Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Side 36
Helgarblað 21.–24. ágúst 201536 Sport
Betra blóðflæði
betri heilsa með SuperBeets rauðrófu kristal
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum - S: 896 6949
w
w
w
.s
u
p
er
b
ee
ts
.is
-
v
it
ex
.is
Betra blóðflæði
betri heilsa með SuperBeets rauðrófu kristal
Superbeets Nitric Oxide allt að 5 sinnum öflugra
1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Nitric Oxide
Nóbelsverðlaun 1998
Sameind ársins 1992
Uppgötvun á Nitric Oxide
var upphafið á framleiðslu
rislyfja
Eftir fertugt
framleiðir líkaminn
50% minna Nitric Oxide
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Upplýsingar í síma
896 6949 og www.vitex.is
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
NÝTT
w
w
w
.z
en
b
ev
.is
-
U
m
b
o
ð
: v
it
ex
e
h
f
Betri og dýpri
svefn
Engin eftirköst eða ávanabinding
Melatónin
Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is
úr graskersfræjum
ZenBev - náttúrulegt Triptófan
Vísindaleg sönnun á virkni
sjá vitex.is
Tvær bragðtegundir
sítrónu og súkkulaði
Melatónín er talið minnka líkur
á blöðruhálskirtilskrabbameini
sjá vitex.is
Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide
byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi,
en ekki töfluformi.
Nitric Oxide
Superbeets
allt að
5 sinnum öflugri
1. dós superbeets
jafngildir
30 flöskum af 500 ml
rauðrófusafa
Íslensk vottun á virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar
Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð
áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi.
ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi.
Kurteisir
Kr-ingar
n Fóru að orðum séra Friðriks n Skrítnar skiptingar
E
ins og allir alvöru
knattspyrnuáhugamenn var
ég staddur í Laugardalnum
á bikarúrslitaleik Vals og KR
um síðustu helgi. Í upphitun
tók maður strax eftir því að Patrick
Pedersen, framherji Vals, var í miklum
sársauka og Björn Zoëga, læknir
Vals, fylgdist áhyggjufullur með
Dananum rembast við að hita upp.
Daninn ristarbrotnaði, braut
Beckham-beinið svokallað, á síðustu
leiktíð og skrúfa sem hann fékk í
kjölfar þess angraði hann og til að
koma honum útúr leiknum hefði
einfaldlega þurfta stíga létt á ristina.
Um leið og ég sá ástandið á
Patrick hugsaði ég með mér; KR-
ingar munu mæta í leikinn og brjóta
þrisvar til fjórum sinnum harkalega
á honum til að koma honum út af.
Sama og Valsmenn gerðu þegar þeir
mættu Víkingum í fyrra og spörkuðu
Aroni Elís Þrándarsyni úr leiknum.
Sýndu af sér drengskap
Sjálfur hefði ég fyrirskipað árasir á
Patrick þar sem spjöld í bikarnum
telja ekki í deildinni. En í stað þess að
merkja fætur Patricks með takkaför-
um leyfðu KR-ingar honum að haltra
óáreittum um völlinn og teikna upp
sóknir Valsmanna. KR-ingar sýndu
þar af sér mikinn drengskap sem þeir
hafa ekki fengið neitt lof fyrir.
Hinn endurfæddi Ólafur Jóhann-
esson, þjálfari Vals, lagði leikinn full-
komlega upp með Patrick á öðrum
fætinum sem arkitekt í þær 80 mín-
útur sem hann píndi sig í gegnum.
Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, gerði
nokkur mistök í leiknum. Ég skildi
ekki alveg þessar skiptingar. Varð
að láta Sören, Þorstein Má og Gary
inná? Liðið spilaði knettinum hátt og
langt allan leikinn, var ekki hægt að
setja Jacob Schoop með síða hárið í
bleiku skónum útá kant? Hann hafði
ekkert þarna í Hauk Pál í vígahug á
miðjunni að gera.
Svona er fótboltinn
En allir góðir þjálfarar hafa tapað í
úrslitaleik. Bjarni lærir af þessum
leik, svona er fótboltinn. Eftir FH-
leikinn í síðasta mánuði var Bjarni
taktískur snillingur en nú er hann
skúrkur. Þetta er líf þjálfarans. Og
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, sem
einhverjir höfðu afskrifað er núna
eftirlæti íslensku alþýðunnar. Gleði
hans og einlægni í fagnaðarlátunum
kallaði fram gleðitár hjá mörgum sem
hafa fylgst með honum í áraraðir.
