Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Síða 42
Helgarblað 21.–24. ágúst 201542 Lífsstíll
Næsti forseti Íslands
n Hvern vilt þú sjá á Bessastöðum? n Gæti einhver þessara komið til greina?
F
orsetakosningar á Íslandi
nálgast óðfluga og lands
menn velta fyrir sér í aukn
um mæli hvert okkar gæti
best leyst hlutverk forseta Ís
lands af hendi. Enn er ekki ljóst hvort
sitjandi forseti mun gefa kost á sér
til áframhaldandi búsetu á Bessa
stöðum og hafa ýmsir látið þau orð
falla að vangaveltur um næstu kosn
ingar geti því ekki verið meira en
samkvæmisleikur að svo stöddu. En
samkvæmisleikurinn er óneitanlega
skemmtilegur!
Forseti þarf að vera ýmsum kost
um gæddur – hann þarf að líta vel út
að utan, vera vel máli farinn, kunna
að haga sér í veislum þar sem marg
réttaðar máltíðir eru framreiddar,
geta brosað mjög lengi og vera góður
við börn og minni máttar. Margir eru
á því að húmor sé vanmetinn í háum
embættum, hann megi þó ekki valta
yfir virðuleika og trúverðugleika, til
dæmis í samskiptum við pólitísk öfl
samfélagsins.
DV tók saman nokkur nöfn sem
hafa komið upp í umræðu undan
farinna vikna um forsetaembættið.
Skyldi þessu fólki hugnast að flytja á
Bessastaði? Er ekki ansi langt í Bón
us og bíó? Má vera drasl á Bessa
stöðum? Má forsetinn taka letidag
ef hann nennir ekki að klippa borða
á Breiðdalsvík einhvern daginn? Við
leituðum svara hjá nokkrum sem
hafa verið nefndir til sögunnar. n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Bergþór, hvernig finnst þér að fólk sé
að máta þig í forsetaembættið?
„Ég hélt nú fyrst að fólk væri að grínast. Þetta byrj
aði þegar nemendur uppi í Háskóla í einhverskonar
markaðsfræðum fengu það verkefni að búa til kosn
ingabaráttu á blaði. Þau völdu mig, tóku af mér mynd
ir og útbjuggu þessa fínu baráttu. Nemendur mínir
komust síðar í myndina og þótti hún svo forsetaleg.
Þegar ég fór að fá símtöl í fullri alvöru fór að fara að
eins um mig, enda kom það algjörlega flatt upp á mig.
Ég get ekki séð að ég passi í þessa skó.“
Finnst þér tímabært að breyta til á Bessastöðum?
„Þessar vangaveltur eru ekki tímabærar þar sem sitj
andi forseti hefur ekki gefið upp hvort hann ætli að
halda áfram. Annars er ég aðdáandi hans og finnst
hann hafa unnið þarft verk með sínum málflutningi á
alþjóðavísu, slökkt ýmsa elda okkur til hagsbóta. Það
getur verið erfitt að verja hnýtna þjóð.
Hvaða upplegg myndir þú
flytja með inn á Bessastaði?
„Mér finnst mikilvægt að muna að við finnum gleði og
verðum sterk og upplitsdjörf þjóð ef við styrkjum inn
viðina öndum djúpt og finnum að í okkur býr kraft
ur til að breyta til góðs. Þegar þessi góði kraftur er til
staðar þá tvíeflumst við.
Forseti þarf að geta tekið fallega og eðlilega á móti
fólki innanlands og utan. Hann þarf að hlusta og vera
vinur í raun ég treysti mér alveg í það. Svo er hann
tengiliður milli þjóðar og ríkisstjórnar. Ef við fáum
frábæran einstakling í þetta sem allir geta verið sáttir
við held ég að hann geti unnið gríðargott starf.“
Pawel, ertu til í embætti
forseta Íslands?
„Ég veit það ekki. Það er samt alltaf
gaman þegar einhver vill að maður
geri eitthvað ábyrgðarfullt í lífinu. Vin
ir mínir reyndu að koma af stað ein
hverjum látum á Twitter, en það varð
engin sprenging utan vinahópsins.“
Gæti þetta verið rökrétt fram-
hald eftir stjórnmálin?
„Ég hef verið í pólitík og framboði
áður, svo þetta er ekkert fullkom
lega fáránleg hugmynd. Það væri
hins vegar fá
ránlegra að ég
yrði markmað
ur í landsliði Ís
lands í fótbolta.
Ég er ekkert að
hugleiða þetta,
en enginn veit
ævi sína fyrr en
öll er. Það er að
minnsta kosti
engin 15 manna
kosninganefnd að störfum fyrir mig
eins og er að búa til baráttuna.“
Treystir sér í hlutverkið
Hugnast ekki
starfslýsingin
Bergþóri finnst umræðan ótímabær
Húmor og
málskotsréttur
Halldóra, ertu til í að verða
næsti forseti?
