Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Síða 39
Helgarblað 21.–24. ágúst 2015 Lífsstíll 39 JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Uppskerumarkaður í Mosfellsdal Gæði og gróska A ð Mosskógum í Mosfellsdal eru laugardagar markaðs- og uppskerudagar en þá er hægt að versla úrvals nýupptekið grænmeti beint frá bóndanum. Sem dæmi má nefna ýmsar salattegund- ir, klettasalat og spínat auk þess brokkolí, blómkál, grænkál, svart- kál, kryddjurtir og að sjálfsögðu kart- öflur. Á markaðnum eru fleiri aðilar en Jón Jóhannsson grænmetisbóndi að selja varning sinn og ber þar helst að nefna hænuegg frá Mána, jarðarber og rósir frá Dalsgarði og fjölbreyttan varning eins og te, krydd, osta, safa, sultur og hunang. Tímabil og upp- skera ræður framboðinu en markað- urinn verður opinn alla laugardaga 10–16 út septembermánuð. Laugardaginn 29. ágúst verður haldin hin árlega sultukeppni mark- aðarins. Sultugerðarfólk er beðið um að skila inn framlögum fyrir kl. 12 og úrslitin verða kunn kl. 15. n Gróska og mannlíf Hægt er að kaupa ýmsan varning af söluborðum. Beint upp úr jörðinni Yndislegar rófur í hrúgum. Vorlaukur Fátt er girnilegra en nýupp- tekið grænmeti. Ofnbakað blómkál með paprikusósu og baunum n Uppskera á síðsumri n Margir notkunarmöguleikar blómkáls N ú er farið að líða á síðari hluta sumarsins, en þá er aldeilis hægt að gleðjast yfir grænmetisuppskerunni og njóta þess að borða dýrind- is nýuppteknar kartöflur, gulrætur, rófur og blómkál. Blómkál er hægt að nýta á ótal vegu, eiginlega á fleiri vegu en margt annað grænmeti því áferðinni má breyta mikið eftir því hvaða eldunar- aðferð er notuð. Við suðu og mauk- un fáum við silkimjúka súpu. Ef rif- ið blómkál er steikt á pönnu minnir áferðin einna helst á pasta, og hrátt rifið blómkál er eins og hrísgrjón. Ofnbakað blómkál verður gjarn- an stökkt að utan en mjúkt í miðju og nánast að myndist karamella ef nægri olíu er dreift yfir kálið áður en því er skellt inn í ofninn. Blómkál er bragðmilt og leikur einn að krydda að vild. Áhrifin geta verið indversk (cummin, kanil, karrí) eða spænsk (reykt paprika). Gómsætur grænmetisréttur Hér var gerð tilraun sem undirrituð hafði haft augastað á lengi. Blómkáls- hausinn er bakaður í heilu lagi í ofni og borinn fram með paprikusósu og baunum. Þetta eitt og sér hefði nægt fyllilega með nýbökuðu brauði og þá verið flottur grænmetisréttur, en kjötætur gætu leyft sér að bæta við steiktu beikoni á herlegheitin. Ágætt getur verið að byrja á að gera paprikusósuna. Hún geymist í ísskáp í 2–3 daga. n Paprikusósan 4 rauðar paprikur 1 rautt chilí 0,5 msk. cummin 0,5 tsk. reykt paprikuduft 0,5 dl olía salt og pipar n Skerið paprikurnar í helminga og hreinsið út fræ og hvíta innra byrðið. Raðið þeim með skurðarhliðina niður á við á bökunarpappírsklædda ofnskúffu og penslið með örlítilli olíu. Sama sagan með chilíið, skorið til helminga og fræhreinsað nema ef þið viljið hafa sósuna dálítið sterkari, þá má endilega skilja fræin eftir. n Setjið í heitan ofn (250 gráður, grill- stilling) og fylgist vandlega með. Eftir um 15 mínútur ætti hýðið að vera komið með svarta kolabletti en þá eru paprikurnar teknar úr ofninum og settar í plastpoka sem svo er lokað. Leyft að kólna í um 10 mínútur en þá er hægt að taka hvern paprikubitann á fætur öðrum og draga hýðið af. Naktar grillaðar paprikurnar eru svo settar í matvinnsluvél ásamt álíka nöktu chilíinu, kryddi, olíu, salt og pipar. Unnið þar til orðið að mauki. Kælt. Blómkálið 1 veglegur blómkálshaus 1 dós af blönduðum baunum 1 dl graslaukur, saxaður 2 msk. olía salt og pipar n Stillið ofn á 250 gráður og á grill-still- inguna. Skerið grænu laufin af blómkálinu og eins mikið af stönglinum og hægt er án þess að skaða „blómkálsvöndinn“. Blómkálið á að haldast í heilu lagi og standa kirfilega á bökunarpappírsklæddri ofnskúffunni. Dreifið olíunni yfir ásamt veglegri klípu af salti og nýmöldum pipar. n Grillað í ofninum í um 15–30 mín- útur eða þar til kolaflekkir eru farnir að myndast og sjálft blómkálið farið að mýkjast. Tímalengdin fer algjörlega eftir stærð blómkálsins. Prófið að stinga hníf í stöngulinn og athuga hvort hann sé farinn að mýkjast. Athugið að „hrátt“ blómkál er ekkert verra! n Blandið saman baunum, olíu, salti og pipar ásamt söxuðum graslauknum. Blóm- kálið er nú borið fram með baunasalatinu og paprikusósunni. Bergljót Björk begga@pressan.is Sælkera preSSan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.