Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Síða 44
Helgarblað 21.–24. ágúst 201544 Menning
Bræðralög og brómantík
n Tómas R. Einarsson og Ómar Guðjónsson tóku upp plötu í
V
ið höfum túrað stöðugt í tíu
ár og frá fyrsta degi hefur
þetta verið svolítið bræðra-
lag. Við höfum fundið mik-
inn samhljóm og tökum
oft síðustu krúsina tveir saman úti
á palli,“ segir Ómar Guðjónsson
rafmagnsgítarleikari um samstarf
hans og Tómasar R. Einarssonar
kontrabassaleikara. Á dögunum gáfu
þeir út plötuna Bræðralag. Platan
inniheldur tíu lög sem þeir sömdu
fyrir hvor annan og tóku upp á Kols-
stöðum í Borgarfirði. DV settist á
bekk með Tómasi og Ómari og ræddi
bræðralögin og brómantískt vina-
sambandið.
Slúður og gourmet-máltíðir
Samstarf þeirra hefur staðið yfir í
áratug en Tómas rifjar upp að hann
hafi fyrst frétt af Ómari þegar sá síð-
arnefndi var enn á unglingsaldri. „Ég
sá Ómar réttnýfermdan þegar ég var
að spila með Óskari bróður hans.
Hann gerði sína fyrstu plötu 2003,
sem mér fannst lofa góðu, og í kjöl-
farið heyrði ég hann spila víða. Í árs-
byrjun 2005 vantaði mig svo hljóma-
mann í latínbandið mitt og ég bauð
Ómari djobbið. Síðan höfum við
spilað saman. Það jaðrar við að vera
hundrað sinnum á ári, ef allt er talið.
Ansi oft getum við allavega sagt,“
segir hann.
„Við höfðum verið að ræða það
í nokkurn tíma að gera eitthvað
meira saman. Í fyrra ákváðum við
svo að 2015 yrði okkar ár. Við byrj-
uðum að semja síðastliðið haust og
strax 5. janúar var svo komin rútína á
vinnuna. Við hittumst helst tvisvar í
viku heima hjá Tómasi, fengum okk-
ur kaffi og slúðruðum smá. Svo var
æfing í klukkutíma. Svo meira kaffi,
slúður og æfing í annan klukkutíma.
Svo eldaði Tommi gourmet-máltíð.
Þannig að ég passaði mig alltaf að
vera fram yfir hádegi,“ segir Ómar og
hlær.
Þið segið að platan sé tónlistarleg
samræða, hvernig fer slík samræða
fram? Mér sýnist á plötuumslaginu
að Tómas sé að gefa Ómari frekar
föðurlega ráðgjöf.
„Þetta er alls ekkert faðir-sonur
dæmi – bara tveir jafnaldra spilarar
sem hafa jafnan rétt. Músíkölsk sam-
ræða þýðir að menn hafi gaman af
því sem hinn spilar og báðir séu opn-
ir fyrir því að tala við annað fólk. Það
eru til persónur sem spila á ákveðinn
hátt, eru algjörlega afgerandi
og það er ekkert til umræðu um
hvernig hlutirnir eru spilaðir. Við
hins vegar þekkjumst mjög vel og
erum alltaf til í að breyta hlutum til
að ná því besta fram. Ómar þarf ekki
að hafa áhyggjur að ég verði eitthvað
fúll yfir því ef hann stingur upp á því
að á þessum stað eða í þessu lagi
gæti verið betra að fara aðra leið. Á
sama hátt get ég gert það sama við
hans lög: prófað að hægja tempóið í
þessu lagi eða eitthvað álíka. Þannig
að það er mjög frjálslegt og afslapp-
að andrúmsloft hjá okkur.“
Töframaður hljómsins
Þið komið þá ekki með algjörlega
niðurnegldar nótur og segið félagan-
um hvernig á að spila?
„Með spunakennda „instrúm-
ental“ tónlist er það ekki þannig. Ef
þú skrifar upp lag og lætur Tómas
R. fá það verður það spilað á annan
Á ferð og flugi
Spessi tók myndina á plötuumslaginu á
Reykjavíkurflugvelli.
Músíkölsk samræða Tómas R. og Ómar Guðjóns hafa starfað saman í áratug en hafa
nú tekið upp sína fyrstu plötu tveir saman.
