsa viðbót við „normal” hugsun (ef
hún er til) en ekki „abnormi“ í sjálfu
sér. Lýsingin er af „jaðrinum“, en af
sammannlegu rófi. Að því mér virðist
erum við öll á þessu sama rófi.
Í þriðja lagi er í bókinni ákveðinn
lærdómur – Lífsorðin 14 – ráð af jaðri
skynsviðsins sem ég skrifaði niður á
leið minni aftur inn á „miðjuna“. Ráð
sem aðrir gætu nýtt sér. Sá kafli var
skrifaður með Þórdísi Rúnarsdóttur
sálfræðingi. Upphaflega voru þetta
tvö handrit, sagan og ráðin – en í
Héðinn Unnsteinsson er úlfur. Hann skiptir stundum um ham, en langoft-
ast er hann teinréttur og vel klæddur og lítur út fyrir að vita nákvæmlega hvert
hann er að fara. Bók Héðins, Vertu úlfur – wargus esto, kom út hjá Forlaginu í vor
og hefur vakið mikla athygli fyrir hispursleysi og óvenjulega nálgun við umfjöll-
unarefnið, líf með víða sveifluvídd, en geðlæknisfræðin hefur síðustu 200 árin
eða svo gefið því ástandi heitið „geðhvörf“.
Héðinn
er úlfur
Bjartsýnn og í góðu
jafnvægi Bók Héðins,
Vertu úlfur – Wargus esto,
hefur fengið lofsamlega
dóma. Hún er í senn
ádeila, sjúkdómssaga og
sjálfshjálparbók.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is