Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Side 52
Helgarblað 21.–24. ágúst 201552 Fólk
„Elska Drake meira en
allt (nema mömmu)“
Brómantískt samband Herra Hnetusmjörs og Joe Frazier
H
erra Hnetusmjör kom eins
og mjúkur, ljósbrúnn storm-
sveipur inn í íslensku rapp-
senuna nýverið og hefur
á skömmum tíma náð að
skapa sér sess sem einn athyglisverð-
asti rappari okkar tíma. Hann elskar
Drake meira en allt í heiminum,
nema mömmu, og hefur takmarka-
litla ástríðu gagnvart rappi og hip-
hoppi.
Ég hitti Herrann og Joe Frazier (Jó-
hann Karlsson), taktsmið og hljóð-
blandara, í háborg íslenskrar rapp-
menningar, Prikinu, einn eftirmiðdag
og spjallaði um framann, rappið,
brómantík og ástarsambönd byggð á
rappi.
Herra Hnetusmjör semur textana
og rappar, hann þykir tæknilegur og
flæðið hans er ýmist eins og Jökulsá
á fjöllum eða falleg lækjarspræna
í Arnarfirði, allt eftir því sem við á
hverju sinni. Joe Frazier er hljóð-
blandari og taktsmiður teymisins og
semur líka texta, en þeir tveir mynda
órjúfanlega heild.
„Það er eiginlega svindl að við
þekkjumst,“ segir Herrann og glott-
ir, „við virkum svo vel saman að aðrir
eiga ekki séns!“
Brómantík á hæsta stigi
Þeir kynntust í rafheimum þegar fé-
lagi Herrans sendi honum hlekk á
Soundcloud-síðu Joe, með þeim
skilaboðum að hann gerði geð-
veikt góða takta. „Mér leist strax vel
á og ákvað að senda honum skila-
boð sem urðu til þess að hann sendi
mér nokkra takta,“ segir Herra Hnet-
usmjör og bætir því við að þannig hafi
fyrsta sameiginlega lagið þeirra orðið
til – töluvert áður en þeir hitt ust.
Samstarfið byrjaði vel og Joe sendi
fleiri takta. Í janúar á þessu ári hittust
þeir svo í fyrsta sinn, skelltu sér beint
í stúdió og tóku upp tvö lög á þessu
fyrsta stefnumóti.
„Við áttuðum okkur strax á því að
samstarfið myndi virka,“ segir Joe,
„vinnuflæðið milli okkar var fullkom-
ið og við skildum hvor annan svo vel,
vorum með sama sánd í huga og viss-
um nákvæmlega hvað við vorum að
gera.“ Hérna skýt ég því inn að þessi
lýsing hljómi eins og hið fullkomna
ástarsamband. Þeir samsinna því
af ákafa. „Þetta er eins og ástarsam-
band þar sem tónlistin er ástin,“ seg-
ir Joe. „Við áttuðum okkur á því þegar
við fórum að hanga meira saman að
það var ekki bara tónlistin sem tengdi
okkur heldur áttum við sameigin-
leg alls konar absúrd áhugamál sem
við héldum báðir að við værum ein-
ir um,“ segir Herra Hnetusmjör. Þetta
þykir mér forvitnilegt og bið þá að
gefa mér dæmi.
„Við erum til dæmis báðir með
mjög undarlegan áhuga á amerískri
fjölbragðaglímu og höldum upp á al-
gjöra lúðaglímukappa, svo er fullt af
súrum Youtube-rásum sem við fylgj-
um,“ segja þeir félagar nánast í kór og
samsinna mér þegar ég segi að þetta
hljómi eins og meiri háttar bróman-
tík. „Þetta er ótrúlegt samband, því
við erum svo líkir en á sama tíma ólík-
ir og bætum hvor annan upp. Ég pæli
til dæmis mikið í popptónlist, tökt-
um og melódíum og heyri varla text-
ana, á meðan hann er á kafi í flæðinu
og skáldskapnum,“ segir Joe, og það
er greinilegt að þetta hábrómantíska
samband er eins og þau gerast best.
Partí á prikinu
Félagarnir hafa náð að þróa tónlist
sína saman og Herra Hnetusmjör
segir að samstarfið hafi gefið honum
kjark til að færast frá mjög tæknilegu
og hörðu rappi þar sem taktskiptingar
eru áberandi, yfir í að syngja beinlínis
og nota röddina í annað en rapp. Lög-
in hafa þeir gefið út á Youtube, eitt
og eitt, en núna vinna þeir að því að
setja saman plötu sem kemur út á 19
ára afmælisdegi Herra Hnetusmjörs,
þann 31. ágúst. „Við ætlum að halda
útgáfupartí á Prikinu til að fagna
þessum tímamótum, og allir eru vel-
komnir,“ segir Joe.
