Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Qupperneq 20
16 Lífsstíll Vikublað 27.–28. október 2015
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Vinir opnuðu sambandið
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
n Samskiptin vandræðaleg n Hvernig eigum við að bregðast við?
Kæra Ragga
Ég skrifa þér vegna þess að ég veit ekki
hvernig ég á að snúa mér í ákveðnu
máli. Þú ert stöðugt að tala um opin
sambönd í fjölmiðlum svo ég læt á
þetta reyna.
Við hjónin eigum vinapar sem við
höfum umgengist talsvert síðasta ára-
tuginn. Þau eru gift og með börn, en
deildu því nýlega með okkur að þau
séu búin að opna sambandið og séu
núna í „poly“-sambandi. Fyrst héld-
um við að þetta væri eitthvað „kinkí
swing-dæmi“ og snerist um að hleypa
öðru fólki upp í rúmið til sín af og til,
en núna eru þau farin að tala frjáls-
lega og opið við okkur um kærasta og
kærustur og við vitum ekkert hvernig
við eigum að bregðast við. Þakkir og
góðar kveðjur, Sirrý.
Kæra Sirrý
Ég er svo sem enginn Poly-Wan Ken-
obi, en vissulega er ég búin að ræða
heilmikið um þetta mál á opinberum
vettvangi undanfarið. Ég vil taka það
skýrt fram að markmið mitt með
þeim málflutningi er að fá fólk til að
slaka aðeins á varðandi sambönd
annarra, þau eru nefnilega alls konar.
Við erum hins vegar langsamlega
klárust í norminu, í að fara eftir þeim
viðmiðum sem nærumhverfið og
samfélagið innrætir okkur rækilega
frá frumbernsku.
Þetta á auðvitað ekki bara við
um samfélagslega viðurkennd sam-
bandsform – heldur allt það sem okk-
ur finnst eðlilegt, án þess að hugsa út
í ástæðurnar og óskrifuðu reglurnar.
Ef eitthvað sem fellur utan normsins
verður á vegi okkar hriktir í stoðun-
um. Þetta geta verið alls konar hlutir
– að borða eftirmatinn fyrir matinn,
að klæðast sundbol einum fata fjarri
sundlaug, að syngja upphátt í strætó,
eða að stunda kynlíf sem er öðruvísi
en okkar. Veltu fyrir þér þeim ofsókn-
um sem samkynhneigðir þurftu að
sæta þar til fyrir skömmu!
Mér finnst hið fjölelskandi vina-
fólk sýna ykkur mikið traust með því
að deila með ykkur upplýsingum um
samband þeirra. Fólk sem velur að lifa
í einhvers konar opnum samböndum
mætir oft miklum fordómum, og því
ekki sjálfsagt enn sem komið er að
stíga út úr skápnum með þær upp-
lýsingar. Ég hvet ykkur til að reyna
að leggja fordómana til hliðar, notið
heldur tækifærið til að læra eitthvað
nýtt og víkka sjóndeildarhringinn.
Spyrjið að því sem vekur forvitni
og slakið á og andið rólega þegar
svörin koma. Fyrst vinahjón ykkar
ákváðu að deila upplýsingunum með
ykkur þykir mér líklegt að þau séu
reiðubúin að svara spurningum ykk-
ar. Þetta gæti verið frábært tækifæri
til að vaxa og eflast í umburðarlyndi
– og enginn er að segja að þið þurfið
sjálf að opna ykkar samband, það er
algengur misskilningur í umræðunni
því opin sambönd henta alls ekki öll-
um.
Til að bæta enn í umræðuna ákvað
ég að hafa samband við nokkra fjöl-
elskandi einstaklinga sem ég þekki og
fékk að heyra um algengustu spurn-
ingarnar sem þeir heyra þegar ástar-
lífið ber á góma. Ég vona að þetta
hjálpi! Bestu kveðjur, Ragga n
Þú veist aldrei
Geðþekku nágrannar
þínir í Garðabænum
gætu alveg verið í
galopnu sambandi!
Mynd www.123Rf.coM
K
ona A er í hjóna-
bandi með karl-
manni B. Þau eiga
tvö börn á grunn-
skólaaldri. Þau eiga hvort
um sig kærustu sem þau
eiga í bæði líkamlegu og
tilfinningalegu sambandi við. Þau
stunda ekki kynlíf með fleirum.
Kona C og karlmaður D eru í sam-
búð. Sonur hans dvelur hjá þeim
aðra hverja viku. Þau stunda kyn-
líf með öðrum en eiga ekki í tilfinn-
ingalegu sambandi nema við hvort
annað.
Er þetta ekki bara eitthvað
sem gengur yfir?
„Lokaða tímabilið í okkar sambandi
gekk yfir. Þetta fyrirkomulag tók við
og við erum ánægð. Kannski skipt-
um við um skoðun seinna, það er
aldrei að vita.“ (kona C, 35 ára)
„Við vorum komin á endastöð í sam-
bandinu, súrefnið var búið og við
vorum að ræða skilnað. Þá kom upp
þessi hugmynd og við höfum líklega
aldrei verið hamingjusamari.“ (karl-
maður B, 44 ára)
Verðið þið aldrei afbrýðisöm?
„Afbrýðisemi er oft til staðar, og er
stundum erfið. Við veljum að ræða
um tilfinningar okkar og þarfir. Til
dæmis segi ég kannski við manninn
minn: „Ég var einmana og leið þegar
þú fórst á stefnumót
í gær. Ég þarf athygli
frá þér núna til að
jafna mig.“ Þá veit
hann hvernig mér
líður og hvað ég þarf.
Svona vinnum við úr
erfiðum tilfinningum jafnóðum.“
(kona A, 38 ára)
Ertu ekkert hræddur um að hún
verði ástfangin og fari frá þér?
„Það er ekkert öðruvísi núna en þegar
við vorum í lokuðu sambandi. Sam-
bönd enda á hverjum degi, til dæm-
is ef fólk verður ástfangið af öðrum.
Áður en við opnuðum sambandið
var ég reyndar miklu hræddari við
höfnun. Hún má alveg og getur elsk-
að fleiri en mig – það er kjarninn í
okkar fyrirkomulagi. Við erum samt
alltaf númer eitt fyrir hvort annað.“
(karlmaður B, 44 ára)
Hvað segið þið börnunum?
„Við stundum ekki kynlíf með öðrum
inni á heimilinu, þannig eru okkar
reglur. Við ræðum kynlíf okkar ekki
við börnin frekar en fólk í lokuðum
samböndum.“ (karlmaður D, 33 ára)
„Kærustur okkar eru hluti af heim-
ilislífinu rétt eins og margir vinir og
kunningjar. Börnunum finnst eðli-
legt að umgangast fólk á þann hátt
og kynlífið kemur því ekkert við.“
(kona A, 38 ára) n
Algengar spurningar
Opin sambönd