Séra Friðrik, stofnandi Vals, sagði:
„Látið aldrei kappið bera fegurðina
ofurliði.“ Þessi orð höfðu leikmenn
og þjálfarar KR greinilega hugfast í
aðdraganda og á meðan leik stóð á
laugardag. Það ber að virða þó svo að
ófyrirleitnir fótboltaáhugamenn eins
og ég hafi ekkert skilið í drengskap
KR-inga. Ég hefði skipað Jónasi,
Gunnari Þór, Pálma og Aroni að fara
duglega í Danann. n
Þ
að verður spennandi að sjá
valið hjá Lars og Heimi í næstu
viku á landsliðinu sem mætir
Hollandi og Kasakstan í byrj-
un næsta mánaðar. Þeir sem þekkja
til Lars segja Svíann íhaldssaman og
ekki sé von á neinum breytingum.
Ég vona að Eiður Smári verði
valinn. Ég get ekki ímyndað hversu
erfiðir þessir 2 mánuðir hafa verið
fyrir hann í Kína. Frá því hann kom
þangað hefur hann ekki byrjað einn
einasta leik en komið sjö sinnum inn
á. Liðið er sæmilegt og aðeins betra
en liðið sem Sölvi og Viðar spila með.
Sem betur fer fær Eiður vel greitt
í Kína. En vonandi kemur hann sér
þaðan í burtu eftir leiktíðina. Ég sé að
Bolton hefur ekki enn skorað mark í
deildinni eftir þrjá leiki. Væri ekki
kjörið að fá hann þangað?
En annars verður spennandi að
sjá hvað þeir gera. Halda þeir sig við
sama hóp? Matthías Vilhjálmsson
hefur heldur betur heillað menn í
Noregi með frammistöðu sinni hjá
Rosenborg og það sama má segja
um Hólmar Eyjólfsson hjá sama liði.
Arnór Ingvi er einnig að springa út
hjá Norrköping í Svíþjóð. n
Vonandi verður Eiður í landsliðinu
Lars og Heimir velja í næstu viku
Eiður Smári
Líklega voru
fyrstu tveir
mánuðirnir í Kína
erfiðir.
É
g fagna þeirri ákvörðun
365 miðla að setja ítölsku
knattspyrnuna aftur á dag-
skrá. Keppnin hefst um
helgina og verður í beinni
á Stöð 2 Sport.
Ég er það ungur að á vissan
hátt átti ítalski boltinn hug minn
og hjarta á uppvaxtarárum.
Hollendingarnir þrír hjá Milan,
Þjóðverjarnir þrír hjá Inter, Vi-
alli, Mancini og félagar hjá
Sampdoria, Maradona í Napoli,
Platini í Juventus, Effenberg,
Brian Laudrup og Batistuta hjá
Fiorentina, Brolin, og Asprilla
hjá Parma o.s.frv.
Undanfarin ár á Ítalíu hafa
verið erfið en síðasta ár mark-
aði upphaf nýrra tíma ef marka
má árangur liðanna í Evrópu-
keppninni á síðustu leik-
tíð. Juventus fór alla leið í úrslit
í Meistaradeildinni og Napoli
og Fiorentina fóru í undanúrslit
Evrópudeildarinnar.
Deildin í ár verður jöfn. Milan
hefur eytt miklu og fengið m.a.
Carlos Bacca frá Sevilla og Luiz
Adriano frá Shaktar. En Juvent-
us verða að telja líklegastir til að
vinna deildina þrátt fyrir að hafa
misst Vidal, Tevez og Pirlo. Liðið
fékk Mandzukið, Paulo Dybala
og Sami Khedira. Sjálfur styð ég
Roma og geri ráð fyrir 20 mörkum
frá Edin Dzeko í vetur.
Einnig verður gaman að fylgj-
ast með Emil Hallfreðssyni hjá
Verona. Hann verður í eldlínunni
á laugardag þegar Verona mæt-
ir Roma klukkan 16 á laugardag í
beinni útsendingu. n
Velkominn aftur,
ítalski boltinn
Hjörvars Hafliðasonar
Hápressa
„Ég er það ungur
að á vissan hátt
átti ítalski boltinn hug
minn og hjarta á upp-
vaxtarárum
„Látið aldrei
kappið bera
fegurðina ofurliði
Prúðir Hegðun
KR-inga var til
fyrirmyndar. mynd kr.iS