Aðspurðir um hvort rappið sé lík-
legt til að færa þeim ríkidæmi segj-
ast þeir nokkuð vissir um að svo verði
ekki. Þeir velja að gefa tónlist sína út
á netinu og dreifa henni ókeypis, og
þar er hugsjónin um að laða fleiri
hlustendur að rappi gróðavoninni
yfirsterkari. „Við fáum borgað fyr-
ir að spila á tónleikum, og svo selur
Joe auðvitað takta og það er hellings
bissness,“ segir Herrann. Nýja platan,
Flottur skrákur, verður aðgengileg á
Youtube, Soundcloud og Spotify.
2015 er ár rappsins
Við spjöllum aðeins um sögu rapps
á Íslandi. Þegar ég var á aldri strák-
anna voru Quarashi, XXX-Rottweiler
og Subterranean upp á sitt besta.
Svo gerðist lítið í rúman áratug en
2015 virðist rappsenan gjörsamlega
vera að springa út. „2015 er besta ár
í íslensku hip-hoppi síðan 2000 þegar
Rottweiler komu með sína fyrstu
plötu, þá var ég fjögurra ára,“ segir
Herra Hnetusmjör og félagarnir hlæja
trylltum hlátri.
„Seinni rappsprengjan kom núna,
Gísli Pálmi droppar plötu, Úlfur Úlf-
ur droppar plötu, ég droppa plötu,
Gauti er að fara að droppa plötu, Erp-
ur er byrjaður að vinna að annarri
plötu. Joe Frazier er að pródúsera fyr-
ir Gauta og mig og Erp og Bent – ef
þú ert að gera eitthvað í íslensku hip-
hoppi er Joe Frazier maðurinn sem
þú þarft að tala við,“ heldur Herrann
áfram óðamála, og uppsker vinalegt
hliðarknús frá Joe við þessi fallegu
orð.
„Ég veit eiginlega ekki af hverju
þetta gerðist akkúrat núna, en allt í
einu urðu geðveikt margir geðveikt
góðir í að rappa,“ bætir Joe við, en
Herrann stoppar hann af og segir að
það séu kannski ekki geðveikt margir,
„þetta eru í mesta lagi sjö manns sem
eru áberandi góðir rapparar og ég
nenni að hlusta á.“
Ég spyr hvort eitthvað sé um ill-
deilur milli ólíkra rapparagengja á
Íslandi. „Nei það er ótrúlega næs
stemning milli allra. Fólk er enda-
laust að hjálpast að, enda gagnast það
öllum að fleiri hlusti á rapp.“
Leita að stelpu
Hvað með stelpur? spyr ég (eðlilega).
Herra Hnetusmjör verður fyrir svör-
um. „Ég er ennþá að bíða eftir ein-
hverri stelpu sem getur rappað með
góðri raddbeitingu, eins og til dæm-
is Nicki Minaj. Það vantar stelpu með
pung í röddinni.“ Eða eggjastokka í
röddinni, segi ég, og strákarnir sam-
sinna því af ákafa. Joe heldur áfram:
„Við erum í stífri leit að stelpu til að
gera lag með. Við ætlum einmitt þess
vegna að kíkja á konurappkvöldið
á Húrra sem er 4. september. Okk-
ur þætti svo ógeðslega nett að finna
stelpu sem gæti rappað með okkur.“
Fullt að gera
Eftir fund okkar á Prikinu ætla strák-
arnir rakleiðis í stúdíóið, en þeir eru
byrjaðir að vinna að næstu plötu.
„Planið er að koma henni út í byrj-
un næsta sumars og taka þá túr um
landið,“ segir Herrann. „Við erum líka
að spila mikið á næstunni, verðum
upphitunaratriði fyrir Rae Sremmurd
og menntaskólaböllin eru að koma
sterk inn. Svo verðum við á Airwaves,“
bætir hann við.
Það verður spennandi að fylgjast
með þessum ljúfu rappdrengjum í
framtíðinni. Nýja platan kemur út 31.
ágúst og framtíðin er björt! n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Slaka á í sófanum Joe Frazier og Herra Hnetusmjör á brómantískri stundu. Mynd ÞoRMaR VigniR gunnaRSSon
Hnetusmjör er best Og einmitt þess vegna
heitir Herra Hnetusmjör Herra Hnetusmjör.
„Þetta er eins og
ástarsamband þar
sem tónlistin er ástin
Espresso time bollalínan fæst í BYKO og í stærri Hagkaups verslunum
Espresso time bollalínan er björt, litaglöð lína
fyrir kaffi elskendur. Bollarnir eru 100ml postulíns-
bollar sem eru uppþvottavéla- og örbylgjuvænir.
Einfaldir og þægilegir.
Kaupauki
Gjafapoki
fylgir við kaup
á tveimur
bollum