„Til þess að vinna þjóðina á sitt
band í kosningabaráttu er húmor
sterkasta vopnið.
Fyrir mína parta finnst mér
skipta máli að forseti sé viljugur til
að veita Alþingi og ríkisstjórn hæfi
legt aðhald og nýta málskotsréttinn
þegar gjá verður milli þings og þjóð
ar. Hann gæti stuðst við reglu stjórn
lagaráðsins í nýju stjórnarskránni,
sem kveður á um að undirskriftir
10 prósent þjóðarainnar dugi til að
knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hlutfallið má vera 15 prósent eða 20
prósent, en aðalaatriðið er að stjórn
völd viti að þjóðin ræður þegar upp
er staðið, ekki bara í kosningum.
Svo þarf þetta að vera hrífandi
manneskja, en slíkar eru til með
milljón afbrigðum. Það getur til
dæmis verið hrífandi að vera durtur,
eða vera með kæk. Ég segi líka
kynjakvóta á Bessastaði og vil bara
sjá konur í framboði núna!“
Halldóra vill kynjakvóta á Bessastaði
Katrín, margir hafa áhuga á að
þú takir að þér embætti forseta
Íslands, ertu til í það?
„Ég hef nú mest lítið um það að
segja nema auðvitað þykir mér vænt
um það ef einhver sér mig fyrir sér í
þessu embætti sem ég hef sjálf talið
skipta miklu máli. Ég hef hins vegar
engin plön haft um það enda bara
á kafi í mínu starfi,“ sagði Katrín og
hélt áfram að vinna fyrir lýðveldið.
Þykir vænt
um að fólk
vilji sjá hana
í embætti
Katrín ætlar að halda
áfram í sínu starfi
Önnur nöfn í
umræðunni
Þessir hafa líka verið nefndir til
sögunnar
n Andri Snær Magnason
n Ari Trausti
n Davíð Oddsson
n Egill Ólafsson
n Friðrik Sophusson
n Herdís Þorgeirsdóttir
n Jón Gnarr
n Kristinn Sigmundsson
n Kristín Ingólfsdóttir
n Ragna Árnadóttir
n Salvör Nordal
n Stefán Jón Hafstein
n Þorsteinn Pálsson
n Þórarinn Eldjárn
Palli, langar þig til að verða forseti Íslands?
„Ég gaf mitt lokasvar fyrir þremur árum og mig langar ekkert til að vera
forseti Íslands. Ekki baun. Ég er glaður og ánægður með lífið eins og það
er og þarf ekki að breyta neinu. Starfið mitt er skapandi og krefjandi og
ég nýt mín svo vel í því. Starfslýsing forseta íslands hugnast mér alls ekki.
Það er búið að taka mig tvo áratugi að vinna mig þangað sem ég er núna
og ég er yndislega sáttur við tilveruna.“
Hvern viltu sjá á Bessastöðum ef Ólafur stimplar sig út?
„Bergþór Pálsson, ég gef honum tvo þumla upp. Ég spyr á sama tíma – er
það gott fyrir nokkurn mann að gegna sama starfinu eins lengi og Óli hefur
gert? Þetta er ekki beint valdastaða þó að núverandi forseti hafi breytt þessu
í hálfgerða valdastöðu, en er þá hollt að vera í valdastöðu í svona mörg ár?“
Páll Óskar hefur engan áhuga á embættinu
Kosninganefndin
ekki komin til starfa
Nógu
gamall en
ólíklegur
Pawel finnst fáránlegra að verða landsliðsmarkmaður
Ólafur, ertu til í þetta starf?
„Ég var spurður þessarar sömu
spurningar fyrir tæpum tuttugu
árum. Þá var ég svo heppinn að
geta bent á að þetta væri eins og að
spyrja fermingardreng hvort hann
langaði að aka rútu því þá hafði ég
ekki aldur til að gegna embættinu.
Það er kannski bæði kostur og galli
að vera orðinn nógu gamall núna
en hvað sem því líður þá hef ég nú
ekki hugleitt þetta mikið. Í fljótu
bragði þykir mér það harla ólík
legt.“
Langar þig að flytja
á Bessastaði?
„Ég myndi sjálfur hafa miklar efa
semdir um þá sem beinlínis iða í
skinninu að setjast að á Bessastöð
um.“
Hvern langar þig að sjá flytja
inn í fína hvíta húsið með
rauða þakinu?
„Heyrðu, býr ekki einhver þar
núna?“
Ólafur Jóhann gefur
passlega loðin svör
Bergþór
Pálsson
Halldóra
Geirharðsdóttir
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Katrín
Jakobsdóttir
Ólafur Jóhann Ólafsson
Pawel Bartoszek