Myndir ÞorMar Vignir gunnarSSon
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is
Þörf á meiri spennu
H
inn danski Jussi Adler-Ol-
sen á staðfastan lesenda-
hóp sem höfundurinn
gleður reglulega með bók-
um sínum. Adler-Olsen
er flinkur höfundur sem kann að
skapa persónur sem lesandinn hef-
ur áhuga á og hann gæðir verk sín
spennu. Lesendahópurinn er yfir-
leitt hæstánægður með sinn mann
og gagnrýnendur sömuleiðis.
Adler-Olsen er einn þeirra höf-
unda sem gert er ráð fyrir að sendi
frá sér bók svo að segja á hverju ári.
Þegar slík pressa er á höfundi þá er
viðbúið að eitthvað verði undan að
láta. Ný bók Adler-Olsen, Stúlkan í
trénu, er á köflum furðu flausturs-
lega skrifuð og á köflum of langdreg-
in. Það hvarflar að manni að höf-
undurinn hafi ekki fengið þann tíma
til verksins sem hann þurfti. Meiri
yfirlegu hefði allavega verið þörf.
Stúlkan í trénu er ekki slæm bók,
sem spennusaga er hún yfir meðal-
lag, en hún er langt frá því að vera
með bestu verkum höfundarins.
Hún er sjötta bókin í afar vel heppn-
uðum bókaflokki um Deild Q, Carl
Mörk, hinn litríka en um leið dular-
fulla félaga hans Assad, og Rose.
Söguþráður er í stuttu máli á þá
leið að lögreglumaður hringir í Carl
Mörk og vill segja honum frá máli
sem hefur þjakað hann í sautján ár.
Mörk sýnir erindi hans lítinn áhuga
en þegar maðurinn styttir sér ald-
ur fer málið að horfa öðruvísi við,
en það snýst um dauðdaga ungrar
stúlku á Borgundarhólmi.
Bókin er 544 síður og hana hefði
þurft að stytta og þétta. Frásögnin er
oft í full miklum hægagangi og les-
andinn bíður eftir að spenna færist
í leikinn. Það gerist á nokkrum stöð-
um og er aðallega að þakka kvenvargi
nokkrum, Pirjo, sem tengist ein-
kennilegum söfnuði, og á sér enga
ósk heitari en að eignast barn með
leiðtoganum. Hún kemur þeim kon-
um sem vilja eiga í nánum samskipt-
um við leiðtogann fyrir kattarnef. Í
þeim köflum er Adler-Olsen eins og
hann gerist bestur. Undir lokin er
hrúgað saman alls kyns dramatík og
örlög persóna verða miður góð. Þar
verður dramatíkin nánast hömlulaus
og yfirdrifin, en kannski ætlaði höf-
undur sér þar að bæta fyrir ákveðið
tíðindaleysi í fyrri hluta verksins.
Aðdáendur Adler-Olsen munu
lesa þessa bók, líkt og þær fyrri, þótt
höfundur hafi yfirleitt verið á mun
betra flugi en hann er hér. n
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Stúlkan í trénu
Höfundur: Jussi Adler-Olsen
Þýðandi: Jón St. Kristjánsson
Útgefandi: Vaka-Helgafell
544 bls.
„Stúlkan í trénu er
ekki slæm bók,
sem spennusaga er hún
yfir meðallag, en hún er
langt frá því að vera með
bestu verkum höfundarins.
Höfundurinn Adler-Olsen er einn þeirra
höfunda sem gert er ráð fyrir að sendi frá
sér bók svo að segja á hverju ári.
Metsölulisti
Eymundsson
12.–18. ágúst 2015
Íslenskar bækur
1 Stúlkan í trénuJussi Adler Olsen
2 Leynigarður Johanna Basfords
3 Konan í lestinniPaula Hawkins
4 Framúrskarandi vinkona Elena Ferrante
5 Con Dios - Fermingarfræðsla
6 DrottningarfórninHanne-Vibeke Holst
7 Iceland Small World- lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
8 Oona & SalingerFrédéric Beigbeder
9 NicelandKristján Ingi Einarsson
10 Einhvern daginnNora Roberts
Joanna Basford
Jussi adler
olsen
Allar bækur
1 Stúlkan í trénuJussi Adler Olsen
2 Leynigarður Johanna Basfords
3 Danskur málfræði-lykill Hrefna Arnalds
4 Enchanted Forest Johanna Basford
5 Focus on Vocabulary 2
Diane Schmitt
6 Essential Academic Vocabulary
Huntley Helen Kalkstein
7 Konan í lestinniPaula Hawkins
8 Framúrskarandi vinkona Elena Ferrante
9 LjóðamálBragi Halldórsson / Knútur
S. Hafsteinsson
10 Secret GardenJohanna Basford