Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Blaðsíða 34
Helgarblað 21.–24. ágúst 201534 Skrýtið Sakamál U ndir lok ágúst, 1991, var bandarísk kona, Terrie Sramek, ákærð fyrir að hafa myrt Billy, eigin- mann sinn til eins og hálfs árs. Forsagan var á þá leið að rétt- um mánuði áður, 31. júlí, höfðu hjónin, sem kynntust í gegnum stefnumótaþjónustu í Utah, far- ið í gönguferð skammt frá heimili þeirra í Middleburg Heights í Utah. Billy sást ekki á lífi eftir það. Tárvot í sjónvarpinu Daginn eftir hafði Terrie samband við lögreglu og sagði að eiginmað- ur sinn væri horfinn, hann hefði horfið á meðan hún var í kirkju. Terrie virtist öll af vilja gerð til að aðstoða lögregluna og kom með- al annars fram í sjónvarpi þar sem hún biðlaði til almennings um að veita upplýsingar ef einhverjum slíkum væri til að dreifa. Tárvot með fjögurra mánaða dóttur hjón- anna í fanginu sagði hún: „Hann hefði aldrei farið nema einhver neyddi hann til þess.“ Ekki allt sem sýndist Á meðal þeirra sem sáu út- sendinguna var Jim nokkur Belaszy, myntfræðingur í Midd- leburg Heights. Honum kom þetta allt nokkuð spánskt fyrir sjónir því á þeim tíma sem leið frá hvarfi Billys og að útsendingunni hafði Terrie komið í verslun hans. Í fórum sín- um hafði Terrie myntsafn Billys og sagði Jim að hann hefði dáið úr hjartaslagi. Nokkrum dögum síð- ar birtist smaáuglýsing í hverfis- blaðinu þar sem auglýst voru til sölu ýmis búsáhöld og notuð karl- mannsföt. Símanúmerið sem fylgdi auglýsingunni var númer Terrie. Einkaspæjari ráðinn Líkamsleifar Billys fundust 21. ágúst í hávöxnu grasi skammt frá Isaac- vatni, í rúmlega eins og hálfs kíló- metra fjarlægð frá heimili hjónanna. Þrátt fyrir rotnun leiddi líkskoðun í ljós að hann hafði verið skotinn í höfuðið. Að fjölskyldu Billys læddist sá grunur að Terrie væri ekki með hreinan skjöld og réð einkaspæjara til að komast að hinu sanna í mál- inu. Hann komst fljótlega að því að Terrie var önnum kafin við að selja eigur eiginmanns síns sáluga. Einnig leiddi rannsókn hans í ljós að hún hafði sett auglýsingu í einka- máladálk fyrir einmana fólk – sem bar óneitanlega keim af því hvernig hún kynntist Billy upphaflega. Drykkja og fjárdráttur Í kjölfar þessarar uppgötvun- ar setti einkaspæjarinn þrýsting á Terrie sem á endanum brotn- aði saman og játaði á sig morðið. Að hennar sögn höfðu hjónin far- ið í göngu, hún með dóttur þeirra á bakinu. Meðan á göngunni stóð upphófst rifrildi; hún skammaðist vegna drykkju Billys og hann vegna 65.000 dala sem Terrie hafði svik- ið út úr fyrrverandi vinnuveitanda hennar í Utah en ekki deilt með eiginmanni sínum. Terrie sagði Billy hafa löðrungað hana og dóttir þeirra hefði þá brostið í grát. Hún hefði þá dregið fram skammbyssu og skotið Billy í andlitið og síðan öðru skoti þar sem hann lá á grúfu á jörðinni. „Slæm persóna“ ábyrg Síðar kom í ljós að fjársvik voru engin nýlunda hjá Terrie því árið 1996 hafði hún svikið 228.000 dali út úr tryggingafélagi í Montana sem tengdist Miss Montana-feg- urðarsamkeppninni. Þá hafði hún sagt að „slæm persóna“ innra með henni hefði fengið hana til þess. Terrie fullyrti að hún þjáðist af rofnum persónuleika og sá „slæmi“ fengi hana til að fremja glæpi. Reyndar komst geðlæknir, skipað- ur af réttinum, að því að fullyrðing Terrie ætti við rök að styðjast. Engu að síður dæmdi dómarinn hana til 15 ára fangelsisvistar. n „Hann hefði aldrei farið nema einhver neyddi hann til þess Slæma perSónan n Billy Sramek hvarf einn góðan veðurdag n Eiginkonan var ekki öll þar sem hún var séð Terrie og Billy Sramek Kynntust í gegnum stefnumótaþjónustu. Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is TÓNER, BLEK OG PRENTARAR MÆLANLEGUR VERÐMUNUR ! Hvað ert þú að borga?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.